Hér má lesa greinar eftir ÞÓRARIN HJARTARSON um þjóðfélagsmál úr mismunandi miðlum frá og með 2009 (bloggsíðan stofnuð 2012). Um yfirgang og hernaðarstefnu heimsvaldasinna og andófið gegn þeim. Um framrás hnattvædds kapítalisma og viðnámið gegn honum. Um aðkallandi verkefni verkalýðshreyfingarinnar. Um sögu og framtíð sósíalismans. Í febrúar 2017 eru greinarnar orðnar 134.
Kaup Elon Musk á Twitter voru frágengin í október. Þau fóru fram af
hans hálfu undir merkjum tjáningarefrelsis og „afnáms ritskoðunar“. Í
íslenskum fjölmiðlum var okkur sagt að eigendaskiptin boðuðu að öllum
líkindum stóraukna „hatursorðræðu“. Í desember sl. gerðist það svo að af
hálfu nýrra eigenda var gefin, í nokkrum skömmtum, innsýn í innri
tölvuskrár Twitter, og þar birtist mikið „ritskoðunarveldi“. Um það
heyrum hins vegar lítið í fjölmiðlum.
Twitterskrárnar (Twitter Files)
Þessi rafrænu skjöl, Twitterskrárnar sýndu
að á Twitter hafði farið fram gríðarleg ritskoðun. Ritskoðun innan þessa
eina tæknirisa, sem varpar um leið ljósi á netheima í heild því engar
ástæður eru til að ætla að ástandið hjá t.d. tæknirisunum Google og
Facebook sé annars konar (að allir „tæknirisarnir“ eru að mestu í eigu
sömu fjármálaelítu fáeinna risasjóða er önnur umræða). Og vel að merkja:
þessir miðlar eru ekki nein héraðsfréttablöð eða fréttastofur „úti í
bæ“. Þetta eru voldugustu upplýsingaveitur í heimi, upplýsingaveitur sem
hálf heimsbyggðin notar, eða meira, og helstu samskiptamiðlar og
umræðuvettvangur alls almennings um leið. Þarna stendur og fellur stór
hluti af því sem við köllum tjáningarfrelsi í samtímanum – og verðum við
ekki að segja ástand lýðræðis um leið?
Elon
Musk hafði sem sé veitt nokkrum blaðamönnum aðgang að þessum
„innanbúðar“skrám eftir kaupin. Fyrstir til að miðla því sem þar kom
fram voru Matt Taibbi og Bari Weiss, óháðir blaðamenn, síðan Lee Fang
frá miðlinum Intercept, David Zweig og svo nokkrir í viðbót. Þetta eru
rannsóknarblaðamenn, fylgjandi málfrelsi og hugsanafrelsi, en líklega
ekki ýkja samstæður hópur hugmyndafræðilega að öðru leyti. Viðbrögð
vestrænna meginstraumsmiðla við útkomunni úr rannsóknum blaðamannanna
segja mikla sögu. Á meðan mikið hefur verið þusað og rifist um hvatir og
ástæður Elon Musks í þessu máli er það meira en sláandi hvílík
grafarþögn hefur víðast hvar ríkt um sjálft innihald skjalanna sem birt
hafa verið. Um það er yfirleitt ekkert fjallað, og að því marki sem það
er gert þá til að segja að ekkert merkilegt kæmi þarna fram. Ekki þarf
þó nána rannsókn til að sjá að innihaldið er vert mikillar athygli, og
gefur okkur glugga og innsýn í ástandið á þessu meginsviði upplýsinga og
umræðu í samtímanum.
Að Twitter og aðrir tæknirisar ástundi
ritskoðun og þöggun er ekki leyndaramál og hafa margir á það bent.
Umræðan í samfélaginu, stjórnmálaumræða sem önnur, hefur færst yfir á
netið en þar ráða nokkur risafyrirtæki ríkjum sem kunnugt er. M.a. hafa
menn talsvert rætt þetta á Neistum, hafa t.d. velt fyrir sér muninum á
gamaldags „opinberri“ ritskoðun og nýrri ritskoðun einkafyrirtækja
gagnvart notendum sínum. Sjá t.d. hér. https://neistar.is/greinar/ritsko%C3%B0un-og-%C3%BE%C3%B6ggun/
Af
Twitterskránum að dæma má þó ljóst vera að skilin milli „opinbers“ og
„einka“ eru þarna að mestu óraunveruleg. Það er meginniðurstaða hjá Matt
Taibbi að FBI og Öryggismálastofnunin (Homeland Security) hafi verið á
kafi í því að ákveða, frá einu máli til annars, hvaða sjónarmið megi
heyrast hjá Twitter og hver ekki, sem og hvaða fréttir megi koma. Eftir
opnun Twitterskráa þarf ekki getgátur lengur, staðreyndirnar liggja
opnar í dagsljósinu.
Alríkislögreglan FBI,
leyniþjónusturnar CIA og ODNI og CENTCOM innan Pentagon (U.S Central
Command) halda í flesta þræði. Og í samskiptunum við tæknirisann Twitter
(um að hagræða og ritskoða efni á samfélagsmiðlum) eru þessar
ríkisstofnanir ráðandi aðilar. Matt Taibbi skrifar: “Ríkisvaldið er ekki
aukaleikari í ritskoðun sem fer aðallega fram í einkageiranum. Það er
aðalgerandinn, augljóslega verkstjóri fyrir þessum aðgerðum og
greinilega líka drifkrafturinn í því að síauka þær, nokkuð sem við getum
sýnt í myndum.“ Og í viðtali sínu við Taibbi tók Glenn Greenwald undir
þetta: „Ef ég ætti að nefna mikilvægustu afhjúpunina myndi ég líka nefna
þessa, nefnilega hina mjög beinu, stöðugu og reglulegu þátttöku
bandarískra öryggismálastofnana (U.S. Security State) í ákvarðanaferlinu
um hvaða upplýsingar við eigum að fá.“ https://rumble.com/v20hgja-the-twitter-files-what-you-need-to-know-with-matt-taibbi-system-update-with.html
Á hinn bóginn kom frumkvæðið að ritskoðun oft frá fyrirtækinu líka, svo
að rétt er að tala um samvinnu milli ríkisvaldsins og tæknirisans í
pólitískri stýringu á umræðunni.
Útkoman er
sú að ástand lýðræðis, a.m.k. í Bandaríkjunum sé afskaplega bágborið.
Látum okkur – með nokkrum svipmyndum og dæmum – skoða hvernig hið
ríkjandi vald (ríkisvald og fyrirtækjavald) gerir stefnu sína gildandi á
einu sviði af öðru á samfélagsmiðlinum, þeim vettvangi sem eitt sinn
kynnti sig sem „vettvang almennings, frelsis og lýðræðis“, lausan undan
miðstýrðu valdi.
Kóvidstjórnarfarið
David Zweig var sá sem fjallaði um stýringu
umræðunnar í kóvidfaraldrinum, eins og hún birtist í Twitterskránum.
Skrárnar sýna að umræða óháð opinberu sóttvarnarstefnunni var bæld niður
hjá Twitter. Ýmist var það að frumkvæði yfirstjórnar fyrirtækisins eða
að tilhlutan bandarískra stjórnvalda, fyrst undir Trump en eftir að
Bidenstjórnin settist að völdum harðnaði baráttan við „falsupplýsingar“
verulega. Gagnrýnar greinar og færslur voru merktar „villandi“ eða
„fals“, þeim hagrætt eða twitterreikningum manna lokað, m.a. sérfræðinga
allt upp í Harward-prófessora, ef þeir í faraldrinum ástunduðu umræðu
óháða „opinberu vísindunum“.
Niðurstaða
David Zweig er svohljóðandi: „Twitter tók þá ákvörðun, á grundvelli
pólitískra skoðana yfirmanna og þrýstings yfirvalda, að nálgun
sóttvarnaryfirvalda við faraldurinn – það að kappkosta að takmarka
dreifingu veirunnar umfram allt annað – væri „vísindin með stóru V“.
Upplýsingar í blóra við þetta viðhorf, svo sem um öryggi og virkni
bólusetninganna eða upplýsingar sem túlka mátti sem vanmat á hættunni af
veirunni, m.a. fyrir börn, var hagrætt eða þeim eytt… Hvernig liti nú
faraldurinn og eftirmál hans út ef opnari umræða hefði farið fram á
Twitter og öðrum samfélagsmiðlum – hvað þá stóru fréttamiðlunum – umræða
um upphaf veirunnar, um lokunarstefnuna, um raunverulega hættu fyrir
börn og margt fleira?“ https://www.thefp.com/p/how-twitter-rigged-the-covid-debate
Þjónusta við herinn
Í viðtali spyr Glenn Greenwald Lee Fang hvað
sé markverðast í rannsóknarniðurstöðum hans, og svarið er: “Við horfum á
ákveðna tegund af hræsni hjá Twitter, þú veist – þetta er fyrirtæki sem
lofaði því árið 2016 að það myndi skjótlega bera kennsl á og gera að
engu eða fjarlægja hvers konar ríkisreknar áróðursherferðir, þú veist
leynilegar tilraunir ríkisstjórna til að hafa áhrif á þennan vettvang –
sem nota gerfinöfn og fölsk auðkenni til að hafa áhrif á almenningsálit
utan eigin lands eða koma fyrir hernaðaráróðri eða leyniþjónustuáróðri…”
Twitter
heitir því sem sagt að fjarlægja sérhvern ríkisrekinn þrýsting, en ekki
bara leyfir miðillinn þrýsting frá Bandaríkjaher heldur veitir honum
mikil sérréttindi. Fang heldur áfram
«Uppljósdtranir
okkar skoða jafnframt Bandaríkjaher og víðtæk samskipti hans við
Twitter. Twitter veitti í reynd útkastaraþjónustu við CENTCOM, U.S.
Central Command, sem hefur stjórnað þessum áróðri og sálfræðilegum
aðgerðum um Miðausturlönd, og notar arabískumælandi Twitterreikninga til
að búa til það sem sýnast vera raunveruleg samskipti, raunverulegt fólk
og fréttaveitur og fréttavefgáttir… Þetta samband á milli hersins og
Twitter nær a.m.k. aftur til 2017. Þá sendir CENTCOM netpósta til
Twitter með lista yfir Twitterreikninga og biður um sérsök forréttindi
fyrir þá reikninga. Og ég sé á Twitterskránum að um leið og sú bón
berst, sama dag, fara tæknimenn Twitter í græjurnar sín megin og setja
inn sérstök merki við reikningana sem CENTCOM bað fyrir og gáfu þeim
merki sem í reynd er gæðavottun og viðurkenning án sýnilegs
vottunarmerkis.» https://rumble.com/v21xd8m-the-twitter-files-bombshell-pentagon-psyop-revealed-with-lee-fang-full-inte.html
Í
beinu framhaldi af viðtalinu við Lee Fang streymdi Greenwald þætti um
Úkraínustríðið sem hann nefndi: «Media rewrites Ukraine’s dark history»:
«Jafnskjótt
og Rússland gerði innrás mátti sjá – í rauntíma – hvernig vestrænir
fjölmiðlar algjörlega námu úr gildi og endurskrifuðu eigin sögu um
Úkraínu á bókstaflega öllum mikilvægum sviðum varðandi það land: þeir
tóku 180 gráðu snúning og hættu að segja það sem þeir höfðu sagt í
áratug, af því þau sannindi grófu undan hagsmunum Bandaríkjanna og ESB í
stríðinu í Úkraínu… Það er vandfundið grófara dæmi um hvernig
stríðsáróður virkar – á nákvæmlega þann hátt sem George Orwell spáði svo
oft um, sérstaklega í sinni frægu bók 1984, að alræði virkaði.»
Demókratar kasta málfrelsi fyrir róða
Að síðustu skal fjallað um það sem Glenn
Greenwald kallar «mestu breytingu í bandarísku stjórnmálalífi í áratugi,
ef ekki lengur». Þá á hann við það «hvernig málfrelsið hefur fallið úr
þeim sessi þar sem það hefur setið í sögu Bandaríkjanna sem algilt
gildi, yfir í gildi sem hálft landið hafnar af harðfylgi.»
Þegar
Greenwald talar um «hálft landið» sem nú hafni malfrelsi á hann við
fylgjendur Demókrataflokksins. Þessi skerðing og «aftignun» og
málfrelsisins opinberast að dómi Greenwalds mjög skýrt í opnun
Twitterskránna og hávaðanum sem varð bæði fyrir og eftir yfirtöku Elon
Musks á Twitter:
«Við sjáum þetta í
taumlausri reiði talsmanna Demókrataflokksins og frjálslyndra þjóna
þeirra hjá ráðandi auðhringafjölmiðlum gagnvart Elon Musk, fyrir það
eitt að lofa smávegis endurreisn málfrelsis [og þetta «smávegis» má
undirstrika, breytingarnar sem fylgja þessari yfirtöku verða naumast
djúptækar] á þeim eina samfélagsmiðli sem þeir mögulega geta ekki ráðið
lengur. Demókratar á þinginu hafa notað a.m.k. tvö undanfarin ár í að
misnota meirihluta sinn í Washington til að ógna forstjórum tæknirisanna
til að, ef þeir ekki ritskoði betur pólitískt innihald sem Demókratar
sætta sig ekki við eða telja stuðandi, þá megi fyrirtækin þola lagalega
og stjórnunarlega refsingu frá ríkisstjórn Bandaríkjanna.»
