Showing posts with label kreppa. Show all posts
Showing posts with label kreppa. Show all posts

Thursday, June 18, 2020

Á að reyna „union busting“?

(birtist á Neistum.is 21 maí 2020)
Kjaradeila Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands heldur áfram. FFÍ beygir sig ekki og Icelandair freistar þess að sniðganga FFÍ. Þarna er brennipunktur íslenskrar stéttabaráttu í dag. ASÍ og Efling – stéttarfélag senda flugfreyjum mikilvægar stuðningsyfirlýsingar.
 
Icelandair hefur lýst yfir að það ætli að ná 20% hagræðingu í launakostnaði fyrir hluthafafund 22. maí. og gengur fram af mikilli hörku við flugstéttir. Samist hefur um skerðingar við félög flugmanna og flugvirkja, en Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) hafði ekki beygt sig undir tilsvarandi. FFÍ hefur ítrekað hafnað útspili Icelandair sem félagið segir að feli í sér „tugprósenta launalækkanir og skerðingu á réttindum til frambúðar.“

Icelandair breytir ekki stefnu sinni. „Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins 20. maí skoðar Icelandair möguleika á að stofna nýtt stéttarfélag flugfreyja og samkvæmt Fréttablaðinu hyggst Icelandair láta reyna á forgangsréttarákvæði kjarasamnings FFÍ fyrir félagsdómi náist ekki samningur.“ https://www.ffi.is/ Ef þetta er rétt hermt er ljóst að Icelandair stefnir að því að ráða flugfreyjur sem standa utan Flugfreyjufélags Íslands. Atvinnulausar flugfreyjur eru nú mjög margar, íslenskar og miklu fleiri erlendar. Hvernig Icelandair ætlar að safna liði og stofna stéttarfélag vitum við hins vegar ekki, en við vitum til hvers. Og það blasir við að kjaradeila Icelandair og FFÍ er núna brennipunktur stéttabaráttunnar í landinu. Fordæmisgildið er mikið á báða bóga.

 

ASÍ: sættum okkur ekki við union busting

Drífa Snædal forseti ASÍ sendi í gær, 20. maí, frá sér skorinorða yfirlýsingu af tilefni áðurnefndrar fréttar og þar segir: „Framganga Icelandair í samningaviðræðum við flugfreyjur hefur verið með ólíkindum og er til þess fallin að draga úr almennu trausti í garð þessa rótgróna flugfélags. Þetta er ekki flugfélagið okkar allra sem býður okkur velkomin heim. Við munum ekki sætta okkur við aðferðir sem á ensku eru kallaðar union busting og ganga út á að grafa undan samstöðu launafólks og eyðileggja verkalýðsfélög. Verkalýðshreyfingin mun ekki sitja með hendur í skauti andspænis slíkum aðgerðum.“ https://www.ffi.is/

Efling – stéttarfélag sendi líka þann 20. maí frá sér mikilvæga yfirlýsingu í tilefni af þessari deilu. Þar er þess krafist íslenska ríkið, og einnig lífeyrissjóðir, hafni því að styðja við fyrirtæki sem stundar árásir á lögvarin réttindi verkafólks.

 

Ályktun stjórnar Eflingar vegna kjaradeilu Icelandair og FFÍ:

„Stjórn Eflingar – stéttarfélags lýsir reiði og undrun vegna framgöngu Icelandair í garð flugfreyja og stéttarfélags þeirra, Flugfreyjufélags Íslands, í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður.
     Icelandair hefur að mati stjórnar Eflingar notfært sér óvissu og efnahagssamdrátt vegna Kórónaveirufaraldursins til að klekkja á flugfreyjum á einkar tækifærissinnaðan og ósanngjarnan hátt. Stjórn Eflingar telur að flugfreyjur eins og annað verkafólk innan vébanda ASÍ eigi rétt á sambærilegum kjarasamningi og þeim sem nú er í gildi hjá yfirgnæfandi meirihluta félagsmanna aðildarfélaga ASÍ.
      Fréttir í helstu fjölmiðlum herma að Icelandair hyggist leita leiða til að ráða flugfreyjur utan stéttarfélaga eða jafnvel beita sér fyrir stofnun sérstaks stéttarfélags í þeim tilgangi að geta samið um verri kjör fyrir flugfreyjur.
     Þessir starfshættir eru gróf ögrun við lög, venjur og sameiginlegan skiling aðila sem íslenskur vinnumarkaður byggir á.
     Verkafólk á skýlausan rétt til að bindast samtökum í stéttarfélagi til að semja um sín kaup og kjör. Sá réttur er mannréttindi og er varinn af bæði lögum og stjórnarskrá. Allt verkafólk á ríka hagsmuni af því að standa sameiginlegan vörð um þennan rétt.
     Ætli íslensk stórfyrirtæki nú með aðstoð hins opinbera að hefja árásir á þessi grunnréttindi verkafólks mun Efling – stéttarfélag ekki horfa upp á það þegjandi og hljóðalaust.
     Stjórn Eflingar bendir á að Icelandair er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, sem eru sameiginlegir sjóðir launafólks og undir stjórn þeirra. Lífeyrissjóðir hljóta að hafna því að fjárfesta í fyrirtækjum sem stunda beinar árásir á grunnréttindi launafólks.
     Að sama skapi bendir stjórn Eflingar á að íslenska ríkið heldur nú uppi rekstri Icelandair með beinum stuðningi. Stjórn Eflingar krefst þess að íslenska ríkið, rétt eins og lífeyrissjóðir, hafna því að styðja við fyrirtæki sem stunda árásir á lögvarin réttindi verkafólks.“ Sjá hér.

Icelandair-kjaradeilan og stéttabaráttan eftir Covid

(birtist á Neistum.is 15 maí 2020)
Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa gert með sér nýjan kjarasamning til fimm ára (15/5). Í tilkynningu frá Icelandair segir að samningurinn sé „í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika verulega.“ Samningurinn tryggir m.a. verulega aukið vinnuframlag flugmanna. Bogi Nils Bogason forstjóri orðar það svo: „Þetta er stórt skref til að tryggja samkeppnishæfni félagsins og veigamikill þáttur í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.“ Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, kallar þetta „tímamótasamning“ og bætir við: „Flugmenn eru stoltir af því að hafa náð markmiðunum sem lagt var upp með sem eykur enn á samkeppnishæfni Icelandair.“ https://theworldnews.net/is-news/flugmenn-og-icelandair-gerdu-timamotasamning-i-nott

Björgunaraðgerðir fyrir Icelandair-group hafa verið fyrsta frétt fjölmiðla um skeið. Fyrirtækið rambar á barmi gjaldþrots, en stefnir á að safna 29 milljarða hlutafé fyrir hluthafafund 22. maí. Biðlar m.a. til lífeyrissjóða og enn frekar til ríkisins. Ennfremur: Bogi Nils forstjóri hefur sagt að unnið sé dag og nótt að því að bjarga fyrirtækinu en „að helsta fyrirstaðan fyrir að það takist erum við sjálf, starfsfólkið sem starfar hjá fyrirtækinu.“ Ef bjarga eigi fyrirtækinu verði starfsfólk þess að taka á sig kjaraskerðingar. Stjórn Icelandair hefur gert Flugfreyjufélagi Íslands tilboð sem félagið metur sem allt að 40 prósenta kjaraskerðingu. Samninganefnd félagsins hafnaði tilboðinu en þá sendi Bogi Nils tilboðið bara beint til einstakra félagsmanna!

