(Birtist á Smugan.is og fridur.is 13. ágúst 2012)
Afmælisdagar kjarnorkusprenginganna í Hírosíma og Nagasaki eru okkur
tilefni til að koma saman, minnast þess sem þar gerðist, heita því að slíkt
gerist aldrei aftur – og setja fram óskir og kröfur um frið.
Ekki þarf þó djúpa greiningu á erlendum fréttum til að sjá að það er
allt annað en friðvænlegt í heiminum nú um stundir. Enn eitt stríð í Miðausturlöndum
sýnist vera í uppsiglingu, líklega það stærsta og versta.
Undanfarin 20 ár hefur stríðum í heiminum fjölgað mjög, æ styttra
verður á milli þeirra. Um hvað
snúast þessi stríð? Ríkjandi fréttamiðlar á Vesturlöndum gefa okkur þá mynd að
stríðin séu háð til að koma böndum á „vonda kalla“, rudda sem vanvirði lýðræði
og mannéttindi og ógni líka öryggi nágranna sinna.
Þegar ég var ungur voru „vondu kallarnir“ sem útvarpið talaði um nær
alltaf sk. „kommúnistar“. Heitasta stríðið í þá daga var stríðið í Víetnam og
öllu Indó-Kína. Eftir að kommúnisminn í Sovétríkjunum og Kína féll, tóku „NÝJU STRÍÐIN“ við, í fyrsta lagi
hið undarlega stríð sem George Bush setti á dagskrá –
heimsstríð við hryðjuverkamenn – og einnig var hafin sería af stríðum við „vonda kalla“ meðal þjóðhöfðingja:
Milosévits, Saddam, Talíbana, Gaddafí, Bashar Al-Assad. Þetta eru sk.
„mannúðarstríð“ til að vernda þegna þessara landa gegn vondu körlunum sem þar
stjórna.
Ef segja skal hvað þessir „vondu kallar“
eigi sameiginlegt vandast málið. Það er raunar erfitt að halda því fram að þeir
séu merktir af meiri ruddaskap en fjöldinn allur af þjóðhöfðingjum heimsins sem
fær þó að sitja í friði.
Ef nánar er að gáð koma þó sameiginlegir
þættir í ljós. Þessir aðilar sitja eða sátu á svæðum sem eru EFNAHAGSLEG OG
HERNAÐARLEG LYKILSVÆÐI, ekki síst hvað snertir vinnslu og flutning á jarðolíu.
Ennfremur eiga þessir aðilar gjarnan vingott við önnur stórveldi en þau
vestrænu. Þeir eru sem sagt ekki í RÉTTU LIÐI.
Það getur skýrt það að það eru einmitt VESTRÆN
STÓRVELDI sem standa á bak við ÖLL ÞESSI NÝJU STRÍÐ. Alla mína 60 ára löngu ævi
hefur sama blokkin ráðið mestu á vettvangi alþjóðamála: sú ensk-ameríska með evrópsku
bandamönnum sínum, sameinuð í NATO. Um 1990 féll helsti andstæðingur
Vesturblokkarinnar, Sovétríkin, og þá fékk hún yfirþyrmandi vald á heimsvísu,
bæði pólitískt og hernaðarlegt. Síðan þá hafa valdbeiting hennar og hernaðarumsvif
aukist stig af stigi gegnum NATO, og hún setur vægðarlaust á dagskrá
VALDASKIPTI í löndum þar sem stjórnvöld eru henni ekki að skapi.
Hins vegar hafa NÝJAR valdablokkir vaxið
fram eftir aldamótin 2000 með tilkomu nýrra efnahagsstórvelda sem sækja hart að
Vesturlöndum og taka af þeim stækkandi sneiðar af heimsmarkaðnum. Helstu
keppinautar Vesturblokkarinnar, Kína og Rússland, mynda jafnframt pólitíska
mótstöðublokk eða mótstöðumöndul gegn forræði vesturblokkarinnar á vettvangi
alþjóðamála. Skyldi nú ekki þetta tvennt vera samtengt: Annars vegar sívaxandi
hernaðarstefna vesturveldanna og hins vegar undanhald þeirra á efnahagassviðinu
fyrir skæðum keppinautum? Ég bara spyr. Alla vega er þetta staðreynd:
Vesturblokkin hefur hernmaðaryfirburði og hún BRÚKAR þá. Það er hún sem
undanfarna tvo áratugi hefur staðið afyrir öllum meiri háttar styrjöldum í
heiminum. Í Miðausturlöndum eru liðsmenn í mótstöðublokkinni nú tveir: Íran og
Sýrland. Vesturveldin hafa báða í sikti
Um hvað er barist? Mannréttindi og
mannréttindabrot segja vestrænar fréttastofur? Hver sem vill má trúa því. Ég
segi: Eins og 1914, eins og 1939 takast nú stóru auðvaldsblokkirnar á um
áhrifasvæði, auðlindir og markaði. Stríðin snúast EKKERT um „Vonda kalla“ sem
vanvirða mannréttindi. Af hverju er okkur þá sagt að þau snúist um „vonda kalla“
og mannréttindi? Jú, fyrsta regla þess sem vill hefja stríð er að gefa því göfuga
yfirskrift til að vinna því fylgi meðal almennings. Og svo heppilega vill til
að það eru sömu auðvaldseiningar sem STANDA Á BAK VIÐ helstu stríðin og eiga
stóru sjónvarpsstöðvarnar sem ÚTSKÝRA stríðin.