Það
þarf ekki að útskýra það lengi að brotthvarf frá málfrelsi á þeim
lykilvettvangi sem samfélagsmiðlar eru er alvarlegt högg fyrir lýðræði
og stórt skerf til alræðis. „Ritskoðunarstjórnarfar“ má líka kalla það.
Sem áður sagði sýna „skrárnar“ hvernig ritskoðunarferlinu er kyrfilega
stjórnað af „djúpvaldinu“ (Deep State). Og Demókrataflokkurinn er nú
traustasta stoðin undir ríkjandi valdi og ríkjandi stofnunum auðræðisins
í BNA. Og Greenwald fellir dóma sína án miskunnar:
„…ein
mikilvægustu og valdamestu flokksstamtök í Bandaríkjunum,
Demókrataflokkurinn og þeir vinstrifrjálslyndu sem styðja hann, flokkur
sem mestu ræður í Washington, Hollywood, á fjölmiðlum, í háskólaumhverfi
og smám saman í stærsta hluta auðhringavaldsins, trúir einfaldlega ekki
lengur á málfrelsi, hvorki sem samfélagsgildi né stjónskipunarreglu.“ https://rumble.com/v20aq4w-system-update-live-debut-on-rumble.html
Sláandi
dæmi um ritskoðun í framkvæmd var náttúrlea þegar sitjandi forseti
Bandaríkjanna var gerður brottrækur af Twitter og fleiri samskiptamiðlum
fyrir „uppreisnaráróður“, og hin svokallaða „uppreisn“ (og „tilraun til
valdaráns“) hefur síðan verið skipulega notuð sem vopn af núverandi
stjórn og réttlæting fyrir frekari skerðingum á tjáningarfrelsi. Annað
dæmi um stjórnun frá „djúpvaldinu“ sýndi Matt Taibbi fram á þegar
aðalmálflutningsmaður FBI varð snögglega málflutningsmaður Twitter og
kom í veg fyrir að óhagstæðar fréttir bærust um feðgana Hunter og Joe
Biden (af spjaldtölvu þess fyrrnefnda) síðustu vikurnar fyrir
forsetakosningar 2020. Þessi tvö dæmi segja vissulega sögu um
ritskoðunaræði Demókrata. En þó segja þau enn frekar sögu af annars
vegar forsetaefni sem tilheyrir valdakerfi djúpvaldsins og hins vegar
þjóðernispopúlista á forsetastóli sem tilheyrir því ekki.
Að
áliti Greenwalds er alvarlegast í umræddri breytingu stjórnmálanna
höfnun bandarískra frjálslyndra á málfrelsi – til að takmarka vald
valdastofnana og sem gildi og verkfæri til að leysa úr ágreiningi. Hann
segir að grundvöllur bandarísku stjórnarskrárinnar sé skilningur
upplýsingarstefnunnar á mannlegri náttúru, á tilhneigingu mannanna til
að líta ólíkt á heiminn og að stefna upp á við gegnum málfrelsi og með
því að tjá skoðun okkar þótt hún gangi gegn ríkjandi valdi, án þess að
vera refsað fyrir. Málfrelsið er miðlægt í bandarískri sjálfsmynd, þess
vegna er breytingin dramatískari. Samkvæmt Greenwald er:
„enginn
vafi að málfrelsinu hefur verið kastað með valdi út úr musterinu sem
geymir sameiginleg bandarísk gildi og sem flest okkar styðja bara í
krafti þess að vera bandarísk. Ég er ekki lengur viss um að slík
sameiginleg gildi séu til.“
Niðurstaða okkar
verður að Twitterskrárnar sýni hvernig voldugustu stofnanir í heimi
kappkosta að stjórna pólitískri orðræðu samtímans, og þær hafa tólin til
þess. Viðbrögð þeirra við afhjúpunum Twitterskránna eru í samræmi við
það: þögn.
Umsvif Bandaríkjanna og NATO á Íslandi aukast jafnt og þétt. Ekki
síður árið 2022. Að nokkru leyti tengist það innrás Rússa í Úkraínu, en
fyrst og fremst er það þó hluti af breiðara ferli vestrænnar vígvæðingar
sem hófst miklu fyrr.
Áfram með Finnafjörð
Einn þáttur hennar er ósk NATO um aðstöðu í
Finnafirði austur. Í fyrra, 2021, lagði Guðlaugur Þór utanríkisráðherra
fram frumvarp um breytingu á varnarmálalögum og áttfalda stækkun
öryggissvæðis við Gunnólfsvíkurfjall á Langanesi, niður í Finnafjörð til
að tryggja «öryggishagsmuni Íslands á Norðurslóðum»
https://neistar.is/greinar/ys-og-thys-ut-af-nato/ Núna sumarið 2022
bárust fréttir af óskum NATO um langan viðlegukant þar í Finnafirði.
Skömmu síðar komu fréttir af ósk frá Utanríkisráðuneytimu um það sama.
Framtak og erindisrekstur Kolbrúnar Reykfjörð í sumar er m.ö.o. beint
og hnökralaust framhald af því sem Guðlaugur Þór baukaði í fyrra – að
tilhlutan NATO. Þessi mál fara að mestu leyti fram á bak við tjöldin,
svo erfitt er að leita heimilda og átta sig á hverslu lagt málið er
komið.
B-2 þoturnar, sbr. ályktun Húmanista.
Annar þáttur í auknum umsvifum er notkun
bandarískra sprenguþotna á Keflavíkurstöðinni. Ekki síst gildir það um
B-2 Spirit, dýrustu sprengjuþotur heims., sem hafa komið hér við og við á
undanförnum árum. Skv. Wikipedíu voru þessar þotur «aðallega hannaðar
fyrir kjarnorkusprengjur». Þær geta borið allt upp í 16
kjarnorkusprengjur hver. Ekki eru þær hugsaðar til landvarna heldur eru
þær svo hreinræktuð árásaratæki sem hugsast getur, hannaðar til að
fljúga óséðar inn yfir lönd óvinarins og skjóta á hann sprengjum. Þegar
árið 2019 kom það fram hjá Bandaríska flughernum að Keflavíkurstöðin
væri skilgreind sem «framvarðarstöð» fyrir þessar flugvélar.
Í
fyrra var utanríkisráðherra spurður, bæði af Andrési Inga Jónssyni
þingmanni og af SHA hvað fælist í hugtakinu «framvarðarstöð». Kolbrún
Reykfjörð sendi spurninguna einfaldlega til bandarískra
hermálayfirvalda, lét þau skilgreina málið, og kom tilbaka með þau svör
að B-2 þoturnar væru hluti af «varanlegum tilflutningi bandarísks
liðsafla» (“rotational presence”). Keflavík er sem sagt liður í «rotational presence» flugflotans (sem væri eðlilegra að þýða sem «hreyfanleg viðvera”).
Keflavíkurstöðin
er að verða aftur, eða er þegar orðin, bandarísk herstöð, flestar
bandarískar herstöðvar á 21. öld hafa einmitt ekki fastan herafla heldur
“hreyfanlegan”. Í svörum sínum báru íslensk stjórnvöld ekki á neinn
hátt til baka skilgreiningu bandarískra hermálayfirvalda á
Keflavíkurstöðinni sem «framvarðarstöð” fyrir þoturnar B-2 Spirit. Sem
felur í sér viðurkenningu á skilgreiningunni, án þess að málið sé
nokkurn tíma formlega tekið fyrir í íslensku stjórnkerfi.
Nú
skal vakin athygli á ársgamalli ályktun/fréttatilkynningu frá
Húmanistaflokki Íslands, gefinni út í tilefni af staðsetningu B-2
sprengiþotnanna á Keflavíkurflugvelli í fyrrasumar. Ályktunin greinir
vel málið og setur í samhengi. Þar segir:
“”
„Húmanistaflokkurinn á Íslandi fordæmir harðlega
samþykki ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur á þeirri ákvörðun
Bandaríkjanna að gera Keflavíkurflugvöll að skilgreindri framvarðarstöð
fyrir B-2 þotur til sprengjuárása eins og fram hefur komið m.a. í
fréttum Stövar 2 og visir.is að undanförnu. B-2 sprengjuþoturnar eru
einhver skæðustu árásarvopn mannkyns, þær eru hannaðar til
kjarnorkuárása og geta borið allt að 16 slíkar sprengjur. B-2 þotunum
fylgja um tvöhundruð liðsmenn bandaríska hersins. Þess má geta að þotur
þessararar tegundar voru meðal annars notaðar þegar Bandaríkin - með
stuðningi „hinna viljugu þjóða“ þar á meðal Íslands - sprengdu upp
Bagdad í Íraksstríðinu 2003 til 2011. Með samþykki ríkisstjórnarinnar á
að gera Keflavíkurflugvöll að framvarðarstöð B 2 sprengjuþotanna er
Ísland orðinn beinn og virkur aðili að þeim stríðum smáum og stórum sem
Bandaríkin kunna að heyja.
Með þessum hætti verður Ísland jafnframt að skilgreindu hernaðarlegu
skotmarki andstæðinga Bandaríkjanna í stríði.“
Aðvörunin í lok álykktunarinnar hljómar
spámannlega nú ári síðar þegar staðgengilsstríð USA/NATO við Rússa
geisar í Úkraínu. Ísland er í reynd orðinn aðili að því stríði, og
gerir sig um leið að skotmarki, m.a. með því að hafa hér framvarðarstöð
fyrir árásarvopn á borð við B-2.
Norður-Víkingur 2022
Hvað um aðra vígvæðingu á Íslandi þetta
árið? “Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022” fór fram í Hvalfirði í apríl í
vor. Landganga, og um 700 manns æfði sig á Íslandi en einnig fóru fram
æfingar herskipa sunnan við Ísland. «Norður-Víkingur» er fyrst og fremst
tvíhliða æfingar Íslands og Bandaríkjanna, á grundvelli
varnarsamningsins frá 1951. Þær hafa í heild farið vaxandi. Til marks um
það var að Annar floti Bandaríkjanna var endurræstur 2018, hafði þá
ekki verið virkur frá 2011). Æfingin 2022 skar sig þó ekki úr að umfangi.
Allt
er þetta fyrst og fremst beint og hnökralaust framhald á stefnu þeirri
sem áður hafði verið tekin. Ekkert rof varð eða kúvending árið 2022,
vegna Úkraínustríðs eða af öðrum sökum. Það er samfella í stefnunni, og
stefnan varð ekki til með Úkraínustríðinu. Samfellan gengur út á
vígvæðingu. Hina nýju vígvæðingu. Sú vígvæðing hófst í raun með lokum
kalda stríðsins um 1990, tók stefnu með «alþjóðavæðingu NATO 1999» og
fór á flug með yfirlýstu «stríði gegn hryðjuverkum» 2001. Eftir ca. 2007
hefur vígvæðingin snúist æ beinna um «einpóla heimsskipan», að viðhalda
henni og berjast gegn rísandi keppinautum, Kína og Rússlandi.
Helsta viðbót: vopnaflutningur til Úkraínu
Vígvæðingar-marsinn herti þó á sér 2022. Það
sem helst hefur bæst við á Íslandi með Úkraínustríðinu er þátttaka
Íslands í vopnaflutningum. Strax eftir innrás Rússa í 24. febrúar hófu
íslensk stjórnvöld að standa fyrir vopnaflutningum tíl Úkraínu. Um
miðjan maí höfðu þau lagt fram 125 milljónir til þess arna. Illa hefur
þó gengið að fá fram framlög Íslands skjalfest. Annað atriði er
stóraukin «loftrýmisgæsla». Æfingar þær sem voru ca 5 sinnum á ári koma
nú á fárra vikna fresti. Nú tala ég mest frá eigin tilfinningu fyrir
þotuæfingum og herflutningavélum á Akureyrarflugvelli. Ég tel að tíðni
æfinganna hafi a.m.k. tvöfaldast frá undangengnum árum.
Ísland
er NATO-hjálenda. Í utanríkismálum ganga hlutirnir sjálfkrafa fyrir
sig. Við höfum enga sjálfstæða utanríkisstefnu. Gerum það sem NATO
segir. Ísland hefur stutt allar aðgerðir NATO síðustu þrjá áratugi. Og
allar stórar aðgerðir Bandaríkjahers. Punktur. Sjálfvirknin er óháð
stjórnarsamsestningu. Við flækjum okkur rækilegar í net vígvæðingarinnar
með hverju árinu. En ekkert af þessu er í raun nýtt. Úkraínustríðið er
aðeins eitt skref enn niður á við.