Þann 11. maí sagði í frétt Morgunblaðsins: „Til að forða Icelandair frá gjaldþroti verða flugfreyjur og flugmenn félagsins að taka á sig launalækkun á bilinu 50-60%. Þá verður nýr kjarasamningur að gilda til fimm ára og vera auk þess uppsegjanlegur að hálfu Icelandair að samningstíma loknum. Þetta segir ráðgjafi eins af stóru hluthöfum Icelandair í Morgunblaðinu í dag.“ https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2020/05/11/stadan_ordin_grafalvarleg/


Hamfarakapítalismi og hnattvæðing
Stórauðvaldið lítur á Covid-kreppuna sem tækifæri til mikilla árása gegn réttindum launafólks. Sú afstaða er skýr í orðum og aðferðum hins prúðmannlega Boga Nils Bogasonar. Aðferðir Icelandair eru í góðum samhljómi við þá „sjokkmeðferð“ sem Naomi Klein hefur lýst best í bókum sínum um aðferðir stórkapítalsins á heimsvísu, einkum við innleiðingu nýfrjálshyggju/markaðshyggju: „Ég nota hugtakið „sjokkkenningin“ til að lýsa hinum ruddalegu aðferðum að nýta sér ráðaleysi almennings eftir sameiginlegt áfall – styrjöld, valdarán, hryðjuverkaárás, markaðshrun eða náttúruhamfarir – til að knýja í gegn róttækar aðgerðir í þágu stórfyrirtækja, oft kallaðar „sjokkmeðferð“ [shock therapy]... Þessi hernaðaraðferð hefur verið þegjandi fylginautur innleiðingar á nýfrjálshyggju í yfir 40 ár.“ https://www.theguardian.com/us-news/2017/jul/06/naomi-klein-how-power-profits-from-disaster

Talskonur flugfreyja benda á að kjaraskerðingarstefna Icelandair sé ekki alveg ný: „þeir eru búnir að bjóða nánast sömu samninga síðan haustið 2018 og það er ástæðan fyrir að ekki hefur verið samið.“ En með tilkomu Covid-19 getur Icelandair sett margfalt afl á bak við kjaraskerðingakröfur sínar. Nákvæmlega eins og Naomi Klein lýsir er það til að „knýja í gegn róttækar aðgerðir í þágu stórfyrirtækja“. Markmiðið er að sjokkera fólk til undirgefni, Covid-19 er verkfærið.

Thursday, May 7, 2020

Covid-faraldur og kreppa. Skoðun

(birt á Neistum 5. maí 2020)

Ísland er nú á miðjum skala yfir dánartíðni vegna Covid-19 í heiminum. Dánartíðnin á heimsvísu sýnist sambærileg við árstíðabundna inflúensu, en viðbrögðin eru alveg ósambærileg. „Aukaverkanir“ heilbrigðisstefnunnar eru kreppa sem er líkleg til að valda miklu meiri þjáningu en veikin sjálf.


Ísland nálægt heimsmeðaltali
Íslensk stjórnvöld stæra sig af glæstum árangri í baráttunni við heimsfaraldurinn Covid-19. Aðeins 10 eru dánir af veikinni á Íslandi (af Covid-19 og öðrum undirliggjandi sjúkdómum), af 357 þúsund manna þjóð. Dánartíðni vegna sjúkdóma er gjarnan mæld sem sem hlutfall af milljón, og íslenska dánartalan tilsvarar 28 eða 29 af milljón.

Our World in Data er rannsóknarstofnun tengd háskólanum í Oxford og ástundar útreikninga um hnattræn vandamál, fátækt, sjúkdóma, hungur, loftslagsbreytingar, stríð m.m. og byggir á gögnum frá European Centre for Disease Prevention and Control. Hún dekkar m.a. Covid-19 frá degi til dags. Skoðum fyrst nokkrar tölur þaðan.

Dánarhlutfall af milljón íbúum vegna Covid-19, staðan 4. maí 2020:
Belgía : 676
Spánn : 540
Ítalía : 477
Svíþjóð : 265
Írland : 263
Bandaríkin : 204
Danmörk : 83
Þýskaland : 80
Íran : 73
Finnland : 41
Brasilía : 33
Allur heimurinn : 31,5
Ísland : 29
Japan : 4,0
Kína : 3,2
Indland : 0,1
Eþíópía : 0,03

Á heimsvísu þann 4. maí voru dáin af veirunni 245 þúsund af 7,8 milljörðum sem þýðir 31,5 af milljón. Ísland er því mjög nærri heimsmeðaltali með 29, en stendur hins vegar mjög vel í samhengi Vestur-Evrópu þar sem dánarhlutfallið er langhæst í heiminum (ásamt Bandaríkjunum) sem sakir standa. https://ourworldindata.org/grapher/rate-confirmed-cases-vs-rate-confirmed-deaths

Þá er þess að geta að Ísland og Vestur-Evrópa eru komin yfir hápunkt sýkingar meðan hún er enn í sókn í sumum heimshlutum. Því má reikna með að Ísland eigi eftir að færast eitthvað hærra upp fyrir heimsmeðaltalið. En Ísland á langt í hjarðónæmi fyrir veirunni, og það veikir árangurinn. Lægri dánartala hér en í öðrum Vestur-Evrópulöndum tengist m.a. því hvað landið er strjálbýlt.


Samanburður við inflúensu
Það eru sem sagt 245 þúsund staðfest dauðsföll úr COVID-19 í heiminum 4.maí. Sjúkdómurinn er skæður og hraðsmitandi en tölurnar verður samt að skoða í samhengi til að skiljast, t.d. í samanburði við aðra sjúkdóma. Samanburður við árstíðabundna inflúensu er nærtækur.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO gaf í desember 2017 út tölur um árstíðabundnar inflúensur fyrir heiminn í heild síðustu áratugi: „Allt að 650 þúsund manns deyr árlega af öndunarfærasjúkdómum tengdum árstíðabundinni inflúensu,“ segir þar.Í þessari skýrslu WHO segir að tölur um árleg dauðsföll fyrir undangenginn áratug sveiflist á bilinu 290-650 þúsund. Inflúensan er nokkuð breytileg frá ári til árs en samkvæmt þessu er Covid-19 ekki mjög fjarri meðalflensu m.t.t. dauðsfalla það sem af er árinu.

Hugleiðingar um Covid-kreppu

(birtist á Neistum 16. apríl 2020)



                                                    Mynd: Shutterstock
Neistar eru kraftasmár fjölmiðill. Af því Neistar mátu það svo nokkrar fyrstu vikur COVID-tímans að veiki þessi þessi væri fremur heilsufarslegt vandamál en hápólitískt sagði ritið fátt um faraldur þann hinn mikla. En þar sem faraldurinn, og enn frekar viðbrögðin við honum, hefur með undaraskjótum hætti orðið þjóðfélagsmál af slíkri stærðargráðu að yfirskyggir allt annað – og af því að þetta hefðu Neistar mátt láta sér skiljast fyrr – þá gerir ritið sjálfsgagnrýni fyrir (næstum) þögn sína um málið.
Og þar sem Neistar búa ekki yfir (og ekki Alþýðufylkingin heldur) neinni samhæfðri stefnu gagnvart COVID-faraldri eða afleiðingum hans verða hér aðeins settar fram nokkrar lausar athugasemdir, á ábyrgð höfundar, og alls engin alhliða úttekt.


