Michael Bociurkiw var annar af tveimur fyrstu eftirlitsmönnum ÖSE á hrapsvæði farþegaþotunnar MH17. Vitnisburður hans er afar sterkur, vitnisburður um skýr merki eftir hríðskotasprengikúlur úr flugvél en hins vegar engin merki eftir flugskeyti. Aðrir sérfróðir menn draga sömu ályktun og Bociurkiw af að skoða myndir af stjórnklefahluta þotunnar. Rökin hníga þá að HRYÐJUVERKI FRAMKVÆMDU UNDIR FÖLSKU FLAGGI, undir flaggi Pútíns til að koma á hann sök.
Heilbrigð skynsemi er treg til að trúa því að heimsvaldasinnar fremji fjöldamorð á saklausum borgurum, komi sökinni á útvalinn andstæðing og fari síðan herferð til að koma honum á kné. Ein mótbára sem sjálfkrafa vaknar er að slíkt sé allt of áhættusamt, allt gæti komist upp og komið í hausinn á gerendunum. En hryðjuverk undir fölsku flaggi er ein aðferð heimsvaldasinna af mörgum til að einangra andstæðinga sína, skapa tilefni til íhlutana, koma af stað styrjöldum, koma upp leppstjórnum, vinna áhrifasvæði. Tortíming þotunnar MH17 sýnist þá sverja sig í ætt þekktra atburða: ríkisþinghúsbrunannn í Berlín 1933, sprengingu Tvíburaturnanna 11. september 2001, eiturgasárás í útjaðri Damaskus 2013, leyniskyttumorðin af húsþökum í Kænugarði í febrúar sl. Önnur aðferð til að framkalla stríð og valdarán er auglýsing og sviðsetning voðaverka sem aldrei voru framin, eru tilbúningur. Dæmi um slíkt er tilbúin árás Norður-Víetnama á bandaríska flotann í Tonkin-flóa 1964, morð hermanna Saddams Hússein á súrefniskassabörnum í Kúvaít 1991, gjöreyðingavopn Saddams 2003, loftárásir Gaddafís á eigin þegna 2011.

Hólum nú fyrir jólin (útgefin í Bretlandi 1998) og svo bókina TheBattle for Spain. The Spanish Civil War 1936–1939 sem kom út 2006. Tvær aðrar bækur höfðu áður komið út á íslensku: Fall Berlínar 1945 (2006) ogNjósnari í Þýskalandi nasista?: ráðgátan um Olgu Tsékovu (2007).
