(Birtist á eggin.is 8. febrúar 2012)
Bandaríkin og
bandamenn þeirra flytja nú herafla m.a. frá Írak og Líbíu austur til
stuðningsríkja sinna við Persaflóa og ennfremur austur á Kínahaf.
Obama og Clinton
segja bæði ítrekað: „engin meðul eru útilokuð“ í viðureigninni við Írani. Þá
meina þau „taktísk“ kjarnorkuvopn. Árás á Sýrland er stórmál. Árás á Íran er þó
miklu stærra mál: Miðausturlönd í
bál og brand með hringverkanir um allan heim. Enda snýst árás á Íran ekki um
Íran. Hún snýst um heimsyfirráð.
Nú
er ófriðvænna á jarðarkringlunni en verið hefur frá 1945. Kreppa og stríð eru
nátengd. Í valdatafli heimsveldanna eru gömlu stórveldin, Vesturveldin undir
forustu USA, á undanhaldi á mörkuðum vöru og fjármagns og standa frammi fyrir
ört dýpkandi kreppu. Staðan er um margt lík því sem hún var upp úr 1930, kreppu
fylgja harðnandi stjórnmál, réttindi þegnanna eru skert, ófriðarskýin hrannast
upp. Munurinn er helst sá að þá (og einnig fyrir fyrri heimsstyrjöld) var það
ungt efnahagsveldi (Þýskaland) sem sýndi mesta árásarhneigð. Það kom seint að
veisluborðinu og þurfti að ryðja sér til rúms með valdi. Nú eru hins vegar
gömlu heimsveldin grimmust, þau reyna að viðhalda stöðu sinni með kjafti og
klóm.
Þessi
hliðstæða við fyrri heimskreppu kapítalismans er lærdómsrík. Önnur hliðstæða er
þó nær og beinni. Yfirstandandi leikrit um kjarnorkuáætlun Írana, og meðfylgjandi
refsiaðgerðir og hótanir, er einfaldlega endurflutt stórveldaleikrit frá árunum
2001-2003. Þá fylktu Bandaríkin liði sínu og fjölmiðlaneti, breyttu Saddam
Hússein í skrímsli og léku útpælda blekkingarleiki – í fjölmiðlum og bak við
tjöldin – og réðust svo á Írak. Átyllan var sú sama og nú: Hann hefur
gjöreyðingarvopn! Dugir nákvæmlega
sama sjónarspil virkilega á okkur tvisvar?
Afganistan,
Írak, Líbía, Sýrland og Íran hafa ýmist orðið fyrir innrás eða hafa hana
hangandi yfir sér. Össurar allra Vesturlanda sameinast og segja að þær
íhlutanir snúist um mannúð og lýðræði. Þeir vita að það er lygi. Ástæðurnar eru
aðrar. Miðausturlönd eru efnahagslegt lykilsvæði, hafandi mestan olíuforða
heimsins. Íhlutanirnar eru gamaldags ránsleiðangrar eftir svarta gullinu.
Fleira kemur þó til. Öll þessi ríki tilheyra óformlegu ríkjabandalagi gegn
yfirdrottnun Vesturlanda. Þau eru stuðningsríki helstu keppinauta þeirra,
Kínverja og Rússa. Það er glæpur.
Þetta
tvennt nægir þó ekki til að skýra afar herskáa hegðun Bandaríkjanna og
bandamanna þeirra. Þar við bætist gjaldmiðlastríð sem tengist stöðu dollarsins.