Varð skjótt að djúpri kreppu
Bandaríski seðlabankinn (FED) spáði í marslok allt að 32% atvinnuleysi þar í landi eða 47 milljónum atvinnuleysingja á örðum ársfjórðungi 2020. https://www.cnbc.com/2020/03/30/coronavirus-job-losses-could-total-47-million-unemployment-rate-of-32percent-fed-says.html Til að skilja dramatíkina í þeirri tölu má nefna að atvinnuleysið í Bandaríkjunum á 4. áratugnum – í upphafslandi kreppunnar miklu – varð aldrei meira en um 25%. Haft er nú eftir hagstofum OECD að atvinnustarfsemi í næstum öllum hagkerfum heims dragist saman um 25% á meðan hinar víðtæku rekstrarstöðvanir (lockdown) gilda. Tekjutap í tvo til þrjá mánuði hjá smáfyrirtækjum eða sprotafyrirtækjum leiðir af sér neikvæða spírala gjaldþrota og atvinnuleysis. Og eftir þvísem rekstrarstöðvanir og lokanir dragast á langinn verða slíkar afleiðingar meiri.

Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) segir í skýrslu að reikna megi með að 6,3 prósent vinnustunda í heiminum tapist á öðrum ársfjórðungi 2020, sem tilsvarar 195 milljón heilsdagsstörfum. Framkvæmdastjóri ILO, Guy Ryder, segir kórónukreppuna verstu kreppu í 75 ár https://www.ilo.org/global/about-the-ilo/newsroom/news/WCMS_740893/lang--en/index.htm
Samkvæmt svartsýnustu spá sinni fyrir árið 2020 á Íslandi gerir Seðlabankinn ráð fyrir allt að 4,8% samdrætti. Nú þegar hefur Vinnumálastofnun gefið út spá um 14% atvinnuleysi í apríl sem er talsvert hærra hlutfall en var í kreppunni hér á landi á 4. áratug og miklu meira en mesta mánaðaratvinnuleysi eftir fjármálahrunið 2008 (hæst í febrúar 2009, 9,3%). Og nú gerist einmitt það að samfélagslegar lokanir framlengjast með hverri viku sem líður, og neikvæðir spíralar þar með. Að öllum líkindum verður atvinnuleysi í maí verra en í apríl. Og mikið af þessum störfum verður þá varanlega horfið.

Saturday, August 9, 2014

Kreppa auðvaldsskipulagsins

(ræða flutt á ráðstefnu Rauðs vettvangs 10. október 2009, birtist á eggin.is og this.is/nei í nóvember sama ár)

1. Um orsakir kreppunnar

• Sjálfstæðisflokkurinn segir: Hugmyndafræðin og efnahagsstefnan var góð en einstaklingarnir brugðust. Þeir menn yfirtóku því miður sviðið, sem amma Davíðs Oddssonar nefndi „óreiðumenn“.
• Þorvaldur Gylfason segir: Einkavæðingin var vitlaust framkvæmd, enda framkvæmd af spilltri stjórnmálastétt.
• Jóhanna og Steingrímur segja: Það var efnahagsstefna Sjálfstæðisflokksins sem gaf græðginni lausan tauminn og þar með tók græðgin völdin í landinu. En með vinstri menn við stjórnvölinn og með auknu eftirliti má laga kerfið á ný og byggja hér norrænt velferðarkerfi..
Til að byrja með aðeins um græðgina. Það er alveg út í hött að kenna græðginni um kreppuna. Græðgin, gróðasóknin er eina driffjöður kapítalismans. Þar með er hún innsta eðli hans og fjöregg. Án gróðasóknar – enginn kapítalismi. Að kenna græðginni kreppuna er eins og að segja að bílslys hafi stafað  af því að vél var í bílum.
Kreppuskýringar þessa fólks sem ég vísaði til eiga það sameiginlegt að hafa mjög takmarkað sjónarhorn og fókus. Þau segja öll: Þetta var klúður. Þau segja líka öll, nema kannski Sjálfstæðisflokkurinn: Þetta var séríslenskt klúður og hálfvitagangur. Rangir aðilar fengu að ráða ferðinni í fjármálakerfinu og stjórnkerfinu.
Það er ekki séríslenskt að kalla kreppuna klúður. Í hverju landinu af öðru má sjá skýringanna leitað í hagstjórnarmistökum stjórnvalda. Enda hafa fjölmargar ríkisstjórnir ýmist hrökklast frá völdum eða sitja nú við litlar vinsældir og bíða kosninga.
Marxista, hins vegar, dettur ekki í hug að kenna neinu klúðri um yfirstandandi kreppu. Það dygði ekki til, nánast hvar sem væri í hinum kapítalíska heimi, jafnvel þótt eintóm fjármálaséní væru í ríkisstjórn, þá gætu þau ekki stýrt framhjá kreppunni. Hér er nefnilega um að ræða kerfiskreppu, þjóðfélagsskipan í kreppu.

