(Birtist á eggin.is 28.okt 2010)
Ísland er
auðvaldsríki. Í slíku efnahagskerfi fylgir valdið auðnum, liggur hjá
auðstéttinni. Síðustu tvo áratugi hefur það einkum safnast hjá fjármálavaldinu
– innlendu sem erlendu. Ríkisvaldið þjónar þessu efnahagskerfi og ríkjandi
auðsamsteypum – innlendum og erlendum. Þá breytir það litlu til eða frá hvaða
flokkar skipar ríkisstjórn.
Aðgerðir núverandi
vinstristjórnar eru skólabókardæmi: Einkavæðing orkufyrirtækja, ný einkavæðing
banka, stóriðjustefna, afskriftir á skuldum fyrirtækja en ekki á skuldum
almennings, sukki og skuldum stórauðvaldsins er velt yfir á almenning, Íslendingum
sem eiga yfir 100 milljónir fjölgaði á fyrsta ári „norrænu
verferðarstjórnarinnar“ og eignir þeirra jukust talsvert. Stjórnvöld telja mikilvægasta
verkefnið að endurreisa fjármála- og efnahagskerfið eftir áreksturinn.
Sjálfstæði Íslands gagnvart ESB og NATO minnkar. Það er erfitt að benda á nokkurt svið þar sem venjuleg
miðhægri stjórn myndi breyta stórum öðru vísi í meginmálum en þessi gerir.
Hvort sem stjórnarmunstrið heitir hægri eða vinstri er ríkisvaldið fulltrúi
sömu afla. Talsmáti ólíkur, framkvæmd eins.
Megintaktík auðvaldsins í núverandi kreppu er þessi: Að láta
vinstrimenn framkvæma kreppuráðstafanirnar. Það á að skerða kjör almennings um
ca. 20% og skera niður velferðina álíka mikið. Það gengur betur ef vinstrimenn
halda á skurðarhnífnum. Best ef þeir eru verkalýðsforkólfar um leið.
Sögulegt
hlutverk krata er að sveigja baráttu alþýðu í þingpallafarveginn og undir leikreglur
valdakerfisins. Vinstri kratar hafa þetta sama hlutverk og þáttur þeirra verður
sérstaklega mikilvægur á óróatímum. Það er alveg ljóst að það var alveg
afgerandi mikilvægt fyrir íslenska auðvaldið að fá VG inn í ríkisstjórn í
endurreisnarstarfið upp úr ólgu Búsáhaldabyltingar. Kosningarnar í
kjölfar hennar sýndu mikla vinstrisveiflu og vinstri menn fullir bjartsýni töldu
tíma breytinganna kominn. Með vinstri flokkana í stjórn er ávinningur
auðvaldsins þessi: samábyrgð almennings
á kreppuhrjáðu auðvaldskerfinu. Borgum skuldir einkabanka og tökum
niðurskurðarskellinn í sameiningu! Við erum stödd í járnbrautarlest og það er
víst ekki hægt að beygja eða breyta neinu.
Frá sama
sjónarhól var það líka stóráfangi að smala köttum Ögmundararmsins inn í réttina aftur. Þar eru þeir einhvers
konar pólitískt heilbrigðisvottorð gagnvart almenningi, og um leið gíslar í
herbúðum valdsins. Fyrir auðvaldið er vænlegt að fá vinstri öfl upp í
stjórnkerfið til að lama grasrótarbaráttuna (þ.e.a.s. stéttabaráttu alþýðu).
Það breytir litlu sem engu um framkvæmd stjórnarstefnunnar, en eykur á lömun
vinstri manna. Ríkisvaldið styrkist, mótaflið í samfélaginu veikist.
Ögmundararmurinn
er fulltrúi verkalýðs- og baráttusinnaðari hluta VG. Það er óþarft að draga það
í efa. Þessi „órólega deild“ var mögulega á leið að verða sjálfstætt afl og hluti af andspyrnubaráttunni miklu,
en ný innkoma Ögmundar torveldar mjög viðleitni í þá átt. Þátttaka í þessari
ríkisstjórn er örugg ávísun á svik.
Samt sýnir sig að andaspyrna gegn árásum auðvaldsins er ennþá
mikil meðal alþýðu, sbr nýleg mótmæli á Austurvelli. Þær aðgerðir eru vottur um
aukna vitund og þátttöku almennings í stjórnmálum. Að nokkru leyti má þakka það
upplýsingarbyltingunni. Slíkar aðgerðir boða sitjandi elítum ógn og óöryggi.
Enn og aftur sýnir sig að aðeins fjöldabarátta getur haft
áhrif á stefnu stjórnvalda. Málflutningur Jóhönnu og Steingríms breyttist umtalsvert
strax daginn eftir umrædd fjöldamótmæli. En aðgerðirnar virtust mikið til vera
sjálfsprottnar, og áttu ekki upptök í hinu pólitíska vinstri. Þaðan er lítillar
foustu að vænta sem stendur. Grasrótarhreyfingin
enn forustulausari en hún var í Búsáhaldabyltingunni. Fyrir vikið eru stefna hennar
og kjörorð óskýr.
Taktík alþýðu- og
baráttusinna í kreppunni hlýtur að vera:
Skammtímastefna:
Taka ekki ábyrgð á afleiðingum kreppunnar. Málið snýst ekki um að fá „betra fólk“
í endurreisnarstörf fyrir auðvaldið. Það er forgangsmál fyrir byltingarsinna að
sýna að VG er enn einn fulltrúi íslenskrar borgarastéttar. Grundvallaratriði er
að taka engan þátt í hinni pólitísku grautargerð í þeim flokki. Látum heldur
auðvaldið ráðast fram án okkar aðstoðar, en pökkum í vörn gegn kreppuhníf og
öðrum árásum. Eflum stéttabaráttuna.
No comments:
Post a Comment