Þegar ég staðhæfði, skömmu eftir að
innrás Rússa hófst, að Úkraínustríðið væri staðgengilsstríð var allt
slíkt tal stimplað sem «Pútínáróður» enda væri stríðið einfaldlega
þjóðfrelsisstríð Úkraínu. Slíkir stimplar eru vissulega enn á lofti og
mynd þjóðfrelisstríðsins er haldið fast að okkur í fjölmilum. Inn á
milli heyrist samt oftar og oftar frá háum stöðum, ekki síst í
Washington, að Úkraínustríðið sé einmitt – staðgengilsstríð. Það er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir sambandi “staðgengils» og þeirra sem
hann «staðgengur” fyrir.
Panetta: - Þetta er staðgengilsstríð
Leon Panetta, sem var varnarmálaráðherra
Obama-stjórnarinnar 2011-2013 og áður æðsti yfirmaður CIA fer ekki í
grafgötur með að stríðið sé stríð milli Bandaríkjanna og Rússlands. Í
viðtali við David Vestin hjá Bloomberg þann 17. mars orðar hann það á einföldu mannamáli:
«Í fyrsta lagi, einasta aðferðin til að fást
við Pútín er að tvöfalda framlag okkar. Sem þýðir að veita eins mikla
hernaðaraðstoð til Úkraínumanna og nauðsynlegt er þannig að þeir geti
haldið áfram að berjast við Rússana... Við erum þátttakendur í átökum
þarna. Það er staðgengilsstríð við Rússland hvort sem við segjum það eða
ekki. Það er það sem í reynd á sér stað. Og af þeirri ástæðu verðum við
að vera viss um að við veitum eins mikið af vopnum og mögulegt er...
Ekki vera í vafa, diplómatík er gagnslaus nema við höfum áhrif. Og
aðferðin til að hafa áhrif er að fara inn og drepa Rússa. Það er það sem
Úkraínumenn verða að gera. Við verðum að halda áfram
hernaðaraðstoðinni... Af því þetta er valdatafl.» https://www.bloomberg.com/news/videos/2022-03-17/u-s-is-in-a-proxy-war-with-russia-panetta-video
Orð Panetta eru beinlínis skilgreiningin á
staðgengilsstríði: utanaðkomandi stórveldi veitir veikara ríki efnahags-
og vopnahjálp til að heyja stríð gegn stórveldisandstæðingi sem
fyrrnefnda stórveldið vill skaða. Minna ríkið þarf hins vegar að vinna
sjálft verkið, með lífi sínu og blóði.
Austin – markmiðið er að «veikja Rússland»
Panetta er að vísu ekki lengur
varnarmálaráðherra. En núverandi varnarmálaráðherra BNA, Loyd Austin,
sagði að Úkraínumenn skyldu fá «allt sem þeir vilja af vopnum». Staddur í
Kíev, eftir fund með Zelensky forseta, var hann var spurður um «markmið
Bandaríkjanna» í Úkrínustríðinu og hann svaraði líka mjög skýrt: «Við
viljum sjá Rússland veikjast það mikið að það geti ekki gert þess konar
hluti sem það hefur gert við Úkraínu.» https://www.commondreams.org/views/2022/04/26/us-secretary-defense-admits-real-strategic-goal-ukraine-quagmire-russia
Lloyd Austin varnarmálaráðherra: markmiðið er að “veikja Rússland”
Fyrrum æðsti stjórnandi Bandaríkjahers í
Evrópu, Ben Hodges, orðar hin bandarísku stríðsmarkmið með líkum hætti,
þau séu að: “hryggbrjóta að lokum getu Rússlands til að ráðgera
valdbeitingu utan Rússlands”. https://www.cbsnews.com/news/face-the-nation-full-transcript-04-17-2022/
Strategistarnir í Washington (og hjá NATO) ætla Úkraínu þetta hlutverk,
með duglegri hernaðaraðstoð: að veikja Rússland (jafnvel hryggbrjóta).
Það er ærið verkefni og þarf mikið til. Það eru ekki heldur neinir
vasapeningar sem Bandaríkin beina til Úkraínu. Samkvæmt New York Times
28. apríl bað Bidenstjórnin þingið nú um 33 milljarða dollara (4,4
billjónir ísl. kr) í viðbót til stríðsins í Úkraínu. Síðan gerðist það
10. maí að þingið hækkaði framlagið upp í 40 milljónir, enda eru
flokkarnir tveir á þinginu samstíga og nær engin andstaða. https://www.reuters.com/world/us-house-vote-40-billion-ukraine-aid-package-tuesday-pelosi-2022-05-10/
Þegar sú upphæð kemur ofan á fyrri framlög
þingsins til stríðsins er upphæðin orðin um 54 miljarðar dollara. Það
eru talsvert meira en árleg meðalútgjöld Bandaríkjanna til eigin
nýafstaðins stríðsreksturs í Afganistan (um 46 milljarðar). Ennþá meira
sláandi: Upphæðin nálgast heildarútgjöld Rússlands til hermála á heilu
ári (á árinu 2021 voru þau 65,9 milljarðar) og eru þó bara liðnir þrír
mánuðir tæpir af Úkraínustríði.. https://www.sipri.org/media/press-release/2022/world-military-expenditure-passes-2-trillion-first-time
Þessi talnahlutföll eru áhugaverð, ekki síst í ljósi hinna síendurteknu
fullyrðinga um að áhyggjur Rússa af Úkraínu séu fullkomlega
tilefnislausar, þeir hafi ekkert þaðan að óttast (það má þó minna á að
Úkraína var tvívegis á 20. öld notuð til innrása í Rússland og kostuðu
tugmilljónir mannslífa). Glenn Greenwald fjallar hér um þessar upphæðir:
https://greenwald.substack.com/p/biden-wanted-33b-more-for-ukraine?s=r
Framantalin bandarísk hernaðaaraðstoð og framantalin ummæli ráðamanna
sýna að ráðamenn vestur þar líta á þetta stríð sem sitt stríð, þó svo
formlega sé það aðeins á milli Rússlands og Úkraínu. Það er
staðgengilsstríð – og það fylgir rökfræði slíkra stríða.
Það er dável þekkt í geópólitík, ekki síst
eftir styrjaldirnar í Víetnam og Afganistan, að besta aðferðin til að
veikja geópólitískan andstæðing, hernaðarlega og pólitískt, er að egna
hann til óyndisúrræða og árásarhegðunar, helst etja honum út í dýrt
staðgengilsstríð. Það er gjarnan kallað «kviksyndi» og oft bendlað við
«víetnam-syndróm».
Mikilvægasta hernaðarlega hugveita
Bandaríkjanna er RAND-corporation. Hún leggur fram greiningar og
stjórnlist fyrir Bandaríkjaher. Hernaðaráætlunin gagnvart Rússum sem hún
gaf út 2019 hét “Að teygja Rússland” (Extending Russia) og gengur út á
að láta “reyna á her eða hagkerfi Rússlands eða pólitíska stöðu
stjórnvalda, heima og utan lands... og láta Rússland yfirteygja sig
hernaðarlega eða efnahagslega og láta stjórnvöld þar tapa virðingu og
áliti heimafyrir og alþjóðlega.” Af beinum aðgerðum í áætluninni sem
eiga að grafa undan áhrifum Rússlands og veikja það með hjálp
álagsþreytu er efst á blaði og mikilvægust sú að “sjá Úkraínu fyrir
hernaðaraaðstoð” (lethal aid). Númer tvö er að “auka stuðning við
sýrlenska uppreisnarmenn.” sjá hér
Fljótlega eftir að innrás Rússa í Úkraínu
hófst fóru bandarískir strategistar og hermálatoppar að spá löngu stríði
(og óska eftir því). Áðurnefndur Mark Miller, formaður
Herforingjaráðsins, sagði í byrjun apríl að þetta stríð myndi að
líkindum “vara svo árum skipti frekar” en mánuðum. Þá hafa
strategistarnir líka von um að stríðið verði farið að “veikja Rússland”.
https://www.voanews.com/a/ukraine-war-likely-to-last-years-top-us-military-officer-says-/6517110.html
Bakmaðurinn í Úkraínudeilunnari
Hið geopólitíska stríð stendur á milli
Rússlands og BNA/NATO. Úkraína er staðgengillinn, bakmaðurinn er
BNA/NATO. Það að bakmaðurinn ætli stríðinu að «veikja Rússland» í stað
þess bara að verja Úkraínu stækkar verkefnið ansi mikið, og gerir
pólitískar og diplómatískar lausnir deilunnar fjarlægari. Gallinn er að
eigi að láta Rússlandi blæða verulega verður Úkraínu að blæða þeim mun
meira. En frá sjónarhóli bakmannsins er það auðvitað aukaatriði.
Stefna Bandaríkjanna og annarra helstu
NATO-velda gagnvart Rússlandi (og Úkraínu) er ekki alltaf ein og sú
sama, en þó verður að segjast að geópólitík Vesturblokkarinnar á 21.
öldinni hefur á þessu sviði algjörlega verið stjórnað frá Washington, og
aldrei meira en nú.
Það þarf ekki lengi að stúdera háttarlag
bandarískra ráðamanna í Úkraínudeilunni til að sjá að ekki eru þeir þar
friðarstillar. Hlutverk þeirra er ekki heldur bara að bregðast við
gerðum Rússa. Þeir eru megingerendur í deilunni og verk þeirra sýna að
markmið þeirra er ekki að vinna að friði heldur hið gagnstæða. Rekjum
þess vegna aðeins framlag Bandaríkjanna – með Vesturblokkina í
eftirdragi – á nokkrum stigum Úkraínudeilunnar.
Útþensla NATO í austur
Fyrst skal nefna ytri aðstæður deilunnar sem
markast umfram allt af útþenslu NATO í austur. Síðustu Sovétleiðtogunum
voru gefin margvísleg loforð um öryggistryggingar. Eldri Bush og James
Baker utanríkisráðherra sóru þess eið að NATO færi ekki «eina tommu
austar» en Þýskaland. Í febrúar sl. skrifaði hinn virti Der Spiegel um viðræður stórveldanna árið 1990 í aðdraganda þess að Varsjárbandalagið var lagt niður:
Loforðin reyndust léttvæg. Þegar árið 1999
gengu einmitt Tékkland og Pólland í NATO. Það var m.a.s. á tíma
Jeltsíns, þegar Rússland var að miklu leyti undir forræði Bandaríkjanna
og ekki talað um Rússland sem ógn. Enda var þetta engin varnarráðstöfun
heldur heimsyfirráðapólitík, BNA að þenja út áhrifasvæði sitt og
fyrirbyggja mögulega kappinauta (Wolfowitz-kenningin frá 1992 gekk út á
það). Gamalreyndir menn í geópólitík, frá George Kennan til Kissingers,
sögðu þó að með því væri gagnvart Rússlandi gengin braut út á mikið
hættusvæði. Jeltsín reyndi vissulega að andæfa útþenslunni, en Rússland
var enn á hnjánum og varð að láta það yfir sig ganga.
Síðan hélt úþenslustefna NATO áfram í
stökkum austur að landamærum Rússlands. Aðeins Hvíta-Rússland og Úkraína
voru orðin á milli. Af þeim þótti Úkraína álitlegri til nálgunar vegna
sterkra andrússneskra strauma og innbyrðis klofnings landsins, sem
heimsvaldasinnar vildu nýta (sjá síðar). Eftir að stórveldið Rússland
með tilkomu Pútíns komst aftur á fæturna og hætti að láta að stjórn
þeirra í Washington jókst atgangurinn við að vinna Úkraínu frá stóra
bróður.
Útvíkkun NATO í austur eftir lok Kalda stríðsins
Árið 2008 lýsti leiðtogafundur NATO í
Búkarest yfir að einnig Úkraína „mun verða aðili að NATO“. Þá brást
Pútín við hart og sagði: “Hingað og ekki lengra, öryggishagsmunir
Rússlands leyfa það ekki.” NATO-aðild Úkraínu sagðist hann líta á sem
tilvistarógn, “existensial threat” fyrir Rússland. Hann dró «rautt
strik” við Úkraínu. Rússar og aðrir hafa gjarnan líkt þessu við
Kúbudeiluna 1962. Kennedy er oft þakkað fyrir að hafa bjargað landi sínu
og Vesturlöndum úr mikilli kjarnorkustríðshættu með því að fyrirbyggja
sovéskar skotflaugar til Kúbu, draga “rautt strik” við Kúbu. Þetta kom
honum þó formlega ekkert við, Kúbanir voru í fullveldisrétti að haga
öryggismálum sínum að vild (alveg sambærilegt við hinn heilaga
fullveldisrétt Úkraínu að ganga í NATO), en þetta var geópólitík sem
sögð var trompa þjóðarrétt. Líklega hafa almennir Rússar litið rauða
strik Pútíns svipuðum augum og Vesturlandabúar litu strik Kennedys þá.