Friday, April 11, 2014

Lýðræðið verst í vök

Lýðræði hentar auðvaldinu illa á krepputímum.Þróun ESB er dæmi um það.ESB er þó alls ekki einangrað, mislukkað dæmi eins og ýmsir kjósa að skoða sambandið, heldur er það á margan hátt dæmigert fyrir þróunina á heimsvísu.
Meðan fullvalda þjóðríki með eru rammi stjórnmála gefur það verkalýðshreyfingu og virkri grasrót möguleika til áhrifa. En yfirþjóðlegar blokkir eins og ESB og NATO taka sér æ meira vald. Þær stjórnast af öflugri þrýstihópum: stórveldum Evrópu, fjármálamörkuðum austan Atlantshafs og vestan, Bilderberg-klúbbnum, World Economic Forum, AGS, Heimsviðskiptastofnuninni o.s. frv. Grasrót og smáríki hafa þar harla litla möguleika til áhrifa. Hagsmunir vestræns stórauðvalds sitja fyrir og menn nálgast þar hreint auðræði. Einkennilegt er að sjá yfirlýsta vinstri menn styðja þessa þróun.
Þessi samþjöppun valdsins í Evrópu gildir ekki eingöngu fyrir lönd með fulla ESB-aðild. Hvort sem við Íslendingar innleiðum 2/3 af regluverki ESB gegnum EES-samninginn - oftast án teljandi umræðu á þingi - eða ögn hærra eða lægra hlutfall er það sannanlega grafalvarlegt afsal á fullveldi landsins og þar með lýðræðinu.
Auðurinn þjappast saman ekki síður en valdið, svo nú eiga 85 auðugustu einstaklingar heims jafn miklar eignir og fátækari helmingur jarðarbúa.
Evrópa hefur þróast hratt til tvískiptingar, kjarnasvæði norðan- og vestanvert og svo jaðarsvæði í austri og suðri. Efnahagskerfi jaðarsins verður undir í samkeppninni, þau lönd verða efnahagslegar hjálendur meðan kjarninn, einkum Þýskaland, þróast sem útflutningshagkerfi. Kapítalískur aflsmunur ræður.
Í kreppu síðustu ára í Evrópu hafa jaðarlöndin orðið ofurskuldug. Þá er lýðræðinu og borgaralegum réttindum miskunnarlaust fórnað. Árið 2011 neyddi fjármálafáveldi Evrópu tvo forsætisráðherra, ítalska Berlusconi og gríska Papandreo, til að segja af sér. Berlusconi hafði sagt að Ítalía gæti e.t.v. ekki greitt skuld sína. ESB skipti honum þá snarlega út og setti Mario Monti, bankastjóra í Goldman Sachs í hans stað. Þegar Papandreo ýjaði að því að þjóð hans ætti e.t.v. að fá að segja álit sitt á kreppuráðstöfunum ESB þá ýtti ESB honum til hliðar og setti varaforseta Evrópska seðlabankans í hans stað.„Þríeykið" - Framkvæmdastjórnin í Brussel plús Evrópski seðlabankinn plús AGS - lagði línuna. Þjóðþing voru einskis spurð. Þingræðinu er ýtt til hliðar þegar það hentar ekki.
Í kreppunni miklu upp úr 1930 jókst vægi grasrótarinnar víða í Evrópu smám saman (þar sem ekki ríkti fasismi) einkum vegna framsóknar róttækrar verkalýðshreyfingar og sósíalískra viðhorfa. En vegna sögulegs undanhalds sósíalismans er nú mikill skortur á mótafli í samfélagið gegn hinu óhefta auðræði.  
Lögregluríkið þróast jafnt og þétt bak við tjöldin. Edward Snowen hefur sýnt og margsannað að bandarískar öryggisstofnanir hafa árum saman njósnað um almenning í eigin landi og um heim allan gegnum Microsoft, Google, Facebook m.m. Bandaríska Þjóðaröryggisstofnunin hlerar Angelu Merkel, en Snowden hefur einnig sýnt að breskar þýskar og meira að segja skandinavískar öryggisstofnanir vinna náið með þeirri bandarísku.Þessi lönd halda þó fram eigin lýðræði sem fyrirmynd. Þetta er skýlaust brot á stjórnarskrá landanna, en hún víkur fyrir þörfum auðs og valds.
Í sunnanverðri Evrópu, þar sem kreppan kemur harðast niður hefur ríkisvaldið tekið að skerða atahafnafrelsi verkalýðshreyfingar og virkrar fjöldahreyfingar. Á Spáni er kreppan hyldjúp. Atvinnuleysi fólks innan 25 ára nálgast 60%, sem eðlilega hefur leitt til mikilla mótmæla. Því svarar ríkisvaldið með harðneskjulegum lögum gegn mótmælaaðgerðum. Lögleidd hafa verið grimmilegar fjársektir t.d. við verkföllum og við því að mótmæla í leyfisleysi nálægt þinginu í Madríd.
Þegar kreppan dýpkar og átök heimsveldanna harðna bruggar Vestrið (USA og ESB-veldin) sterkari meðul. Í Sýrlandi beitir það fyrir sig vígasveitum íslamískra terrorista. Í Úkraínu var löglega kjörinni stjórn steypt með dyggilegri hjálp ESB og Bandaríkjanna. Miklu ofbeldi var beitt við stjórnarskiptin. Vestræn pressa lýsir þessu reyndar sem sigri „lýðræðisins" enda voru það vestrænt sinnuð öfl sem komust að. Helstu flokkarnir í nýrri stjórn eru Föðurlandsflokkur Jatsenjúks forsætisráðherra og Júlíu Tímosjenko fyrrum forsætisráðherra og svo fasistaflokkurinn Svoboda. Ekki þarf að fjölyrða um þann síðarnefnda, þar fara nasistar af gamalli gerð. Hinn er flokkur öfgaþjóðernissinna, afskaplega Rússlands-fjandsamlegra. Tímosjenko hefur verið séstakur talsmaður ESB í Úkraínu, mjög vestrænt sinnuð og frjálslynd að því okkur er sagt. En rússnesk leyniþjónusta náði að hlera og leka til fjölmiðla símtali hennar við samflokksmann sinn þar sem hún segir að útrýma beri Rússunum í Úkraínu og breyta Rússlandi í sviðna jörð! Í háborgum valdsins vestan og austan Atlantshafs eru menn sjálfsagt ekkert hrifnir af fasistum. En allt er hey í harðindum og sem sagt: á krepputímum hentar lýðræðið auðvaldinu illa.

Saturday, January 5, 2013

Vinnumarkaðsumbætur ESB boða harkaleg komandi ár



Saga EBE/ESB er saga um stöðuga viðleitni og endurteknar tilraunir lítillar elítu, þ.e.a.s. klúbba kringum vesturevrópskt stórauðvald, til að smíða sér stærri og voldugri einingu, efnahagslega og pólitíska blokk. Til þess þarf að  brjóta niður skilrúm, opna landamæri, samræma og samhæfa framleiðslukerfi og vinnumarkaðs-regluverk, gera það straumlínulagaðra, ná við það sparnaði og hagræðingu stærðarinnar – til að græða meira á sameiginlegum innri markaði og til að standast betur samkeppni frá öðrum auðvaldsblokkum. 

Tilraunir elítunnar til að smíða pólitískt samband hafa mætt eindreginni andstöðu og tregðu hjá almenningi sem hefur jafnan fellt slíkt ef hann er spurður. Úr því lýðræðisleiðin er ekki fær velur elítan hjáleið: að innleiða sameiginlegan markað – formlega með Maastrict-samningnum 1993 – sleppa markaðsöflunum lausum og láta frjálsa flæðið og samkeppnina sjá um samrunaþróunina. Leiðin liggur framhjá lýðræðinu. Gallinn við pólitíkina er að þar þvælist almenningur endalaust fyrir en á efnahagssviðinu ræður elítan ein (einokunarauðvaldið). Mig langar að nefna fáeina nýlega áfanga á þessari þróunarbraut.

Árið 2000 tók ESB upp sk. Lissabon-stjórnlist (Lisbon strategy) þar sem sett var á dagskrá að gera ESB að „samkeppnishæfasta efnahagskerfi heims“ fyrir árið 2020. Evrópski markaðurinn þurfti að verða meira örvandi fyrir fjárfesta og þar með hagvöxtinn. Sérstakt vígorð var „sveigjanleiki“ og byggðist á þeirri trú að afnám reglna (deregulering) og sveigjanleiki á vinnumarkaði væri lykilatriði í því að auka hagvöxt.

Næsti áfangi var stækkun ESB í austur 2004. Þar fór saman hagræn stórsókn Vesturevrópsks auðmagns inn í gömlu austurblokkina og svo straumur launafólks frá  austri, þar sem verkalýðshreyfing er naumast til. Þeim straumi var ætlað að brjóta upp „ósveigjanleika og reglugerðabákn“ í vestrinu. Í framhaldinu voru framleiðslueiningar fluttar á lágkostnaðarsvæði í austri og/eða að ódýrt vinnuafl streymdi í vestur í krafti hins frjálsa flæðis. Elítan hefur lengi talið að „reglugerðabákn“ á vinnumarkaði hamlaði hagvexti. „Reglugerðabákn“ á vinnumarkaði er samheiti við áunnin fagleg réttindi og því snar þáttur í velferðarkerfinu. Markmiðið var sem sé að brjóta upp heildarkjarasamninga og stranga vinnulöggjöf, og til lengri tíma að losna við kostnaðarsamt velferðarkerfi.