Eftir að dollarinn varð heimsgjaldeyrir (Bretton Woods kerfið eftir 1945) og
aðrir gjaldmiðlar voru bundnir við hann neyddi það þjóðir heims til að að
versla í dollurum og kaupa amerískar vörur, og seðlabanka heimsins til að safna
varasjóðum í dollurum. Olíu- og orkuviðskipti fara til dæmis að mestu fram í dollurum. Þegar versla skal með
olíu verða ríkin að skaffa sér dollara, þ.e.a.s að versla við USA, kaupa
bandarísk ríkisskuldabréf m.m. – og þar með að fjármagna bandarískan
ríkisfjárhalla og viðskiptahalla – á meðan Bandaríkin rétta hallann einfaldlega
með því að prenta fleiri dollara. Nú er svo komið að peningamagn Bandaríkjanna
er fjórfalt meira en verðgildi allra bandarískra eigna, eigna sem eru veðsettar
margfaldlega upp í topp fyrir skuldunum. Staðreyndin er sú að fjármálakerfi
Bandaríkjanna og jafnframt drottnunarstaða þeirra á heimsvísu er stendur og
fellur með þessari drottnunarstöðu dollarsins. Sú staðreynd skýrir betur en
annað dæmafáa árasarhneigð þeirra á seinni árum. Staða dollarsins skal varin.
Höfuðglæpur framantalinna ríkja er sá að ógna henni.
Versti
glæpur Saddams Hússein var að auglýsa árið 2000 að hann myndi færa
olíuviðskipti Íraks yfir í evrur eftir fjögur ár. Þremur árum síðar réðust USA
og bandamenn á landið. Síðan hafa fleiri raddir talað fyrir því að hnekkja
stöðu dollarsins, m.a. Vladimir Pútín. Muammar Gaddafí fór fyrir hreyfingu um
ný samtök Afríkuríkja og nýtt
fjármálakerfi þeirra þar sem sameiginlegur gjaldmiðill þeirra yrði
gulldínar í stað dollars. Hreyfing þessi hafði mikið fylgi og beinar aðgerðir
voru undirbúnar – en voru stöðvaðar með innrásinni í Líbíu. Það ríki sem eftir
2005 hefur skýrast og ítrekað hvatt til að hnekkja stöðu dollarsins eru Íranir.
Þeir kalla hann „ekki lengur pening heldur pappírsrusl“. Viðbrögð
heimspressunnar eru að kalla Íran alræðisríki og ógnun við heiminn. Svo koma æ
fleiri refisaðgerðir og æ opinskárri stríðshótanir gegn Íran. Sjáið þið
samhengið?
Trompspil
Vesturveldanna eru tvö: Hernaðaryfirburðir og (vestræna) heimspressan.
Heimspressan er jafn virk í stríðsæsingum og bresk og þýsk blöð voru 1914. Hún
er hljóðfæri sem heimsvaldasinnar spila á. Þeir búa þar til blóraböggla og
skúrka eftir þörfum, búa til tilefni og tækifæri til íhlutana vítt um lönd.
Stóru fréttastofur heimsvaldasinna slá taktinn og yfir 95% vestrænna
fréttamanna hreyfa kjafta sína í þeim takti. Nú gelta þeir um glæpi kerkastjórnarinnar í Íran og Sýrlandsforseta. En t.d. um heimsvaldakerfi
dollarsins? Ekki orð.
Viðbætir
Grein
þessi lá hjá Fréttablaðinu í mánuð. Síðan hefur það gerst að vestræna Blokkin
herðir umsátrið um Sýrland en Rússar og Kínverjar andæfa. Auk þess hefur ESB
sett olíuviðskiptabann á Íran en Íranir beygja sig ekki. Það er merki um að
Bandaríkin hafi tuktað ESB til traustara fylgis við sig. Innan heimskapítalismans hefur lengi
sést viðleitni einstakra hagkerfa til að losna úr heljargreipum
dollarimperíalismans. Sundrungin í aðdraganda Íraksstríðsins 2003 var merki um þetta:
ESB-veldin (einkum Frakkland og Þýskaland) virtust ætla að skora Sam frænda á
hólm og taka tilboði Saddams um olíuviðskipti í evrum. Bush og Obama hafa
svarað með því að ógna eða múta á víxl. Aðgerðirnar gegn Íran eru
sálfræðistríð, til þess hugsað að hræða öll ríki frá því að óhlýðnast stóra
bróður. Staðfesta Írana verður afgerandi um það hversu lengi heljarkrumlur
dollarimperíalismans ná að halda takinu. Tíminn vinnur með Írönum – ef þeir fá
hann.
No comments:
Post a Comment