En í Washington og Brussel var ákveðið að hafa rauða strikið að engu.
Maidan 2014
Nú var markmið bakmannanna í Washington
valdaskipti í Úkraínu, sem áfanga í baráttunni við Rússland. Aðferðin
var litabylting, vörumerki frá CIA. Tvær atlögur voru gerðar í Úkraínu
með 10 ára millibili. Appelsínugula byltingin 2004 var stjórnað af
bandarískri utanríkis- og leyniþjónustu en fótönguliðið voru heimamenn.
Þessum öflum tókst að láta endurkjósa 2004 og koma sínum manni Jútsjenkó
að í stað Janúkóvitsj. Þau valdaskipti gengu þó tilbaka og þessi öfl
voru felld að nýju í kosningum. https://www.theguardian.com/world/2004/nov/26/ukraine.usa
Þetta var aðeins forleikur að því sem
gerðist árið 2014. Þá var miklu meiru kostað til. Og nú tengdi USA sig
við miklu harðsnúnari stjórnmálaöfl. Á útmánuðum þess árs sagði Victoria
Nuland aðstoðarutanríkisráðherra að Bandaríkin hefðu á undanförnum árum
varið 5 milljörðum dollara til að «koma upp lýðræðislegri getu og
stofnunum í Úkraínu» https://www.youtube.com/watch?v=U2fYcHLouXY.
Úkraína hafði orðið sjálfstæð 1991, en landið einkenndist af alvarlegum
klofningi af sögulegri rót, markaðan ekki síst af sambýlinu langa við
Rússland. Klofningurinn liggur eftir landfræðilegum austur-vestur línum
sem einkum eru þjóðernis- menningar- og tungumálalegar. Þær línur eru þó
líka stjórnmálalegar þar sem hin andrússnesku öfl standa í stórum
dráttum hægra megin.
Kortið sýnir hverjir tala hvað. Rauði liturinn sýnir
misjafnt hlutfall rússneskumælandi en grænn sýnir nærri hrein
úkraínskuhéruð.
Strategistarnir í Washington fundu eðlilega
út að gagnlegast væri að tengja sig við hin andrússnesku hægriöfl og þar
á meðal öfgahægrið þar sem andrússneska stemningin er allra sterkast.
Þau mátti líka nota til brýnna róttækra athafna. Hægrisektor sá um
vopnaburðinn. Frjáls félagsamtök (NGO´s) eins og National Endowment for
Democracy, George Soros, Freedom House, breska Chatham House o.fl.
gegndu burðarhlutverkum. Undirbúningur aðgerða fór mest fram gegnum
bandaríska sendiráðið undir stjórn Geoffrey Pyatt sendiherra. Og hann
var í reglulegu símasambandi við Victoríu Nuland. Þau ræddu hvaða
stjórnmálamenn ættu að mynda næstu ríkisstjórn Úkraínu. «Yats is the
guy» (Yats er maðurinn) sagði hún og meinti Arseniy Yatseniuk leiðtoga
Föðurlandsflokksins sem komandi forsætisráðherra. Hvað líka varð. Hún
talaði um «the big three» og að «Yats» yrði að hafa reglulegt samráð við
hina tvo, Klitschko formann Umbótaflokksins og Oleh Tiahnybok, foringja
fasistaflokksins Svoboda. Rússar tóku eitt samtalið upp: https://www.youtube.com/watch?v=MSxaa-67yGM
Victoria Nuland og “the big three”, f.v. Oleh
Tiahnybok, foringi fasistaflokksins Svoboda, Klitschko formaður
Umbótaflokksins og Arseniy Yatseniuk, leiðtogi Föðurlandsflokksins
Á Maidantorgi reif foringi Hægrisektors,
Dimitro Jarosh, í ræðustólnum í sundur nýundirritað samkomulag um
þjóðstjórn og nýjar kosningar sem gert hafði verið milli forsetans og
stjórnarandstöðunnar, samkomulag sem utanríkisráðherrar Þýskalands,
Frakklands og Póllands höfðu ábyrgst. Janukovitsj forseti flýði borgina.
Næsta dag samþykkti fámennt þjóðþing í Kiev undir blikandi vopnum
Hægrisektors að setja af Janukovitsj, lýðræðislega kjörinn forseta. Sjá
stutta útgáfu af atburðarás valdaránsins: https://original.antiwar.com/justin/2014/02/23/coup-in-kiev/
Ofbeldið á Maidan-torgi vakti andúðarbylgju
gegn Janukovitsj. Áttatíu manns dóu á torginu og götunum, um 20
lögreglumenn. Traustar heimildir eru þó fyrir því að mesta ofbeldið á
torginu kom frá „mótmælendum“ úr vopnuðum hópum fasista. Sjá t.d. BBC: https://www.bbc.co.uk/programmes/p02jcrf3/clips
Svobodaflokkurinn var með í nýrri ríkisstjórn. Það er enginn vafi á því
að velþóknun Nuland og bakmannanna í Washington á m.a. Tiahnybok gaf
öfgahægrinu lögmæti og stöðu í komandi Maidan-stjórnkerfi, sem var og er
miklu sterkari en fylgi þess meðal almennings segir til um. Öfgahægrið
stjórnaði alls ekki valdaráninu en var mjög nytsamlegt voldugri
bakmönnum, innlendum og erlendum, til helstu ofbeldisverka og gegndi því
lykilhlutverki í valdaráninu, og áfram.
Tíminn 2014-2022
Ný stjórn Maidan-aflanna varð vond stjórn og
óvinsæl. Lífskjör í Úkraínu hrundu úr vondum niður í ömurleg. En frá
sjónarhóli vestrænu bakmannanna var nýja stjórnin «góð» að einu
mikilvægu leyti: Hún var grimmilega andrússnesk. Með valdaskiptunum
sköpuðust skilyrði fyrir vestrænu virki á vesturlandamærum Rússlands,
reyndar eftir hálfum landamærunum. Villtir draumar heimsvaldasinna
rættust.
Nýja stjórnin sagði strax rússneska
minnihlutanum stríð á hendur. Í fyrstu vikunni eftir að hún tók völd
afnam hún stöðu rússnesku sem eitt opinberra tungumála í landinu, en um
þriðjungur þegnanna hafði rússnesku sem fyrsta mál. Afleiðing
valdaránsins varð að Úkraína rifnaði í sundur eftir hinum gömlu
klofningslínum. Í Moskvu hugsaði Vladimir Pútín fyrst um öryggismál,
hann brást við hart og skipulagði þjóðaratkæðagreiðslu á Krím (formlega
var hún þó skipulögð af þinginu á Krím) sem leiddi til innlimunar
skagans í Rússland. Þarna er Sevastopol, eina flotastöð Rússlands í
suðri og hana ætluðu Kremlverjar ekki að missa til Maidanstjórnar og
NATO. Og þremur mánuðum síðar var Maidanstjórnin komin í borgarastríð
við rússneskumælandi austurhéruðin Donetsk og Lugansk, sem lýstu þá yfir
sjálfsstjórn og kölluðu sig síðan «alþýðulýðveldi».
Minsk-samningurinn haustið 2014 (og aftur í
febrúar 2015) var alvarlegasta tilraunin til að leysa deiluna um
austurhéruðin eftir diplómatískum leiðum: Þar tóku þátt nýi forsetinn
Porosjenkó, Pútín, Merkel, og Hollande Frakklandsforseti. Lykilatriði
hans voru vopnahlé og stjórnarskrárbreyting í Úkraínu sem tryggði
Donetsk og Lugansk ákveðna sjálfsstjórn innan Úkraínu. Samningurinn var
viðurkenndur af SÞ og þjóðréttarlega bindandi.
Úkraínska öfgahægrið fordæmdi samninginn frá
byrjun. E.t.v. ætlaði Porosjenkó forseti sér aldrei að standa við hann,
hann gerði alla vega litlar tilraunir til þess og tók aldrei upp
samninga við fulltrúa sjálfsstjórnarhéraðanna. Og hinir vestrænu bakmenn
hans þrýstu honum heldur ekki til þess. Borgarastríðið hélt því áfram
og drap fólkið þúsundum saman. Þýskaland og Frakkland reyndu að þrýsta á
um uppfyllingu samningsins en að litlu marki fyrr en í ársbyrjun 2022.
Bandaríkin komu ekkert að Minsk-samningnum og sýndu honum engan áhuga,
höfðu væntanlega jafnlítinn áhuga á uppfyllingu hans og úkraínska
ofurhægrið. Framlag USA í málinu var á öðru sviði: að vopna og þjálfa
Úkraínuher í baráttunni við aðskilnaðarsinna en hernum gekk vonum miður í
borgarastríðinu. https://news.antiwar.com/2022/03/16/report-secret-cia-training-program-in-eastern-ukraine-helped-prepare-for-russian-invasion/
Árið 2015 voru herdeildir öfgahægrihópanna Azov og Hægrisektor
innlimaðar í úkraínska Heimavarnarliðið, og gegndu lykilhlutverki á
«austurvígstöðvunum». Aðskilnaðarhéruðin fengu vopnaaðstoð frá
Rússlandi.
Árið 2019 var Zelensky kjörinn forseti, vann
yfirburðasigur á Porosjenkó. Stærsta atriðið í stefnu Zelenskys var að
lofa friði, hann vildi semja við aðskilnaðarsinna og Rússa og fullnusta
Minsk-samninginn. Í innsetningarræðu sinni sagðist Zelensky ekki
“hræddur við að tapa eigin vinsældum eða áhorfi… og er viðbúinn að gefa
frá mér stöðu mína – ef bara friður kemst á.» En öfgahægrið kom því þá
skýrt til skila að friðarsamningar við aðskilnaðarsinna myndu verða nýja
forsetanum dýrir. Viku síðar birtist í vefriti einu vital við nasistann
Jarosh áðurnefndann, þann sama sem reif sundur samkomulagið við
Janukovitsj á Maidantorgi 2014. Jarosh mælti á þessa leið: “Framkvæmd
Minsk-samkomulagsins er dauði fyrir lýðveldið okkar... Zelensky sagði í
innsetningarræðu sinni að hann væri tilbúinn að tapa vinsældum, áhorfi,
stöðu... Nei, han myndi týna lífi sínu. Hann myndi hanga í tré á
Khreshchatyk [miðbæjarstræti í Kíev] – ef hann sviki Úkraínu og fólkið
sem lét lífið í byltingunni og stríðinu.» https://mate.substack.com/p/siding-with-ukraines-far-right-us?s=r
Zelensky hætti skjótt að tala um að semja
við aðskilnaðarsinna og að fullnusta Minsk-samninginn. Það var
lífshættulegt. Ef hann hefði fengið stuðning frá hinum væstrænu
bakmönnum Maidanaflanna til að framkvæma kosningaloforð sín – og vernd
gegn fasistunum – hefði mátt komast hjá miklum djöfulskap og þjáningum.
Þann stuðning fékk hann ekki. Að öllum líkindum var það af því í
Washington höfðu menn engu meiri áhuga á friði í Donbass en fasistarnir.
Samkvæmt tölum SÞ voru 13.000 fallnir í stríðinu gegn
sjálfsstjórnarhéruðunum árið 2019. Yfir milljón höfðu fúið yfir til
Rússlands.
Innrásin og stríðið – og ábyrgðin
Í desember sl. og aftur í febrúar setti
Pútín fram kröfur í Úkraínudeilunni. Kröfunum var beint að Úkraínu en
einnig að NATO. Innihaldslega voru kröfurnar einkum þrjár: Úkraína
verður að viðurkenna rússnesk yfirráð yfir Krím. Úkraína verður
opinberlega að falla frá inngöngu í NATO. Úkraína verður að ná
samkomulagi við aðskilnaðarhéruðin. Kröfurnar voru settar fram í formi
afarkosta, mótherjar yrðu að taka afleiðingunum að öðrum kosti.
Kröfurnar þrjár voru gamalkunnar, þær sömu og Rússar hafa staðið á
undanfarin ár. Kröfurnar var ástæða til að ræða, a.m.k. ef friður alls
svæðisins væri í mikilli hættu að öðrum kosti. Svarið var þríþætt, nei,
nei og nei. Hvorki af hálfu Kiev, Washington né NATO yrðu þessar kröfur
ræddar.
Þann 24. febrúar réðist Rússaher inn í
Úkraínu. Innrásin kallar hörmungar yfir Úkraínu og hún er
þjóðréttarlegur glæpur. Enginn vafi er að mikill meirihluti landsmanna
er henni andvígur og vill standa vörð um úkraínskt fullveldi. Rússnesk
stjórnvöld frömdu glæpinn, þau gerðu innrásina og bera ábyrgð á henni.