Þegar svo fjármálakreppan 2008 kom til og í framhaldinu evrópska kreppan er hún notuð sama hátt: sem múrbrjótur á fagleg réttindi og velferðargæði. Vinnumarkaðsumbætur eru fyrst innleiddar í þeim löndum Suður-Evrópu þar sem allt er í kaldakoli og niðurskurðarhnífurinn stöðugt blóðugur, og síðan er umbótunum veitt þaðan og inn í hin löndin. Tilskipanirnar frá miðstöðvum ESB verða sí-harkalegri. Nefna má áætlun um fjármálastöðugleika sem nefnd er „Evrópska önnin“ sem Framkvæmdastjórnin sendi út í ársbyrjun, einnig svonefndan „ríkisfjármálasáttmála“ (bann við Keynesisma) frá í mars sl. sem ég fjallaði nokkuð um fyrir viku.

Nú síðast, í september sl., kemur frá Framkvæmdastjórninni skýrsla um „umbætur á vinnumarkaði“.  Sjá hér:
http://ec.europa.eu/economy_finance/publications/european_economy/2012/pdf/ee-2012-5_en.pdf  Þar er fjallað um breyttar reglur á vinnumarkaði sem þegar hafa gengið í gildi í nokkrum aðildarríkjum þar sem kreppan hefur komið harðast niður og lagt er á ráðin um frekari aðgerðir í sama anda. Breytingarnar fela almennt í sér „aukinn sveigjanleika“ þ.e.a.s. afnám reglna á vinnumarkaði. Dæmi: dregið er úr vægi heildarkjarasamninga, boðuð „dreifð samningagerð“ þar sem einstök fyrirtæki geta samið um kjör utan kjarasamninga og bein inngrip ríkisstjórna um kaup og kjör eru daglegt brauð (um þetta er fjallað í skýrslunni á bls 48–60).

Samband evrópskra verkalýðsfélaga (European Trade Union Confederation, ETUC) er regnhlífarsamtök verkalýðshreyfinga innan ESB. Sambandið rekur rannsókna- og námsstofnunina ETUI. Á vegum hennar hefur nú verið gerð rannsókn á þessum vinnumarkaðsumbótum sem flæða yfir lönd sambandsins í kreppunni. Niðurstaða þeirrar rannsóknar er að umbæturnar hafi í för með sér meiri ójöfnuð og meira óöryggi í Evrópulöndum. Rannsóknarskýrsluna má sjá hér:
http://www.etui.org/Publications2/Working-Papers/The-crisis-and-national-labour-law-reforms-a-mapping-exercise  Danska netsíðan „EU-fagligt netværk“, sem er ESB-gagnrýnin, dregur skýrsluna saman og segir m.a.:

„Krafan um umbætur hefur hljómað árum saman frá ESB-kerfinu, en í núverandi kreppu hafa kröfurnar um „sveigjanlegri vinnumarkað“ harðnað. ESB leikur beint og virkt hlutverk í því að grafa undan faglegum réttindum í Grikklandi, Írlandi og Portúgal eins og skýrslan sýnir. Löndunum er ekki bara þröngvað til að breyta reglunum um vinnumarkaðinn heldur einnig félagsmálakerfinu (styttri dagpeningagreiðslur, lægri bætur, hækkaður lífeyrisaldur, lækkaðar lífeyrisgreiðslur).

Umbæturnar nú eru svo umfangsmiklar að þær ógna beinlínis hinni svonefndu „evrópsku samfélagsgerð“ segja skýrsluhöfundarnir tveir frá ETUI. Skýrslan bendir á nokkrar almennar tilhneigingar til afnáms reglna á vinnumarkaði aðildarlandanna og fjallar um þróunina í 24 löndum. ETUI bendir á að umbæturnar séu í mörgum tilfellum teknar upp án lýðræðislegs lögmætis og án tillits til hefða í viðkomandi löndum. Í mörgum tilfellum eru umbæturnar samþykktar án þess að verkalýðshreyfingin sé höfð með í ráðum eins og annars er venja.“

Það er ástæða til að undirstrika að skýrsla þessi sem er samhangandi aðvörunaróp er ekki samin af stofnun sem yfirleitt ástundar ESB-gagnrýni heldur er stofnunin hluti af ESB-batteríinu og hefur stutt samrunaferlið til þessa. En niðurstaðan er enn á ný þessi: Elítan notar vald sitt í efnahagslífinu til að leggja leiðina framhjá lýðræðinu. Eins og samkeppnin og frjálsa flæðið áður er kreppan nú notuð eins og gegnið getur sem múrbrjótur gegn verkalýðshreyfingunni og og áunnum réttindum hennar. 