Stríðin eru nauðsynlegur hluti af
gangverki auðvaldsmaskínunnar, þessu efnahagskerfi sem hefur gróðasóknina sem
drifkraft. Stríðin eru ekki knúin fram af sérstökum illmennum, þau eru knúin
fram af venjulegum gróðapungum – og framkvæmdastjórum þeirra.
SÁL kapítalismans er gróðasóknin. En VERÖLD
hans er frumskógurinn, veröld vægðarlausrar samkeppni milli efnahagseininga,
ríkja og ríkjablokka. Þetta tvennt – gróðasóknin og samkeppnin – skapar
stríðin. Það er hin einfaldi sannleikur um stríðin. Sagan um vondu kallana er
hins vegar skáldskapur, ætlaður almenningi sem er annars frábitinn stríði..
Hvers eðlis eru átökin í Sýrlandi?
Ráðandi fjölmiðlar Vesturlanda hafa gert sitt besta til að lýsa þeim sem
slátrun stjórnvalda á saklausum mótmælendum. Það hefur þó smám saman komið í
ljós, jafnvel í mörgum þeim fjölmiðlum sem venjulega fylgja meginstraumnum, að
sú mynd hangir ekki saman. Inn á milli hafa alltaf heyrst fréttir sem sýna t.d.
að uppreisnaröflin, hinn sk. Frjálsi sýrlenski her, hefur frá upphafi átaka í
mars 2011, verið þungvopnaður. Suðningur Vessturveldanna við hann er ennþá
aðallega gegnum leyniþjónustur, en Saudi Arabía og Qatar – traustustu vinir
Vesturveldanna í Arabalöndum – hafa vopnað hann opinskátt, og herbækistöðvar á
hann í Tyrklandi. Enda kemur fram hjá uppreisnaröflunum sjálfum að um
fjórðungur fallinna í stríðinu, yfir 5000 manns, eru sýrlenskir
stjórnarhermenn.
Inn á milli meginstraumsfréttanna heyrum
við líka um voðaverk – svo sem fjöldamorð í borgunum Homs og Aleppo –sem framin
eru af uppreisnarmönnum. Hinir svokölluðu uppreisnarhópar eru að uppistöðu
íslamistar enda er ríkisstjórn Assads ein fárra austur þar sem starfar á
veraldlegum grundvelli. Þessir vopnuðu íslamistar eru að verulegu leyti komnir
frá öðrum araba- og múslimalöndum, en hins vegar ber mjög lítið fjöldamótmælum
meðal almennings í Sýrlandi, nema þá helst til stuðnings stjórnvöldum. Það hljómar
líka undarlega að heyra um al-Kaídasveitir í fremstu röð þeirrar uppreisnar sem
studd er af Vesturlöndum. Hins vegar ná vestrænir leiðtogar og fréttastofur
jafnan að snúa því þannig að öll voðaverk í Sýrlandi sýni fram á nauðsyn
utanaðkomandi íhlutunar – í nafni mannúðar.
Stríðið í Sýrlandi er ekki
valdbeiting stjórnvalda gegn mótmælahreyfingu, Það er ekki heldur hefðbundin borgarastyrjöld.
Þetta er UTANAÐKOMANDI ÍHLUTUN og FORLEIKUR AÐ INNRÁSARSTRÍÐI sem stutt er af
vestrænum stórveldum og bandamönnum þeirra í arabaheiminum. Þetta er endurtekning
á dæminu frá Líbíu, Írak og Afganistan með lítillega breyttum leikurum og leiktjöldum.
Ísland tilheyrir Vesturblokkinni. Ísland
hefur stutt öll stríð hennar eftir fall Múrsins: Írak 1, Bosníustríð, í Kosovo,
Afganistan, Írak 2, Líbíu. Og Össur okkar Skarphéðinsson hefur fyrirfram óskað
eftir aðgerðum svokallaðs „alþjóðasamfélags“ í Sýrlandi – eins og hann studdi
þær í Líbíu í fyrra. Það er línan frá NATO.
Össur er þó engin sérstakur hernaðarsinni,
og hann hefur m.a.s sýnt réttlætiskennd og visst sjálfstæði í stuðningi við
málstað Palestínu.
Nú er þó miklu meira í húfi að sýnt sé
sjálfstæði – og línunni frá NATO hafnað. Ef það gerist ekki munu átökin í Sýrlandi
þróast stig af stigi yfir í nýtt stríð í Miðausturlöndum – stríð sem tekur
a.m.k. til Írans og verður þar með að miklum hildarleik. Aðgerðarleysi fjölmargra
friðarhreyfinga og vinstri stjórnmálasamtaka varðandi átökin í Líbíu og nú
Sýrland benda til að þau hafi, illu heilli, innbyrt hugmyndafræðina um
ÍHLUTANIR Í NAFNI MANNÚÐAR.
En verkefni okkar er að skapa þrýsting á íslensk stjórnvöld að þau HAFNI
STRÍÐSLEIÐINNI, að skapa þrýsting sem er meiri en þrýstingurinn frá NATO. Með
því mundum við líka minnast fórnarlambanna í Hirosima og Nagasaki á verðugan
hátt. Stríðsöflin sækja fram. Stríðsandstæðingar: Heyrið þið hverjum klukkan
glymur?