Við það verður að bæta að Úkraínustríðið hófst ekki með innrásinni 24.
febrúar heldur vorið 2014. Ábyrgðin á því liggur hjá fleirum, m.a. hjá
Úkraínustjórn og allra mest hjá bakmönnum hennar, Bandaríkjunum og NATO
sem með ögrunarpólitík sinnu stuðluðu að því að glæpurinn yrði framinn.
Með innrás Rússa er sem sagt skollið á
útvíkkað stríð. Staðgengilsstríð eins og hér hefur komið fram. Allir
aðilar sem til þessa hafa komið að deilunni eru nú ábyrgir fyrir því að
leysa hana og stöðva frekari hörmungar. Helstu valkostir stríðsaðila eru
þessir: Á að semja eftir diplómatískum leiðum um grundvallarhagsmuni
deiluaðila? Á að reyna að vinna stríðið, koma andstæðing sínum á kné? Á
að stofna til stórstyrjaldar, t.d. stríði um «lýðræðið í heiminum» gegn
«alræðinu í heiminum?
Á þeim tveimur mánuðum sem síðan hafa liðið
hefur minna heyrst af slíku samningahljóði hjá Zelensky. Í ræðum sínum
yfir þjóðþingum og fjölmiðlum Vesturlanda tekur hann undir boðskap
Bidens um að stríðið standi um «framtíð lýðræðisins», og biður um «meiri
vopn». Og á sigurdaginn 9. maí sagði hann: “Leiðin er erfið en við erum
ekki í neinum vafa um að við munum sigra.” https://www.wsj.com/livecoverage/russia-ukraine-latest-news-2022-05-09/card/zelensky-marks-victory-day-with-a-promise-of-russia-s-defeat-HGUXDPVOw3eyxcCHVVBn
Málflutningur hans hefur smám saman færst til samhljóms við þann
“sigurtón” sem orðið hefur alveg ríkjandi vestan hafs undanfarnar vikur.
Bretland og Bandaríkin keyra samræmda línu í
málinu, hún er sú að Úkraína sé sigursæl og hugrökk, hún eigi að
berjast sem ákafast, þiggja vopn og ekki semja við Pútín. “Absolutely
they can win” sagði Kirby talsmaður Pentagon 6. apríl. Og Austin
varnarmálaráðherra sagði: «Úkraínumenn eru fyrirmynd fyrir hinn frjálsa
heim, geta unnið stríðið við Rússland og skulu fá allt það sem þeir
biðja um af vopnum.” Úkraínska vefritið Ukrainska Pravda sagði
frá heimsókn Boris Johnsn til Kiev 5. maí, og greindi frá fundi hans með
Zelensky. Boris Johnson kom með þau skilaboð frá «sameinuðu Vestrinu»
til forsetans og Úkraínumanna að «jafnvel þótt Úkraínumenn væru tilbúnir
að undirrita eitthvert samkomulag um tryggingar við Pútín værum [við]
það ekki... Pútín er stríðsglæpamaður, það þarf að beita hann þrýstingi,
ekki samningaviðræðum (he should be pressured, not negotiated with)». https://www.pravda.com.ua/eng/news/2022/05/5/7344206/
Vestrið hefur samt ekki allt «sameinað» í
afstöðu sinni. Það sést m.a. á því að eftir að Boris Johnson heimsótti
Kiev hefur Macron Frakklandsforseti tjáð þá skoðun sína að friður muni
aðeins nást gegnum samninga: «Við viljum hafa frið að byggja
morgundaginn á... Við verðum að gera það með Rússland og Úkraínu við
borðið.” Og hann varaði við því að reyna að «auðmýkja Rússa». https://www.euronews.com/my-europe/2022/05/09/macron-warns-against-humiliating-russia-over-war-in-ukraine
Macron er hins vegar einn fárra leiðtoga Vesturlanda sem hefur verið í
sambandi við Kremlverja. Anthony Blinken hefur t.d. ekki talað við
Lavrov kollega sinn síðan innrásin hófst. Hann telur væntanlega
æskilegra að vopnin fái að tala.
Sigurhrópin eru ósk um framlengt stríð
Sigurmálflutningurinn býður fyrst og fremst
upp á stigmögnun. Hann dregur á langinn hörmungar Úkraínu (og alþjóðlegu
efnahagsafleiðingar sömuleiðis) og með hverri viku sem stríðið fær að
þróast eykst hættan á glæfrum, mistökum eða asnaskap sem leiða til
beinna átaka NATO og Bandaríkjanna við annað stærsta kjarnorkuveldi
heims.
Á hinn bóginn eru litlar líkur til að Rússar
játi sig sigraða og bakki út á næstunni, m.a. af því rússneska þjóðin
sýnist deila þeirri hugmynd með Vladimír Pútín að Úkraína sem NATO-ríki
væri “tilvistarógn” við sjálfstætt Rússland. Það er ekki heldur líklegt
að Rússar víki mikið frá kröfunum þremur sem þeir settu fram áður en
innrásin hófst. Sá ímyndaði «sigur» sem talað er um í Vestrinu fengist
aldrei nema mjög mikið hefði gengið á áður, trúlegast stórstyrjöld sem
varla verður «sigur» neins. Hvers konar stigmögnun stríðsins mun
væntanlega ekki heldur draga úr tilfinningu Rússa fyrir «tilvistarógn»
frá NATO, þvert á móti.
Framlenging stríðsins (í von um «sigur») og
höfnun viðræðna um pólitíska lausn deilunnar boðar sem sagt ekkert nema
skelfingu fyrir Úkraínu. Þjónar sú framlenging einhverjum tilgangi? Já,
frá geópólitíska sjónarhólnum í Washington þjónar hún þeim tilgangi að
«veikja Rússland» og þá væri tilgangi staðgengilsstríðsins náð.
«Sigur»-málflutningurinn hefur þann eina tilgang. Í þeim tilgangi hvetur
Washington Útraínu til að fórna sér sjálfri.
Hver er afstaða Íslands? Ísland hefur enga
utanríkisstefnu. Ísland er bara NATO-land, punktur. Hoppar þegar
Washington eða Bussel segja «hoppa!» Annað ekki. Ísland getur að vísu
ekki veitt Úkraínu hernaðaraðstoð, en tekur eftir megni þátt í þeirri
efnahagslegu heimsstyrjöld sem hafin er gegn Rússlandi. Tekur líka
fullan þátt í upplýsingastríðinu sem er einn grundvallarhluti
hernaðarins. Ástandið í landinu og á samanlögðu Alþingi einkennist af
stríðsæsingi til stuðnings við stríðið, við staðgengilshernað
Vestursins. Katrín Jakobsdóttir segist auk þess styðja það ef Finnland
og Svíþjóð sæki um NATO-aðild og vill stuðla að því að þær umsóknir yrðu
afgreiddar með hraði. Það þýðir stuðningur við þá stækkun NATO sem
þegar hefur leitt til til stríðs. Þar stendur meginstraumsvinstrið, en
lengra út á vinstri kanti er stríðið ekki-þema. En sú dapurlega
staðreynd er ekki þema þessarar greinar.
Við heyrum það alls staðar, Úkraínudeilan
snýst um yfirgang og árásarhneigð einræðisherrans í Kreml gagnvart
varnarlitlu sjálfstæðu grannríki hans, Úkraínu. Yfirgang sem jafnframt
er «ógn við öryggi í Evrópu” eins og utanríkisráðherann okkar segir.
Já, deilan snýst um frelsi og valkosti
Úkraínu. En hún snýst um fleira. Um öryggi Rússlands, eins og Pútín
klifar á. Hún snýst líka um grundvöll bandalagsins NATO og um þenslu
þess í austur – og um hlutverk Bandaríkjanna í Evrópu.
Hver ber ábyrgðina? “Rússland eitt ber
ábyrgð á þeim dauða og eyðileggingu sem árásin hefur í för með sér”
segir Joe Biden. «En krise skapt av Russland alene» segir Jens
Stoltenberg. Það sama segja Katrín, Bjarni og Guðni Th. Svona
einfaldlega liggur ábyrgðin samt ekki.
Það er illmögulegt að taka vitræna afstöðu í
Úkraínudeilunni nema að gera það í sögulegu ljósi. Það gerði Bogi
Ágústsson á sinn hátt í fréttaþætti fyrir nokkrum dögum. Hann dró saman
rússneska utanríkisstefnu sögulega: “Segja má að stöðug útþensla hafi
ríkt öldum saman í því skyni að ná yfirráðum í grannlöndum Rússlands í
vestri.” Þetta hljómaði eins og samþjöppuð réttlæting fyrir hinu
vestræna viðhorfi til Rússa. https://www.ruv.is/utvarp/spila/spegillinn/25249/7gpd4d/stada-og-saga-ukrainu
En myndin er fölsk. Vissulega er Rússland
stórveldi, hefur verið það a.m.k. frá dögum Péturs mikla á 18. öld.
Rússland er «náttúrulegasta» stórveldi í Evrópu. Rússar eru langstærsta
þjóð Evrópu, búandi í risastóru landi. Fyrir 3-5 öldum stigóx Rússneska
ríkið, einkum í styrjöldum við aðsteðjandi mongóla og Svía (og að nokkru
leyti Tyrkjaveldi). En síðustu rúm 200 árin hafa stryrjaldir Rússa
verið varnarstríð; stríðið við Napóleon, Krímstríðið við Breta og
Frakka, stríðið við Japani 1905, stríð við Vilhjálm 2 Þýskalandskeisara í
Fyrri heimsstyrjöld, stríðið við Hitler. Þessi stríð voru háð innan
landamæra rússneska (og sovéska) ríkisins. Innrásarherirnir – allir nema
Japanir – komu úr vestri, og yfirleitt gegnum Úkraínu.
Stríðið við Hitler var Rússum dýrt, 27
milljónir fallinna Sovétborgara og vesturhluti ríkisins eitt flag eftir.
Eftir þau ósköp gripu Sovétrússar til harkalegra ráðstafana og komu sér
upp „stuðpúðabelti“ vestan við sig sem tryggja skyldi að í þeim ríkjum
sætu „vinsamleg“ stjórnvöld. Útþensla? Ja, það má a.m.k. auðveldlega
túlka það svo að það hafi verið öryggisráðstöfun fremur en
útþensluráðstöfun (þónokkur þessara ríkja höfðu raunar verið í bandalagi
við Hitler). En Sovétríkin voru orðin risaveldi, fátækt en hernaðarlega
sterkt.
Tilgangur NATO: «Halda Rússum úti Bandaríkjunum inni og Þjóðverjum niðri»
Heimsstyrjöldinni, herhlaupinu «Operasjón
Barbaraossa» inn í Sovétríkin, var varla lokið þegar hafið var enn eitt
stríð, nú «kalt», gegn Sovétríkjunum undir bandarískri forustu. Þremur
og hálfu ári frá stríðslokum var NATO stofnað þeim til höfuðs (sex árum á
undan Warsjárbandalaginu).
Opinn og yfirlýstur tilgangur NATO var að
verja lýðræðisríki í vestri gegn Sovétríkjunum og kommúnistahættunni. En
fyrsti framkvæmdastjóri NATO, Lord Hastings Ismay, orðaði hins vegar
tilgang þessa bandalags Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu talsvert betur:
NATO var stofnað til að «halda Rússum úti, Ameríkönum inni og Þjóðverjum
niðri» sagði hann. Bandaríkin voru ráðandi í bandalaginu og þannig
tryggði NATO úrslitaáhrif þeirra í Evrópu (fyrst vestanverðri).
Tíminn leið til ársins 1991. Þá leystust
Sovétríkin upp og Varsjárbandalagið líka. Þar með var yfirlýstur
tilgangur bandalagsins NATO (að verjast kommúnismanum) horfinn og lá nú
beinast við að leggja það niður líka. Síðustu Sovétleiðtogunum voru líka
gefin margvísleg loforð um öryggismál. Nýlega skrifaði hinn virti Der
Spiegel um viðræður stórveldanna árið 1990 í aðdraganda þess að
Varsjárbandalagið var lagt niður:
Málin tóku þó fljótt aðra stefnu. Sovétríkin
leystust upp í desember 1991. Bandaríkin litu á það sem «gullið
augnablik» fyrir sig sem opnaði þeim fordæmalausa möguleika. Strax árið
1992 lagði hermálaráðuneytið Pentagon sína hermálaáætlun, Defence Planning Guidance 1994-1999.
Þar er lögð megináhersla á það atriði að Evrópa megi aldrei leysa sín
öryggismál á eigin spýtur, án aðkomu Bandaríkjanna. Eins og þar segir:
Á taflborði stórvelda hefur tvennt markvert
gerst á nýbyrjuðu ári: a) Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist nú í
vikunni gera ráð fyrir því að Vladimír Pútín muni senda Rússlandsher til
innrásar í Úkraínu. Rússarnir koma, Rússarnir koma! Og vestrænir
meginstraumsmiðlar og íslenskar endurvarpsstöðvar enduróma þann boðskap
rækilega. b) Í herbúðunum hinum megin gerist það að Pútín setur
Bandaríkjunum afarkosti. Hann krefst «trygginga» gegn allri frekari
austurstækkun NATO. Ella verði NATO að taka afleiðingunum. Hann dregur
þar með «rautt strik» í sandinn. Ræðum seinna atriðið fyrst.