Saturday, December 22, 2012

Nýjar skýrslur ESB boða harkalegan Thatcherisma


Kreppan í Evrópu dýpkar. Skoðum hvernig ESB-valdið bregst við henni. Í áranna rás hafa komið fram tvær meginaðferðir til að fást við auðvaldskreppu. Annars vegar er það aðferð frjálshyggju og nýklassíkur sem vill „spara sig út úr kreppunni", svara samdrætti í framleiðslu með sparnaði á eftirspurnarhliðinni, þ.e.a.s. með kjaraskerðingum og niðurskurði. Gegn þessu setti Bretinn J.M. Keynes fram stefnu um virkt ríkisvald sem skyldi vinna gegn hagsveiflum: með niðurskurði útgjalda og niðurkælingu hagkerfis á þenslutímum en hallarekstri ríkissjóðs og auknum ríkisumsvifum (skapar aukna eftirspurn) á samdráttartímum og í kreppu.
Þessi seinni stefna er oft kennd við kreppupólitík Roosevelts, en í Evrópu er hún einkum tengd sósíaldemókrötum sem töldu að með hjálp hennar mætti temja óstjórn kapítalísks markaðar og hindra ofþenslu jafnt sem kreppu. Sósíaldemókratar hafa á tímabilum staðið mjög sterkt í ESB. Til dæmis sátu þeir árið 1999  í 13 af 15 ríkisstjórnum sambandsins. Það kom ekki í veg fyrir ofþenslu og svo kreppu í ESB. Ekki nóg með það, nú ber lítið sem ekkert á Keynesisma í kreppuviðbrögðum innan ESB.
Þvert á móti. Þann 2.mars 2012 undirrituðu 25 af 27 leiðtogum ESB-ríkja svokallaðan ríkisfjármálasáttmála. Þar kemur fram að ríkishalli aðildarríkja megi helst ekki fara yfir 0.5%, og fari hann eitthvert ár yfir 3% eru viðlagðar þungar sektir. Þegar sú stefna var samþykkt dró danska Information þessa ályktun: „Leiðtogafundur ESB samþykkti að úthýsa meginþáttum velferðarhagfræði-kenninga breska hagfræðingsins Keynes af evrópska meginlandinu..." (information.dk 30. jan 2012).  Sáttmáli þessi sem bannar Keynesisma er nú lög í aðildarríkjum ESB.
Vegna áhrifa hægri krata hefur verkalýðshreyfingin lengi stutt samrunaferlið í Evrópu  og stefnuna og stofnanirnar í Brussel. En það er að breytast. Aðgerðir verkalýðssamtakanna gegn hinum blóðuga niðurskurði fara vaxandi, einkum í Suður-Evrópu þar sem kreppan kemur harðast niður. Sláandi dæmi um breytta tíma er allsherjarverkfall í sex ESB-löndum samtímis - Spáni, Portúgal, Ítalíu, Grikklandi, Kýpur og Möltu - þann 14. nóvember sl.
Ekki sitja menn aðgerðarlausir í hinum herbúðunum. Í september í haust sendi Framkvæmdastjórn ESB frá sér tvær skýrslur sem hafa vakið reiði og óhug í evrópskri verkalýðshreyfingu. Önnur þeirra fjallaði um ástandið á evrópskum vinnumarkaði ásamt tillögum um „skipulagsumbætur" á honum. Tillögurnar mynda heildstætt kerfi, meðal þess sem lagt er til er að lækka lágmarkslaun, draga úr vægi heildarkjarasamninga, vinnumarkaðurinn verði sveigjanlegri með sveigjanlegri vinnutíma, fyrirtæki geti sagt upp samningum, meira verði um staðbundna samninga, atvinnuleysisbætur verði lækkaðar en eftirlaunaaldur hækkaður. Í skýrslunni er almennt lagt til „almenn takmörkun á áhrifum stéttarfélaganna á ákvörðun launa."
Tillögur Framkvæmdastjórnarinnar varðandi vinnumarkaðinn eru ekki eru misskilin kreppuviðbrögð. Þau eru í anda frjálshyggju, það er rétt. Alveg eins og ríkisfjármálasáttmálinn. En það er meðvitað. Tillögurnar fela einfaldlega í sér stríðsyfirlýsingu gegn verkalýðshreyfingunni í því augnamiði að brjóta hana á bak aftur, í anda Margrétar Thatcher.  Evrópska stórauðvaldið undir forustu „Þríeykisins" (Troika) Framkvæmdastjórnar, Evrópska seðlabankans og AGS mætir hinni dýpkandi kreppu með stéttastríði. Veður gerast nú válynd.
Að þessu sögðu þarf að geta þess að sk. Keynesismi eftirstríðsáranna - með virku ríkisvaldi, m.a. útgjöldum til velferðarmála - varð ekki til í fílabeinsturni hagspekinnar. Hann var útkoma sterkrar verkalýðshreyfingar, stéttaátaka og síðan málamiðlana. Og aðeins þannig má vænta hans aftur, á Íslandi, í ESB eða annar staðar. Ekkert fæst ókeypis, sérhvern ávinning þarf að knýja fram. En í ESB nú um stundir  ber þó meira á sókn auðvaldsaflanna. / ÞH

Wednesday, November 21, 2012

Andstæður hins evrópska markaðar


(Birtist á Vinstri vaktin gegn ESB 17. nóv. 2012)

Þróun ESB var og er prófsteinn á hugmyndina um fríverslun og opnar gáttir: að óheft samkeppni á fjölþjóðlegum markaði, fjölþjóðleg verkaskipting og óheft viðskipti leiði til mesta hagvaxtar fyrir alla aðila. Þetta var ein grunnhugmynd frjálshyggjunnar á dögum Adams Smith og hún er það enn í hnattvæðingarbylgju undanfarinna tveggja áratuga. Það má kalla hana hnattvæðingarreglu nr. 1.  Helstu múrbrjótar þeirrar hugmyndafræði á heimsvísu hafa verið AGS, GATT og Heimsviðskiptastofnunin (WTO), stofnanir sem ganga erinda vestræns stórauðvalds. Með hjálp þeirra hafa hagkerfi byggð á grunni sjálfstæðra (smárra og meðalstórra) þjóðríkja verið brotin upp og þvinguð til að sveigja sig að hnattvæddum markaði. Í því umhverfi er leið landa til sjálfstyrkjandi þróunar torfærari en nokkru sinni.  

Í okkar heimshluta er múrbrjótur hnattvæðingarreglunnar ESB og hefur gengið hreint til verks: hin óhefta samkeppni ræður nú ríkjum innan sambandsins. ESB er einn helsti tilraunareiturinn fyrir aðferðir frjálshyggju og hnattvæðingar. Með frjálsu flæði vöru og fjármagns milli landa – og þegar við bætist sameiginlegur gjaldmiðill – er markaðurinn orðinn einn og öll vernd horfin. Þetta gildir um allt EES-svæðið (vissar atvinnugreinar þó teknar út fyrir sviga í EFTA-ríkjunum).

Samkvæmt kenningunni ætti allt svæðið jafnt að njóta góðs af þessu frelsi. Á þenslutímum má telja fólki trú um að hinar opnu gáttir skapi öllum svæðum hagvöxt en á samdráttartímum sést veruleikinn skýrar. Hinn sameiginlegi markaður skiptist nefnilega í tvennt: í kjarnasvæði norðan og vestanvert í Evrópu og svo jaðarsvæði í austri og suðri (auk Írlands). Efnahagskerfi jaðarsins verður undir í samkeppninni meðan kjarninn, einkum Þýskaland, blæs út sem útflutningshagkerfi. Jaðarlöndin verða efnahagslegar hjálendur, nálægt stöðu nýlendunnar. Hin ójafna samkeppni virkar sem tæki til eignatilfærslu og arðráns. Virðisaukinn lendir allur í kjarnalandinu en dregur þróttinn úr hinu. Dæmigerð, harkaleg auðvaldssamþjöppun. Það segir t.d. sína sögu að nánast allt fjármálakerfi ESB-ríkja í Austur-Evrópu er nú í eigu vestrænna banka.

Bæði fyrir og eftir kreppu hefur þessi breikkandi gjá milli sterkra og veikra verið brúuð með miklu flæði lánsfjármagns frá kjarna til jaðars (svo kaupa megi fleiri þýskar vörur). Sem aðeins frestar hinum félagslega vanda. Þegar ríkisstjórnir hjálendnanna ráða ekki við lýðinn er því svarað með aukinni miðstýringu og fullveldið er framselt enn frekar. Pólitísk valdasamþjöppun er hið sérstæða við þetta ríkjasamband, og er það sem mestan óhug vekur.

Kreppan í Grikklandi og Suður-Evrópu er gjarnast skýrð sem staðbundin óstjórn. Við fáum að heyra í útvarpinu að Grikkir vinni lítið, taki ellistyrkinn snemma og skuldir þeirra stafi af rándýru, „sósíalísku“ velferðarkerfi. En þetta stenst ekki. Vinnutími Grikkja er víst sá lengsti á Evrusvæðinu (og Þjóðverja sá næststysti). Eftirlaunaaldur þeirra (virkur) er um meðaltal á evrusvæðinu og einnig útgjöld hins opinbera til trygginga- og heilbrigðismála. Nei. Ef greina á meinsemdir ESB-kerfisins, hvað þá lækna það, verður þess vegna að reiða miklu hærra til höggs.

Vinstri vaktin gegn ESB

Saturday, November 10, 2012

Fjármálavæðingin og móthverfur kapítalismans


(Birtist á eggin.is 13. ágúst 2010)

Í áramótaávarpi sínu sagði Jóhanna Sigurðardóttir  m.a.: „Hugmyndir eru máttugar, bæði til góðs og ills…. Þannig hefur sú hugmynd leikið okkur grátt að gróði og arður til hluthafa sé helsta stýriafl og drifkraftur fyrirtækja.“ Hún talaði eins og þetta væri  hugmynd sem hefði nýlega orðið til á Íslandi, í aðdraganda hrunsins og hefði svo leitt til hrunsins. En hún var í raun að lýsa hversdagslegri hegðun dæmigerðustu kapítalista um heim allan.

