Össur Skarphéðinsson kallar NATO-fundinn í Lissabon
„heimssögulegan“. Í Fréttablaðsgrein 23. nóvember nefnir hann tvennt
mikilvægast í „nýju grunnstefnunni“: a) barátta við „hermdarverk sem í dag er
mesta ógnun við stöðugleika og frið“ og b) „gerbreytt skotflaugavarnarkerfi“
til varnar Vesturlöndum og Rússum – sem nú féllust í faðma.
Stóra
verkefni NATO núna er stríðið í Afganistan (og Pakistan). Innrásarherinn telur
100 000 bandaríska hermenn og 50 000 frá öðrum NATO-ríkjum. Uppistaðan í
síðarnefndu tölunni kemur frá 38 Evrópuríkjum. Innrásarherinn er nú þrefalt fjölmennari
en hann var þegar Barack Obama tók við keflinu af Bush, og miklu skiptir
stóraukin þátttaka Evrópulanda. Listi „viljugra þjóða“ hefur í raun lengst
mjög.
Meginmálið
varðandi Afganistan var að færa aftur allar dagsetningar um heimkvaðningu
herja. Í stað verulegrar heimkvaðningar um mitt ár 2011 eru nú nefnd árslok
2014. Þá verður hernámið orðið 13 ára. Yfirmaður breska heraflans Sir David Richards sagði stuttu fyrir fundinn: „NATO verður að búa
sig undir 30 til 40 ára hlutverk við að hjálpa afgönsku hersveitunum…“ (Daily
Mail, 15. nóv). Í grein í Fréttablaðinu 20. nóvember skrifar Obama að NATO
þurfi að „stofna til varanlegrar samvinnu við Afganistan“.
Á
gunnfána Bandaríkjanna og NATO er letrað „stríð gegn hryðjuverkum“. Þegar Sovétríkin
hrundu 1991 var mikill vandi á höndum. Réttlætingu vantaði fyrir 700
bandarískum herstöðvum vítt um hnöttinn og áframhaldandi tilvist NATO. Heimsvaldasinnar
þurfa sýnilegan óvin og vanti hann þarf að búa hann til. Hann var fundinn í formi
alþjóðlegs samsæris múslímskra hryðjuverkamanna, en sem kunnugt er liggja mestu
olíulindir heims í löndum múslima. Enda segin saga: hvar
sem heimsvaldasinnar síðan (beint eða gegnum staðgengla) hafa ruðst inn á
olíuauðug svæði, í Afganistan, Írak, Sómalíu, Súdan, Jemen m.m., hafa þeir
fyrst „fundið“ þar dularfulla og hættulega íslamista, yfirleitt undir nafninu
Al-Kaída. Það segir sína sögu að CIA-menn hafa nýlega metið það svo sjálfir
að í Afganistan séu mesta lagi 50
til 100 félagar í Al-Kaída. Þeir nota það nú sem rök fyrir útvíkkun stríðsins til
Pakistans (ABC News, 27 júní sl.).
Með því að veifa
vígorðinu „stríð gegn hryðjuverkum“ vinna vestræn auðvaldsríki tvennt:
Skálkaskjól til að taka þátt í ábatasömum ránsleiðöngrum með öflugustu vígvél
heims og skálkaskjól til að skerða borgaraleg réttindi heima fyrir. Össur lýsti yfir
stuðningi við „stríð gegn hryðjuverkum“ með þessum orðum: „Sarkozy,
Frakklandsforseti, kvað skýrt að orði, og sagði að mesta sameiginlega ógnin við
Rússland og þjóðir Atlantshafsbandalagsins stafaði af framferði ofbeldisfullra
múslímskra öfgasamtaka.“ Með slíkri framsetningu án meðfylgjandi athugasemda
eða efasemda gerir Össur þau orð að sínum.
„Eitt
af því sem Rússar vilja eiga samstarf við bandalagsþjóðirnar að uppfylltum
skilyrðum er gerbreytt skotflaugavarnakerfi, sem á að verjast hugsanlegri ógn
frá þeim 27 þjóðum, sem taldar eru búa yfir skotflaugum sem gætu á átakatímum
ógnað íbúum Vesturlanda, og Rússa. Nokkrir þjóðarleiðtoganna hikuðu ekki við að
nefna þar sérstaklega Íran og Sýrland.“ Segir utanríkisráðherrann
athugasemdalaust.
Meinar
Össur með hönd á hjarta að einhver 27 ríki ógni Vesturlöndum? Og þar af séu Íran
og Sýrland hættulegust? Hann kallar skotflaugavarnarkerfið „gerólíkt“ kerfinu
sem Bush lagði upp með. Obama sjálfur segir að nýja gerðin sé „sterkari, kænni
og hraðvirkari vörn fyrir bandaríska heri og bandamenn þeirra… en fyrri gerðin“
(New York Times 17/9 2009). Kerfið
sem er í uppbyggingu verður inni á gafli Rússa, frá Eystrasaltslöndum um
Pólland, Tékkland, Rúmeníu og Búlgaríu. Auk þess er í uppbyggingu þéttriðið
skotflaugakerfi um Miðausturlönd, og kringum Íran sérstaklega, og frá skipum á
öllum aðliggjandi hafsvæðum. „Gerólíkt“? Meinlausara?
Össur
túlkar Lissabonfundinn sem svo að ágreiningur við Rússa hafi verið jafnaður. Ég
túlka hann hins vegar þannig að Rússar hafi beygt sig í duftið fyrir því
ógnarveldi sem króar þá inni. Frá 1990 hafa Bandaríkin og NATO flutt vígstöðvar
sínar í austur, komið sér upp æ fleiri nýjum herstöðvum í gömlu lýðveldum og
fylgiríkjum Sovétríkjanna. Pútín reyndi að mynda ný bandalög gegn því sem hann
kallaði „einpóla heimur“. Medvedev lét af þeirri stefnu í sumar þegar hann ásamt
Kínverjum gekkst inn á harðar refsiaðgerðir gegn Íran, og þangað beinast nú
spjótin meira ógnandi en nokkru sinni.
Í Lissabon kom NATO í
fyrsta sinn opinskátt fram sem hnattrænt bandalag, og myndar nú meginstoð í
gífurlega miðstýrðu einpóla, alþjóðlegu valdakerfi. Sá valdapóll þolir ekki óháða
utanríkisstefnu nokkurs ríkis, ekki einu sinni mótþróa. Ágreiningsmál eru leyst
með valdboði hinna sterku í bandalaginu og með hervaldi þegar með þarf. Stefna
Medvedevs á Lissabonfundinum sýnist mér vera friðkaupastefna, ekki ólík því er
Chamberlain þóttist hafa keypt „frið á okkar tímum“ í München 1938. Ekki sefaði
það hungur úlfsins.
No comments:
Post a Comment