Rússneskir úrslitakostir – og Rússagrýla
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og
Rússlands hittust nú í janúar í Genf til viðræðna um öryggismál Evrópu.
Þar settu Rússar Bandaríkjunum og NATO úrslitakosti. Þeir kröfðust
þjóðréttarlega bindandi «trygginga» gegn frekari austurstækkun NATO,
fyrst og fremst trygginga gegn inngöngu Úkraínu í NATO og gegn
uppsetningu bandarískra skotflaugakerfa í landinu til árása á Rússland
(sem væri jú mjög hliðstætt því að Rússar fengju Kanada í lið með sér og
færu að reisa þar mikil skotflaugakerfi við bandarísku landamærin). Með
þessu «rauða striki» vísa Rússar jafnframt til válegrar þróunar eigin
«öryggis» eftir 1990:
Þegar semja skyldi um sameiningu Þýskalands
eftir fall múrsins 1989 og inngöngu landsins í NATO voru Gorbatsjov og
Sovétleiðtogum gefin loforð um að NATO færi ekki austar en það.
Aðalritari NATO Manfred Wörner lýsti t.d. yfir 17. maí 1990: „Þannig
verður það með sameinað Þýskaland í NATO. Sú staðreynd að við ætlum ekki
að staðsetja NATO-heri handan við landsvæði Sambandslýðveldisins
[Þýskalands] gefur Sovétríkjunum traustar tryggingar um öryggi.“ https://www.nato.int/docu/speech/1990/s900517a_e.htm
Þetta reyndust innantóm orð. Eftir skamma
bið – til ársins 1999 – var NATO-ríkjum í Evrópu skjótlega fjölgað um
nákvæmlega helming (úr 14 í 28), alveg upp að vesturgluggum Rússlands!
NATO hafði þá étið upp allt “stuðpúðabeltið” sem Sovétríkin komu upp
vestan við sig eftir seinna stríð. Í nýlegu viðtali lýsir Mikhail
Gorbatsjov yfir stuðningi við þá aðgerð Pútíns að teikna þetta “rauða
strik” um öryggi Rússlands og setja NATO kosti. https://www.nettavisen.no/nyheter/utenriks/gorbatsjov-mener-usa-ble-arrogante/s/12-95-3424223896
Það varð hins vegar strax ljóst á vestrænum
viðbrögðum við þessu að hvorki Bandaríkin né NATO eru til viðræðu um
slík skilyrði. Aldeilis ekki um að stöðva útþensluna í austur. Í beinu
framhaldi af viðræðunum í Genf sem skiluðu engum árangri hafa komið
harkalegri meldingar en áður frá höfuðstöðvum NATO og frá
Biden-stjórninni: um staðsetningu nýs herafla í Eystrasaltsríkjum og
Austur-Evrópu. Sem sagt meiri bandarískur (og NATO) herafli nær
rússnesku landamærunum. https://www.ruv.is/frett/2022/01/25/nato-bodar-aukinn-vidbunad-i-austri
Það sem við fáum að heyra er að Rússar hafi
dregið saman á annað hundrað þúsund manns nærri landamærum Úkraínu, sýni
ógnandi tilburði, reki árásarhneigða útþenslustefnu, stefni á innrás og
hyggist leggja undir sig landið, hafi siktað út menn í komandi
leppstjórn o.s.frv. Hernaðaraðstoð Bandaríkjanna og Breta í Úkraínu er
hins vegar annars eðlis. Miklar vopnasendingar þangað til margra ára eru
enn auknar, þjálfun á vegum Bandaríkjahers, Breta – og CIA bæði í
Úkraínu og Bandaríkjunum en það er ekki af árásarhneigð heldur til
bjargar frelsi og lýðræði(!)
Yfirvöld í Kiev sem komu til valda í
CIA-stýrðri litabyltingu 2014 hafa það meginhlutverk í tilverunni að
vera andrússnesk. Í öllu öðru voru þau heillum horfin frá byrjun. Fyrsta
verk þeirra var að afnema stöðu rússnesku sem annað opinbert tungumál í
Úkraínu (um þriðjungur þegnanna hafði rússnesku sem fyrsta mál) og
þremur mánuðum síðar var Kiev-stjórn komin í stríð við austurhéruðin í
eigin landi. Síðan þá hafa þau stöðugt æpt um rússneska íhlutun og
yfirvofandi rússneska innrás. Þau kynda undir andrússneskum kenndum, og
þiggja vissulega fyrir það mikla efnahags- og hernaðaraðstoð og
herþjálfun úr vestri. Það hefur fyrst og fremst nýst þeim til að leiða
athyglina frá innlendri kreppu, og fóðrar um leið fasísku öflin í
landinu sem vilja stríð, leika lausum hala og vinna flest skítverk.
Innrás?
Hvað boða heræfingar Rússa skammt frá
Úkraínsku landamærunum (að vísu 200 km frá)? Innrás? Ja, bein árás Rússa
á Úkraínu, og hernám alls landsins er harla ólíkleg. Í fyrsta lagi af
því Úkraína um þessar mundir býður fátt af því sem gæti freistað Rússa.
Hagkerfið er í kreppu og kaldakoli, alveg sérstaklega eftir CIA-stýrðu
litabyltinguna 2014 (t.d. er vélaiðnaðurinn, sem áður stóð þar sterkt,
búinn að vera). Í öðru lagi skiptir það ekki minna máli að slíkt stríð
myndi reka Evrópuríkin upp til hópa fastar í fang Bandaríkjanna, þjappa
saman bandamönnunum í NATO, fjölga NATO-herjum í Austur-Evrópu og leiða
til enn hertra viðskiptaþvingana og frekari einangrunar Rússlands. Í
þriðja lagi væri það ógnarfyrirhöfn að hernema til frambúðar þetta stóra
land þar sem andrússnesk stemning er fyrirfram meira en nógu sterk.
Strategistar í Bandaríkjunum telja hins
vegar ófrið í Úkraínu æskilegan. Mikilvægasta hernaðarlega hugveita
Bandaríkjanna er RAND-corporation. Hún leggur fram greiningar og
stjórnlist fyrir Bandaríkjaher. Hernaðaráætlunin gagnvart Rússum sem hún
gaf út 2019 hét “Að teygja Rússland” (Extending Russia) og gengur út á
að láta “reyna á her eða hagkerfi Rússlands eða pólitíska stöðu
stjórnvalda heima eða utan lands... og láta Rússland yfirteygja sig
hernaðarlega eða efnahagslega.” Í beinum aðgerðum í áætluninni er
“vopnaaðstoð við Úkraínu” efst á blaði, næst kemur “að auka stuðning við
sýrlenska uppreinarmenn” svo “að stuðla að valdaskiptum í
Hvítarússlandi”, þá “að nýta spennuna í Kákasuslöndum” – og áherslur
þessar endurspeglast dável í þeirri þróun sem síðan hefur orðið. Sjá https://neistar.is/greinar/rand-stofnunin-og-austfirdir-stridsaaetlanir-gegn-russlandi/
Jafnframt því að «teygja Rússland» og þreyta
Rússa þjónar hámörkun spennunnar í Úkraínu því að hindra slökun í
Evrópu, viðhalda ótta og spennu, viðhalda vígvæðingu. Síðustu áratugi er
það augljós staðreynd að friðsamleg efnahagsþróun ein og sér leiðir til
þess að Vesturblokkin dregst aftur úr í efnahagssamkeppni og
heimsforræði hennar er þess vegna á fallanda fætii. Friðsamleg þróun er
henne sem sé lífshættuleg! Vestræn yfirráð, einkum Bandaríkjanna,
byggjast nú fyrst og síðast á hernaðarlegum yfirburðum. Þess vegna er
það stefnan í vestrænum valdamiðstöðvum að láta Rússagrýluna (og «gulu
hættuna» gegnsýra stjórnmálin sem allra mest. Og það er fyrst og fremst á
hernaðarsviðinu sem t.d. bandamennirnir í Evrópu eru upp á Sam frænda
komnir. Vald og staða BNA byggist á því að aldrei verði slökun.
Stjórnvöld í Mosku vilja forðast stríð í
Úkraínu. Sérstaklega litist þeim örugglega mjög illa á hernám alls
landsins gegnum leppstjórn, en RÚV hefur einmitt bergmálað fréttir um
slík plön nýlega. https://www.ruv.is/frett/2022/01/22/segja-russa-aetla-ad-koma-a-leppstjorn-i-ukrainu
Engu að síður getur þarna skollið á stríð með beinni rússneskri
íhlutun. Langlíklegasta tilefni slíks hernaðar væri stórfelld árás
Úkraínuhers á aðskilnaðarhéruðin Donbass og Lugansk. Þar eru Rússar
meirihluti íbúa og mörg hundruð þúsund íbúar með rússneskt ríkisfang.
Stórárás sem ógnar tilveru aðskilnaðarhéraðanna mun Moskvustjórn varla
horfa aðgerðarlaus upp á.
Rússar viðurkenni sjálfstæð aðskilnaðarlýðveldi?
Hvað gera Rússar þá ef dregur til slíkra
tíðinda? Rússland er að ýmsu leyti í þröngri stöðu. En Pútín hefur
valkosti við innrás, og ekki eins ólíklega. Í rússnesku Dúmunni er sá
valkostur ræddur nú í vikunni að Rússar hóti að viðurkenna formlega
sjálfstæði aðskilnaðarhéraðanna tveggja (líkt og fordæmi er fyrir í
Suður-Ossetíu og Abkasíu 2008) https://www.reuters.com/world/europe/russian-parliament-discuss-recognising-rebel-held-east-ukraine-independent-2022-01-21/
. Seinna mögulega að skipulagðar væru kosningar um inngöngu héraðanna í
Rússland (sbr Krím 2014). Þessi hótun yrði trúlegast sett fram í
samhengi við kröfu á hendur Úkraínustjórn um að viðurkenna
Minsk-samninginn frá 2014, samning sem m.a. hljóðaði upp á víðtæka
sjálfsstjórn einstakra héraða í Úkraínu og jafna stöðu tungumálanna
tveggja, en sem Úkraínustjórn hefur hvergi staðið við, og ætlar sér ekki
að gera.
Slíkri “hótun” Rússa yrði örugglega fagnað
af almenningi í austurhéruðunum. Á utanríkissviðinu gæti þetta verið
sterkur leikur líka. Minsk-samningurinn var viðurkenndur af SÞ og er því
þjóðréttarlega bindandi. Ekki er ólíklegt að ýmsir evrópskir leiðtogar
myndu ýta á Úkraínu að uppfylla samninginn til að forðast stríð. Ef Kiev
svaraði þeirri hótun Rússa með því að herða stríðið gegn
aðskilnaðarsinnum lægi beint við að Rússar aðstoðuðu þá aðila sem þeir
hefðu þá þegar viðurkennt sem sjálfstæð ríki. Með beinni hernaðaríhlutun
í þeim héruðum. Það er líka alveg möguleiki að viðbrögð Evrópuríkja (og
annarra) við því yrðu ekki eins einhuga og ef um beina innrás væri að
ræða.
Breytt styrkleikahlutföll
Þróun Úkraínudeilunnar er merki um hvað
styrkleikahlutföll í heiminum (milli vestrænu blokkinnar og þeirrar
óvestrænu) breytast hratt. Ekkert þessu líkt var hugsanlegt fyrir 10
árum síðan. Skefjalaus útþensla Vesturblokkarinnar í austur var
framkvæmd í krafti þess að Rússland var veiklað eftir 1990 og komið
niður á hnén. Rauða strikið sem Pútín dregur í sandinn er merki um að sú
staða sé breytt. Rauða strikið merkir: Þessir menn munu aldrei láta
staðar numið fyrr en þeir eru neyddir til þess, við rautt strik. Það
blasir við hvað Rússlandi hefur aukist afl og þor. Rússland er ekki
lengur upp á Vestrið komið hvorki pólitískt né efnahagslega. Rússland
treystir sér til að láta hart mæta hörðu. Litabyltingin í Úkraínu 2014
var síðasta stóráhlaup bandarískrar/vestrænnar útþenslustefnu og hún mun
vonandi stranda þar líka.
Liðskönnun Antony Blinkens á Norðurslóðum gekk
vel. Allir flokkar á Alþingi Íslendinga stóðu prúðan heiðursvörð þegar
hann gekk könnunarganginn. Hann var ekki spurður um nýja
norðurslóðastefnu Bandaríkjahers. Sergei Lavrov var hins vegar sagður
efna til átaka á Norðurslóðum, vegna einhvers sem hann sagði aldrei.