Eldri samfélög manna framleiddu út frá þörfum sínum, út frá notagildi framleiðslunnar. Aftur á móti eru það sögulelgar forsendur auðvaldsskipulagsins að kapítalistinn framleiðir fyrst og síðast til að græða peninga. Hann horfir ekki á notagildi framleiðslunnar heldur skiptagildi hlutanna, markaðsgildi þeirra, af því hann framleiðir vörur fyrir markað. Vöruframleiðslan er kjarni auðvaldsskipulagsins og varan er grunneining (fruma) þess, samkvæmt skilgreininu Karls Marx.

Fókus auðherrans á peningana hefur orðið eindregnari í tímans rás. Í upphafi iðnaðarkapítalismans var var auðherrann gjarnan uppteknari af framleiðslunni sem slíkri og hægfara uppbyggingu fyrirtækis en með þróun hlutabréfamarkaða urðu peningarnir eina áhugasvið hans. Hvað framleitt er skiptir hann þá litlu máli. Í þessum forsendum liggja spírur kreppunnar. Marx orðaði það svo:

„Framleiðsluferlið er fyrir kapítalistann aðeins óhjákvæmilegur milliliður, ill nausyn til að hann geti grætt peninga. Allar auðvaldsþjóðir eru þess vegna á tímabilum undirlagðar örvæntingarfullum tilraunum til að græða peninga án þess að leggja leið gegnum framleiðsluferlið.“ (Capital, volume II, bls. 58, Moskva 1971)

Móthverfan milli framleiðslukerfis (raunhagkerfis) og fjármálageirans er ein af mörgum móthverfum kapítalismans. Hún birtist t.d. þannig að framleiðslugreinar flytjast burt frá þróuðum (vestrænum) auðvaldslöndum en á móti kermur vöxtur fjármálageirans þar. Fjármálageirinn tekur til sín sístærri hluta af sameiginlegum gróða efnahagaskerfisins, ekki síst á kostnað framleiðslugeirans. Hin gríðarlega þensla fjármálageirans er mesta og mikilvægasta breyting sem orðið hefur á kapítalismanum á síðustu 3-4 áratugum. Þetta nefna ýmsir, m.a. margir marxistar, fjármálavæðingu. Móthverfan bistist einnig þannig að gömul og gild fyrirtæki í framleiðslu og þjónustu háþróaðra auðvaldsríkja verða að eignarhalds- og fjárfestingarfélögum. Það að fjárfesta og eiga verður aðalverkefni þeirra í stað framleiðslu og rekstrar. Dæmi um slíkt úr íslensku efnahagslífi eru fjárfestingafélagið Exista, sem þróaðist upp úr fiskvinnslufyrirtækinu Bakkavör og varð svo stærsti eigandi í Kaupþingi banka. FL group og seinna Stoðir voru fjárfestingarfyrirtæki sem þróuðust upp úr flugrekstrarfélaginu Flugleiðum.

Samkvæmt Wikipediu er fjármálavæðingin fólgin í „..vaxandi yfirdrottnun fjármálageirans í efnahagslífinu í heild…, drottnunarstöðu verðbréfa á markaði og hlutabréfa meðal heildarfjármagnseigna, yfirráðum hlutabréfamarkaðarins yfir fyrirtækjum…“ Annað einkenni fjármálavæðingar er sprengjukenndur vöxtur einkaskulda sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu. Sístækkandi hluti af efnahagskerfum heims gengur fyrir lánum og skuldum.

Ofangreind móthverfa er ekki sú eina í efnahagskerfinu enda er auðvaldskerfið allt krossprungið af innri móthverfum. Hún er ekki heldur sú mikilvægasta. En á ríkjandi þróunarstigi, við ríkjandi fjármálavæðingu, er þessi móthverfa mikilvæg og verkar á margar aðrar.

Ein mikils háttar móthverfa er sú á milli hraðvaxandi afkastagetu framleiðslukerfisins og kaupgetu þegnanna sem vex miklu hægar. Í þessari móthverfu liggur grunnurinn að þeirri krepputilhneigingu auðvaldskerfisins sem sífellt vofir yfir því og á tímabilum ríður því eins og mara. Ýmsir spekingar – hagfræðingar sem aðrir – tala um fjármálavæðinguna sem orsök núverandi kreppu. Aðrir benda á nýfrjálshyggjuna. Það er misskilningur. Orsakir kreppunnar liggja í nokkrum eðlislægum móthverfum kerfisins, ekki síst þeirri sem hér var nefnd. Frjálshyggjubyltingin kringum 1980 var hugmyndafræðileg viðbrögð auðstéttarinnar við samdrætti og lækkandi arðsemi fjárfestinga þegar svonefnd „gullöld“ eftirstríðsáranna var liðin hjá. Fjármálavæðingin var viðbrögð við hinu sama. Af þessum tveimur systrum var fjármálavæðingin djúptækari af því hún fól í sér breytingu á efnahagskerfinu á meðan frjálshyggjan er hugmyndafræðilegs eðlis. Hvorug þeirra systra er nýfædd – þær hafa báðar lengi gegnt hlutverki í kapítalismanum – en  vöxtur þeirra felur í sér áherslubreytingar og formbreytingar í auðvaldskerfinu.

Fjármálavæðingin er afleidd beint af áðurnefndri móthverfu milli afkastagetu og kaupgetu: Þegar eftirspurn þegnanna dregst saman eða hefur ekki undan hraðvaxandi afkastagetu er hægt að halda henni uppi með því að bjóða þegnunum lán – vafninga, afleiður, kúlulán… Fjármálageiri nútímans byggist á að hirða gróða beint af persónulegum tekjum vinnandi fólks og annarra samfélagsþegna, gegnum lán, vexti, þóknanir og gjöld. Þetta þenur út markaðinn tímabundið en til lengdar kemur þetta niður á kaupgetu þegnanna og skerpir umrædda móthverfu enn frekar.

Þenslan var fyrst og fremst rekin áfram af græðgi fjármálaauðvaldsins. Á þensluárunum eftir aldamótin 2000 tók við villt spákaupmennska – þetta sem Marx í fyrrnefndri tilvitnun kallaði „örvæntingarfulla tilraun til að græða peninga án þess að leggja leiðina gegnum framleiðsluferlið.“ Til varð bóla – á hefðbundnum sviðum: á hlutabréfamarkaði og á húsnæðismarkaði. Hún var drifin áfram á uppskrúfuðum væntingum og skuldsetningu – lengra en svo að nokkur von væri um endurgreiðslu. Tryllt lánaþenslan endaði svo óhjákvæmilega á að reka fjármálakerfin fram af hengifluginu.