Kurteislegt tal í Hörpu
Eftir fund þeirra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í Hörpu sagði Antony Blinken: “Sem
bandamenn á Norðuslóðum vilja Íslendingar og Bandaríkjamenn tryggja að
heimshlutinn verði áfram laus við átök, þar sem samvinna ræður.“
Íslensku blaðamennirnir létu þetta gott heita og spurðu hann ekki frekar
um stefnu og athafnir Bandaríkjanna á Norðurslóðum, hvorki á þessum
fundi né öðrum. Enda telja þeir vandamálið liggja annars staðar. Bogi
Ágústsson orðaði það svo í sjónvarpsfréttum 18. maí: „Lavrov varaði vestræn ríki við að gera kröfur til Norðurskautssvæðisins, það tilheyri Rússum.“
Svo át hver það eftir öðrum að Sergei Lavrov hefði komið með „stóryrtar
yfirlýsingar“ um að „Norðurskautssvæðið tilheyri Rússum“ og þær kröfur
„brjóta í bága við alþjóðalög um hafrétt á svæðinu“ (sjá t.d. Fréttablaðið
20. maí). Það er auðséð hvar ógnin er og yfirgangurinn! Gallinn sá er
að Lavrov sagði þetta aldrei, og orð Blinkens tjá ekki Norðurslóðastefnu
Bandaríkjanna.
Kurteislegt tal Antony
Blinkens um spennuleysi og umhverfisvernd í norðri hefur það hlutverk að
breiða yfir staðreyndir, sem er vígvæðing Norðurslóða, leidd af
Bandaríkjunum. Fundir Norðurskautsráðsins hafa lengi undafarið snúist um
annað en hermál. En á fund ráðsins í Finnlandi í maí 2019 var Pompeo
utanríkisráðherra mættur og lýsti yfir: “Þetta er stund Ameríku til að
standa upp sem heimskautaþjóð... Svæðið er orðið að vettvangi hnattrænna
valda og samkeppni.“ Hann réðist þar harkalega á „yfirgang“ Rússa og
Kínverja á Norðurslóðum.
Skömmu eftir
valdatöku Bidenstjórnar birtu höfuðstöðvar Bandaríkjahers stefnu sína
fyrir Norðurheimskautssvæðið í bæklingi með heitið: „Að endurvinna yfirráðin á Norðurskautssvæðinu. Norðurslóðastefna Bandaríkjahers.“ Þar má lesa: „Breytingarnar
í hinu landfræðipólitíska umhverfi og aðgerðir stórveldakeppinauta
ásamt breytingum í náttúrulegu umhverfi krefjast þess að herinn
endurstilli og endurskerpi valkostina við að byggja aftur upp mátt okkar
á Norðurskautssvæðinu.“https://api.army.mil/e2/c/downloads/2021/03/15/9944046e/regaining-arctic-dominance-us-army-in-the-arctic-19-january-2021-unclassified.pdf
Blinken minntist ekki á þessa stefnuyfirlýsingu í Hörpu, og íslenskir
blaðmenn voru þá ekki heldur að ónáða utanríkisráðherrann með óþægilegum
spurningum þarum.
Grænland, Noregur og Atlantshafsflotinn
Blinken kom hingað með viðkomu í Danmörku.
Mikilvægasta erindi hans þangað var að ræða Grændlandsmál og hitta fólk
úr grænlensku heimastjórninni (einnig þeirri færeysku). Hann lýsti þar
yfir ánægju sinni vegna stórlega aukinna útgjalda Dana til varnarmála á
Grænlandi. Danska ríkisstjórnin samþykkti í febrúar sl. 40 milljarða
aukningu til málaflokksins. Þessi gríðarlega hækkun kom eftir mikinn
þrýsting frá Washington. Berlingske hafði í ágúst 2019 eftir
Peter Viggo Jakobsen, lektor í Varnarmálaakademíunni dönsku: „Það er
feiknalegur þrýstingur á Danmörku til að fá okkur til að hafast meira að
á Norðurheimskautssvæðinu sem þjónar bandarískum hagsmunum. Bandaríkin
segja: 'Setjið upp hjálminn og komið með í bardagann'.“ https://www.berlingske.dk/nyheder/ekspert-danmark-er-under-gigantisk-pres-usas-budskab-er-spaend-nu-hjelmen
Þetta var í anda Trumps sem pressaði mjög á NATO-bandamann að leggja
meira fram til hermála. Danir höfðu sem sagt látið undan þessum
þrýstingi og Blinken lýsti ánægju sinni með það.
Spennustig er hátt í Úkraínudeilunni. Diplómatísk samskipti Rússa og
Bandaríkjanna hafa líklega ALDREI verið verri. Rússar hóta árásaröflum
öllu illu. Samkvæmt NATO stunda þeir «óréttlætanlega
hernaðaruppbyggingu». Það gera þeir þó innan eigin landamæra. Hver
magnar upp spennuna?
Sagan harkalega
Rússar eru stærsta þjóð í
Evrópu. Þeir hafa ráðið stóru evrópsku austurléttunni vestan Úralfjalla
og lengst austur um Síberíu nokkurn veginn óslitið í á fjórðu öld, frá
dögum Péturs mikla, og raunar alveg frá því þeir hrintu í áföngum af
höndum sér útþensluríki Mongóla, Gullnu hordunni.
Í Rússlandi
ræður ríkjum mjög samþjöppuð auðstétt, kennd við fáveldi, óligarkí.
Eignaskiptingin harla ójöfn – mætti að því leyti samlíkjast við stórþjóð
í Vesturheimi, Bandaríkin. Ráðandi hugmyndafræði (eftir að Rússar létu
af hvers konar sósíalisma) er þjóðernissinnuð íhaldssöm austurkristni.
Réttindi minnihlutahópa eins og samkynhneigðra og hinseginfólks eru
heldur bágborin, og félagafrelsið og útgáfufrelsið mættu vera betri,
hafa þó æði oft verið verri. Eiríkur Bergmann kallar Rússland
„valdboðsríki“ og mótmæli ég því ekkert.
Svo eru það utanríkis- og
varnarmálin. Rússar og þjóðarleiðtogar þeirra búa á margan hátt í
óblíðu ytra umhverfi. Þeir búa við harkalegan utanríkispólitískan
veruleik. Eitt atriði er sléttlendið, landið er opið og berskjaldað í
vesturátt. Útþenslusinnuð veldi hafa notfært sér það, og eftir miðaldir
hafa allar innrásir í Rússland komið einmitt úr vestri. Pólsk-litháíska
samveldið réðist þar inn í byrjun 17. aldar (hertók Moskvu 1610), Karl
12. Svíakóngur réðist þar inn á 18. öld, Napóleon hundrað árum síðar og
Þjóðverjar bæði 1914 og 1941. Sovétríkin misstu a.m.k. 25 milljónir
þegna sinna í seinni heimsstyrjöld, og eftirá var vesturhluti landsins
eitt blæðandi flagsæri.
Áherslur Rússa í utanríkismálum byggja á
þessari sögu. Eftir síðastnefnda hildarleikinn gripu þeir, Sovétrússar,
til nokkuð harkalegra ráðstafana, og komu sér upp „stuðpúðabelti“ vestan
við sig. Þeir áskiluðu sér þann rétt að tryggja að í belti ríkja vestan
þeirra sætu þeim „vinsamleg“ stjórnvöld. Og „vinsamleg“ túlkun á því er
sú að það hafi verið meiri öryggisráðstöfun en útþensluráðstöfun. Hafa
má líka í huga að lönd eins og Búlagía, Rúmenía, Ungverjaland og einnig
Finnland höfðu verið í bandalagi við Hitler á stríðsárunum. En svarið
kom: í beinu framhaldi af stríðslokunum var NATO stofnað til höfuðs
Sovétrússum árið 1949, undir bandarískri forustu.
Einstefnan eftir 1990
Síðan liðu fjórir
áratugir. Þegar svo „stuðpúðabeltið“ og Warsjárbandalagið var að leysast
upp 1990 og semja skyldi um sameiningu Þýskalands aftur og inngöngu
þess í NATO voru Sovétleiðtogum gefin hátíðleg loforð: „Þannig verður
það með sameinað Þýskaland í NATO. Sú staðreynd að við ætlum ekki að
staðsetja NATO-heri handan við landsvæði Sambandslýðveldisins gefur
Sovétríkjunum traustar tryggingar um öryggi“, lýsti aðalritari NATO
Manfred Wörner yfir 17. maí 1990. https://www.nato.int/docu/speech/1990/s900517a_e.htm
Já, um hvað var samið við endalok Kalda stríðsins 1990? Der Spiegel skrifaði 26. nóvember 2009:
«Eftir
að hafa talað við marga þá sem voru þarna viðriðnir og lagt mat á áður
leynileg bresk og þýsk skjöl í smáatriðum hefur DER SPIEGEL komist að
þeirri niðurstöðu að enginn vafi sé á að Vestrið gerði allt sem það gat
til að gefa Sovétmönnum þá vissu að NATO-aðild væri útilokuð fyrir lönd
eins og Pólland, Ungverjaland eða Tékkóslóvakíu». Sjá t.d. hér: https://consortiumnews.com/2016/07/10/europes-nato-ambivalence/
En
eftir stutta bið – bið til ársins 1999 – var NATO-ríkjum í Evrópu
skjótlega fjölgað um nákvæmlega helming (úr 14 í 28), alveg upp að
vesturgluggum Rússlands! Þetta er það sem ég kalla „harkalegan
utanríkispólitískan veruleik“, séð frá Moskvu. Valdakerfið í heiminum
var „einpóla“, risaveldið aðeins eitt, NATO gleypti „stuðpúðabeltið“. En
þegar stærsti granninn á vesturlandamærum Rússlands og næststærsta land
Evrópu, Úkraína, gerði sig líklegt til að ganga í NATO ákvað Pútín
Rússlandsforseti að reka hnefann hart í borðið og segja hingað og ekki
lengra. Gerði það þó ekki fyrr en eftir að valdaskiptin í Úkraínu voru
staðreynd.
Valdaskipti sem voru valdarán, litabylting af
bandarísku vörumerki með bandarísk stjórnvöld djúpt innblönduð í
uppþotið sjálft og takandi ákvarðanir um nýja ráðamenn. Victoria Nuland
aðstoðarutanríkisráðherra heimsótti Kiev þrisvar á þeim fimm vikum sem
mestu mótmælin stóðu, og stærði sig af margmilljón dollara stuðningi við
stjórnarandstöðuna. Ofbledi á Maidan-torgi vakti andúðarbylgju gegn
Janukovitsj forseta. En traustar heimildir eru fyrir því að mesta
ofbeldið á torginu kom frá „mótmælendum“ úr öflugum hópum fasista sem
voru vel vopnaðir. Í „byltingunni“ var lýðræðislega kjörinn forseti
hrakinn frá völdum. Það gerðist m.a.s. eftir að náðst hafði samkomulag
milli forsetans og stjórnarandstöðunnar, um að skipa skyldi þjóðstjórn
og flýta kosningum, samkomulag sem utanríkisráðherrar Þýskalands,
Frakklands og Póllands ábyrgðust. En næsta dag var valdaránið framið og
samkomulaginu nýja hent út um gluggann eftir að vopnaðar sveitir frá
Maidantorgi hertóku þingið og forsetinn flúði borgina, og landið. Sjá
t.d. https://www.counterpunch.org/2015/04/14/ukraine-the-truth/
Pútín
gat sem sagt ekki hindrað valdaskipti í Kiev, og til varð afar
andrússnesk ríkisstjórn í Úkraínu. Fyrsta verk hennar var að afnema
stöðu rússnesku sem annað opinbert tungumál í landinu (um þriðjungur
þegnanna hefur rússnesku sem fyrsta mál, helmingur þegnanna í
austurhéruðunum) og þremur mánuðum síðar var Kiev-stjórn komin í stríð
við austurhéruðin Donetsk og Lugansk. En Pútín átti a.m.k. eitt svar:
Innlimun Krímskaga í Rússland, frá Úkraínu. Þjóðaratkvæðagreiðsla var
skipulögð í skyndi á skaganum, reynt var sem sé að framkvæma innlimunina
í einhverju samræmi við þjóðréttarlegar reglur (sem vissulega leyfa
ekki einhliða breytingar á landamærum). Íbúar Krím hafa undanfarnar
aldir verið yfirgnæfandi Rússar og skaginn því sögulega rússneskur. Við
upplausn Sovétríkja árið 1991 höfðu Krímbúar (94% þeirra) í
þjóðaratkvæðagreiðslu kosið sjálfsstjórnarstöðu sér til handa gagnvart
Úkraínu, og höfðu slíka stöðu í fjögur næstu ár þar til Úkraínustjórn
felldi það einhliða úr gildi 1995. Það var því vitað mál hvað þeir kysu í
mars 2014.
„Allt breyttist með innlimun Krím“
Íslenska
utanríkisráðuneytið skrifaði 2016 í skýringu á stuðningi sínum við
refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi: „Innlimun Krímskaga af hálfu Rússlands í
mars 2014 og aðgerðir rússneska hersins í austurhluta Úkraínu voru
kaflaskil í samskiptum vestrænna ríkja við Rússland frá lokum Kalda
stríðsins – og í raun frá lokum síðari heimsstyrjaldar.“ https://www.stjornarradid.is/media/utanrikisraduneyti-media/media/utn-pdf-skjol/utn-hagsmunamat---thvingunaradgerdir.pdf
Þessi staðhæfing utanríkisráðuneytisins er röng þegar gefið er í skyn
að innlimun Krím hafi verið upphaf Úkraínudeilunnar og þess vegna verið
„kaflaskil“. Innlimunin var ekki upphaf, hún var svar Rússa við því sem
ég hef hér nefnt „harkalegan utanríkispólitískan veruleik“. Rússar eru
aðþrengdir, umkringdir, höfuðsetnir. Síðasta ógnin var valdaránið í
Kiev.
Staðhæfingin um innlimun Krím sem „kaflaskil“ er hins vegar
rétt m.t.t. þess hvernig hún hefur síðan verið notuð af NATO-blokkinni.
Innlimunin er helsta ástæða og yfirvarp þeirrar blokkar fyrir víðtækum
efnahagslegum refsiaðgerðum sem og hernaðarlegri uppbyggingu gegn
Rússlandi. Í hinum vestrænu herbúðum er það túlkað svo að innlimunin
hafi fyrst og fremst verið merki um útþenslu- og árásarstefnu Rússa. Og
þessi útþenslu- og árásarstefna er sögð ógna bæði nágrönnum Rússlands og
Evrópu í heild. Að Pútin geri sig líklegan til að ráðast á Evrópu, hann
ógni heimsfriði.
Obamastjórnin brást við hart. John Kerry mælti:
„Á 21. öld haga menn sér ekki bara í 19. aldar stíl og ráðast á annað
land á fullkomlega fölskum forsendum.“ Utanríkisráðherra BNA hafði efni á
slíku tali! Á Krím var fengið efni í nýtt kalt stríð og Bandaríkin fóru
að slá taktinn ákaflega. Nokkru síðar hældist Biden varaforseti yfir
því að Bandaríkin hefðu neyðst til að kúska Evrópulönd til refsiaðgerða
gegn Rússum: „Það er satt, þau vildu ekki gera þetta, en aftur voru það
bandarísk stjórnvöld og forseti Bandaríkjanna sem krafðist þess, og
nokkrum sinnum urðum við að láta Evrópu skammast sín (we had to embarras
Europe) til að fá þau til að standa upp og taka á sig efnahagsleg högg
til að valda [Rússum] kostnaði.“ http://eldmessa.blogspot.com/2016/01/russum-refsa-hfur-domari-rettmt-refsing.html
Hvernig getur litla Ísland hjálpað til?
Í
miðjum herbúðum Vestursins standa Íslendingar. Getur litla Ísland lagt
stríðinu gegn Rússum eitthvert lið? Jú, aðstöðuna! Á Íslandi er „herinn“
á leiðinni til baka, í Keflavík er að taka á sig mynd varanleg herstöð
með sívaxandi herbúnaði og hreyfanlegum herafla frá Bandaríkjunum og
NATO. Nokkur hunduruð manns með reglulegu millibili. Sveitir
kafbátaleitarflugvéla koma og fara, flugskýli stækkuð og flughlöð.
Gámaíbúðir og svefnskálar hermanna í byggingu, fyrir a.m.k. 1000 manns á
næstu þremur árum. Árlegar flotaæfingar NATO við Ísland.
En
Ísland á að geta lagt herbúðum vestursins til enn meiri aðstöðu í
stríðinu við Rússa. Síðastliðið haust kom Robert Burke flotaforingi og
yfirmaður bandaríska sjóhersins í Evrópu í heimsókn til
Reykjavíkur. Burke segir bandaríska herinn vera að „..íhuga aukna
fjárfestingu hér á landi... Hann segir herinn líta sérstaklega til
Austurlands þar sem slíkur staður væri „hentugri“ fyrir
hernaðaraðgerðr en t.d. höfuðborgarsvæðið, vegna nálægðar við svæðin
sem rússneskir kafbátar athafna sig reglulega...Ekki er búið að ræða við íslensk yfirvöld um þessi áform en hugmyndinni hefur verið velt upp, að sögn Burke.“ https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/10/30/skoda_varanlega_vidveru_bandarikjahers/
Flotaforinginn
sagði sem sé að Bandaríkjaher liti sérstaklega til Austurlands „vegna
nálægðar við svæðin sem rússneskir kafbátar athafna sig reglulega“. Þá
er eins og við manninn mælt: Þremur mánuðum seinna hefur Guðlaugur Þór
Þórarson utanríkisráðaherra samið frumvarp um breytingu á
varnarmálalögum, um margfalda stækkun öryggissvæðisins á
Gunnólfsvíkurfjalli niður í Finnafjörð. Tilefni þessarar breytingar á
varnarmálalögum er „möguleg uppbygging stórskipahafnar“ í Finnafirði og
auðvitað tekur frumvarpið „mið af þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland“ https://neistar.is/greinar/ys-og-thys-ut-af-nato/
Ísland
reynir alltaf að vera best í bekknum. Óskir Bandaríkjahers og viðbrögð
íslenskra ráðamanna ríma alveg. Viðbrögðin fumlaus og hröð. Þau sýnast
vera eftir pöntun. Andstaðan á þingi er engin. Svo er
sálfræðihernaðurinn grundvallaratriði: Fjölmiðlarnir með RÚV í
fararbroddi teikna upp óvinamyndina, stöðugt skýrari og stöðugt ljótari.
Pútín er með Hitlersskegg. Xi Jinping er að fá það líka. Þetta er
einfalt, bara að endurvarpa frá helstu fréttastöðvum Vesturblokkar, CNN,
CBS, BBC... Þar fáum við NATO-veruleikann. Upplýsingastreymið er
miðstýrðara en nokkru sinni. Enginn þarf að hugsa.
Demókratinn Tulsi Gabbard fordæmir ríkjandi stefnu í Sýrlandsstríði
Sýrlandsstríðið varð að nýju dálítið fréttaefni í íslenskum
fjölmiðlum um daginn þegar Bandaríski herinn kastaði sprengjum á
landamærasvæðið milli Sýrlands og Írak 25. febrúar að skipun Joe Bidens.
Heima fyrir fékk forsetinn reyndar dálitla gagnrýni fyrir að hefja
loftárásir án þess að bera undir þingið. Einn forsetaframbjóðandi
Demókrata gekk þó mun lengra í gagnrýni og fordæmdi þá stefnu sem
málefni Sýrlands ætla að taka hjá nýjum húsbændum í Hvíta húsinu. Þetta
er Tulsi Gabbard sem nú er nýhætt á þingi. Hún lýsir yfir:
„Það
gleður mig að heyra að nokkur fyrrum starfssystkini mín í Þinginu tala
gegn nýlegum loftárásum í Sýrlandi sem stríða gegn stjórnarskrá okkar.
En þau horfa samt framhjá stóra málinu. Valdaskiptastríðið sem
Bandaríkin heyja áfram í Sýrlandi – og nota al Kaída, Al Nusra og
HTS-hryðjuverkamenn sem staðgengils-landher, og sem hernema nú og
stjórna Idlib-héraði, setja sjaríalög og hreinsa landið af flestum
kristnum og trúarlegum minnihlutahópum. Bidenstjórnin heldur áfram að
nota her okkar til að hertaka ólöglega Norðaustur-Sýrland, til að „taka
olíuna“ eins og Trump svo groddalega en hreinskilnislega sagði, Sem
þverbrýtur þjóðréttarreglur. Nútímalegt umsátur með grimmilegu
verslunarbanni og refsiaðgerðum, líkum þeim sem bandalag Sáda notaði
gegn Jemen, veldur dauða og þjáningu milljóna saklausra Sýrlendinga,
sviptir þá nauðsymjum eins og mat, lyfjum, hreinu vatni, hita – og gera
sýrlensku þjóðinni ómögulegt að reyna að endurreisa sitt stríðshrjáða
land.“
Það var þegar orðið ljóst í lok Obamatímans að
leiguherir Bandaríkjanna og Persaflóaríkja myndu ekki steypa
Assasdstjórninni með sigrum sínum á vígvellinum – sérstaklega ekki aftir
að Rússar komu þar að málum að beiðni Sýrlandsstjórnar. Þetta leiddi af
sér áherslubreytingar í Washington. Eins og lesa mátti nýlega hér á
Neistum: „Gagnvart Íran og Sýrlandi er stefnan nú að veikja þessi ríki
og brjóta þau niður innan frá frekar en sigra þau hernaðarlega.“ https://neistar.is/greinar/heimsvaldastefnan-og-bandarisku-kosningarnar/
Blaðamaðurinn Aaron Maté hjá mótstraumsmiðlinum The Grayzone
fer í fréttaskýringu á 23 mínútum yfir horfurnar varðandi
stríðsreksturinn í Sýrlandi undir Biden-stjórn. Hann fer yfir ummæli og
yfirlýsingar fólks úr báðum herbúðum bandaríska tvíflokksins, einkum þó
fyrri ummæli frá nokkrum helstu nýju embættismönnum Biden-stjórnarinnar í
utanríkismálum, ummæli sem segja þá sitt um hvers má nú vænta. Og Maté
vekur athygli á ummælum frá þessu fólki sem viðurkenna algjörlega
réttmæti lýsingar Gabbard hér að ofan, en ekkert þeirra sér þó ástæðu
til að gagnrýna bandarísk stjórnvöld fyrir það. Hér er þessi yfirferð Matés.
Eitt
dæmi: Í tölvupósti frá Jake Sullivan til Hillaray Clinton árið 2012,
sem Wikileaks birti, má lesa: „AQ is on our side in Syria”, þ.e.a.s.
Al-Qaeda er með okkur í liði í Sýrlandi. Og nú er sami Jake Sullivan
kominn í það valdamikla embætti að vera öryggisráðgjafi forsetans Joe
Bidens.
Annað dæmi: Þegar Tulsi Gabbard í forsetaframboði sínu
fordæmdi valdaskiptastríðið gegn Sýrlandi og efnahagslegu
refsiaðgerðirnar sömuleiðis afgreiddi Kamila Harris núverandi
varaforseti hana einfaldlega sem „forsvarsmann Assads“.
Af mörgu
ljótu tali sem Maté vitnar til eru hvað mest sláandi ræður Dana Stroul
sem er nú staðgengill aðstoðarutanríkisráðherra Bidenstjórnar í málefnum
Miðausturlanda. Dana Stroul fór áður fyrir hópnum The Syria Study Group
sem skipaður var af Þinginu til að kanna Sýrlandsstríðið. Sem talsmaður
hópsins lýsti hún stöðunni fyrir Þinginu og lagði áherslu á að ekki
mætti draga úr hernaðarlegri viðveru Bandaríkjanna í Sýrlandi né
efnahagslegum þvingunaraðgerðum. Alveg sérstaklega lagði hún áherslu á
nauðsyn þess að hindra aðgengi Sýrlandsstjórnar að hinum efnahagslega
mikilvægu norðausturhéruðum landsins. Álit hennar er að tíminn vinni með
Bandaríkjunum og að þessi taktík, í meginatriðum óbreytt, muni duga til
að koma Assadstjórninni á kné efnahagslega og þar með pólitískt. Stroul
mælir svo:
„Ástæða þess að Syria Study Group talaði um þörfina
á að viðhalda hernaðarlegri viðveru í Sýrlandi snérist ekki bara um það
að ljúka stríðinu við ISIS. Það snérist um breiðari áhrifamátt okkar í
þessum þriðjungi Sýrlands sem er hinn auðlindaríki hluti landsins sem
gaf okkur aðstöðu til að hafa áhrif á pólitísk úrslit í Sýrlandi.“
[Stroul segir ennfremur] „Þessi hluti landsins er efnahagsleg aflstöð
Sýrlands. Það er þar sem kolvetnin eru [olía og jarðgas] – sem auðvitað
er mjög um rætt hér í Washington – sem og aflstöð landbúnaðarins...“
„Það sem Rússarnir vilja og Assad vill er efnahagsleg endurreisn. En það
er nokkuð sem Bandaríkin geta í raun stöðvað, gegnum alþjóðlegar
fjármálastofnanir og samvinnu okkar við Evrópulönd... Svo við ættum að
halda áfram stefnunni að hindra að endurreisnaraðstoð og tæknileg
sérfræðiaðstoð komist aftur inn í Sýrland.“
Lífsbarátta
sýrlensku þjóðarinnar verður bersýnilega ekkert auðveldari með þetta
fólk í lykilstöðum vestan hafs. Bandaríkin munu gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að hindra enduruppbyggingu, og það er ennþá margt. En
tíminn vinnur samt ekki með heimsvaldasinnum.