Fjármálavæðingin er sem sagt tilraun auðvaldsins til að þenja út markaðina. Hún er hugsuð sem úrlausn úr vanda efnahagslegs samdráttar. Hún getur skapað tímabundna þenslu. En kaup og sala á hlutabréfum og skuldavafningum skapa engin verðmæti. Eins og aðrar greinar efnahagslífsins lifir fjármálageirinn einvörðungu af verðmætasköpun þess launafólks sem vinnur framleiðin störf. Þensla fjármálageirans er merki um að stig arðráns á því fólki hafi hækkað, og afætum fjölgað.  Í stað þess að leysa vanda auðvaldsins skerpir fjármálavæðingin krepputilhneigingu kerfisins. Tilraunir auðvaldsins til að búa til peninga úr loftinu takast ekki til lengdar. Fjármálakreppan síðan 2008 staðfestir það. Í stað þess að leysa vandann skerpir fjármálavæðingin krepputilhneigingu kerfisins.

Loks er að nefna það að fjármálavæðingin opinberar og skerpir mikilvægustsu móthverfu kapítalismans – á milli félagslegs eðlis framleiðslunnar og einkaeignar á framleiðslutækjum. Í fyrsta lagi fylgir fjármálavæðingunni meiri samþjöppun eigna og auðmagns en nokkru sinni áður – innan einstakra landa og ekki síður á heimsvísu gegnum hnattvæðinguna. Auðhringarnir stækka hratt. Yfirþjóðlegar stofnanir (AGS, Heimsviðskiptastofnunin, OECD, NATO..) taka að sér meira og meira vald til að reyna að hemja stjórnleysi markaðarins – og hefta sjálfstæði þjóðríkja. Það sést jafnvel vísir að einni alheimsstjórn þrátt fyrir samkeppni einstakra eininga. Hins vegar birtist í fjármálavæðingunni morgunljóst og skýrt afætueðli austéttarinnar. Einmitt í fjármálavæðingunni kemur stéttin nakin fam: sem gráðug og spillt þjóðfélagsstétt sem mergsýgur fólk og náttúru. Samfélagslega nytjalaus skepna. Sú var tíðin að borgarastéttin var kennd við sparsemi og meinlætalifnað. En það var á 17 og 18. öld. Nú hefur stéttin svipuð afætu- og úrkynjunareinkenni og franski aðallinn í aðdraganda frönsku byltingarinnar.

Ég skrifaði bækling um fjármálavæðinguna á Íslandi (Fjármálavæðingin á Íslandi. Dæmigerð þróun frekar en undantekning). Það sem bæklingurinn sýnir er tvennt: Annars vegar að íslenska þróunin er í fyllsta samræmi við ríkjandi þróunarstefnu vestræns kapítalisma. Hins vegar að sú þróun sprettur beint af innbyggðum móthverfum auðvaldskerefisins. Þessar tvær niðurstöður mæla sterklega gegn ríkjandi skýringu á fjármálakreppunni, nefnilega þeirri að kreppan sé „séríslenskt klúður“. Að baki kenningunni um „séríslenska klúðrið“ búa nokkrar aðrar kenningar og meginályktanir.
a)     af því kreppan á Íslandi stafaði af mannlegum mistökum er hún auðvaldskerfinu óviðkomandi.
b)    hún varð vegna óskynsamlegrar efnahagsstjórnar, með skynsamlegri stjórn í landinu má komast hjá kreppum.
c)     Auðstéttin skal áfram ráðskast með atvinnutækin, en hún þarf bara að standa sig betur.
d)    Brýnasta verkefnið er að endurreisa fjármálakerfið. Svo brýnt er það á alþjóðlega vísu að það opinbera fé sem dælt hefeur verið inn í bankakerfið í Bandaríkjunum, Bretlandi og evruríkjunum frá 2008 nemur 14.000 milljörðum dollara. Það mun tilsvara ¼ af vergri þjóðarframleiðslu allra landa heims.

Auðvaldskreppur hafa oft reynst tími endurmats – ekki síst hjá auðstéttinni sjálfri. Í kreppunni á 4. Áratugnum fæddist Keynesisminn, sem tók stefnu á skynsemisstýrðan velferðarkapítalisma. Eftir samdráttinn á 8. áratugnum kenndan við olíukreppu fæddist  pólitísk bylting nýfrjálshyggjunnar – og samtímis því byrjaði fjármálavæðingin. En í núverandi kreppu hefur ekki verið fitjað upp á neinu nýju svo séð verði. Nýsköpunin í hagstjórn og þjóðfélagsmálum er jafnlítil hvort heldur menn tala út um hægra eða vinstra munnvikið. Það undirstrikar væntanlega sögulegt úrræðaleysi auðstéttarinnar, þótt auðvitað sé of snemmt að afskrifa alveg andans getu hennar.

En þurfum við að bíða eftir nýrri snjallri útgönguleið auðstéttarinnnar úr kreppunni? Hitt er meira spennandi hvort kreppan verður tilefni til endursköpunar í herbúðum alþýðunnar. Til þess verður gagnrýnin að hætta að takmarka sig við spillingu og klúður og fara að snúast um arðránskerfið sjálft. Vissar framfarir eiga sér stað. Á Íslandi og á Vesturlöndum er auðvaldskerfið til umræðu á ný en var það alls ekki fyrir 5 árum. Það er byrjun en við verðum að taka ný og stærri skref. Þótt auðvaldskerfið sé rotið mun það ekki hrynja af sjálfu sér. Í fyrsta lagi verður að endurvekja baráttuna í samtökum launafólks og aðra fjöldabaráttu. Í öðru lagi verður að endurnýja sósíalíska hreyfingu og sósíalískt prógram um hinn þjóðfélagslega valkost. Annars rotnum við sjálf með kerfinu sem við búum við.

Monday, November 5, 2012

Þjóðfélagsskipan í kreppu


(birtist á marxismi.com apríl 2009 og eggin.is ágúst 2009)


Hannes Hólmsteinn Gissurarson finnur orsakir núverandi kreppu í einu tæknilegu atriði, bandarískum húsnæðismálasjóðum (með upphaf í efnahagsstefnu Clinton-stjórnarinnar) sem veittu undirmálsfólki undimálslán (sjá hannesgi.blog.is – leitið að orðinu „undirmálslán“). Óstjórn, vanhæfni og spilling íslenskra ráðamanna er orsökin segja aðrir. „Spillt stjórnmálastétt“ segir Þorvaldur Gylfason. Gamaldags, borgaralegir og íhaldssamir umbótasinnar eins og Ragnar Önundarson greina á milli „féfletta“ sem stunda spákaupmennsku af fíkn og „alvöru fjárfesta“, og segir að þeir fyrrnefndu hafi orðið ofan á eftir aðsteðjandi sókn frjálshyggjunnar fyrir áratug eða rúmlega það. Þingmenn VG taka undir þetta og kenna um hægrisinnaðri stjórnarstefnu, „eftirlitslausu ríkisvaldi frjálshyggjunnar“. Þeir bæta við að með því að kjósa vinstristjórn megi endurbæta auðvaldskerfið, sníða af því vankanta og smyrja legur og reka það síðan sem skynsamlegan kapítalsima eða „blandað hagkerfi“, laust við stjórnleysi markaðarins, og væntanlega laust við bæði kreppur og misrétti. Þeir benda á Skandinavíu og vísa stundum í breska hagfræðinginn John M. Keynes. Loks koma prestar og siðapostular og tala um „græðgisvæðingu samfélagsins“ sem skýringu á ofvexti bankanna og vilja hefðja almenna siðvæðingu. Engin þessara skýringa leitar orsakanna í grundvellinum sem undir býr, í hagkerfi og þjóðfélagsskipan auðvaldsins.