
Hvað
messar Þórarinn Hjartarson í Eldmessu sinni? Svar: það sem honum liggur á
hjarta. Þórarinn er stálsmiður sem vinnur fullan vinnudag í Slippnum á Akureyri.
Skrif hans á bloggsíðuna eru þess vegna óskipuleg, slitrótt og koma dálítið
í gusum. Síðan er hvorki með ritstjórn né ritstjórnarstefnu. En hægt er að efnistaka
greinarnar og sjá af því hvað þar er helst á döfinni (með því að klikka á
einstök orð í dálkinum „Stikkorð“ fáið þið í runu greinar mínar um viðkomandi
efni).
Ef
þetta er gert sést að fókusinn er mestur á heimsvaldayfirgang og hina
glæpsamlegu hernaðarstefnu, einkum vestrænna NATO-ríkja, sem og baráttuna gegn
sömu fyrirbærum. Ekkert atriðisorð kemur eins oft fyrir og „Sýrland“, í 43
greinum alls. Önnur mikilvæg atriðisorð eru NATO, ESB, Bandaríkin, Rússland,
Miðausturlönd, ISIS...
Reynt
er að andæfa hinni ríkjandi skoðanamötun um alþjóðamál, sem er skoðanamötun
sömu heimsvaldaafla. Þess vegna eru fréttaskýringar hér á síðunni oftar en ekki
með öfugum formerkjum miðað við fréttir á RÚV eða í Fréttablaðinu. Lesendur hafa
einnig tekið eftir að boðskapur Eldmessu er t.d. ólíkur því sem Samtök hernaðarandstæðinga
(SHA) láta frá sér fara. Það breytir því ekki að meirihluti greina minna hafa
fyrst birst á heimasíðu SHA (http://fridur.is/)
eða Fésbókarsíðu samtakanna. En meginstraumur í íslenskri friðarhreyfingu, sem og evrópskri,
aðhyllist einhvers konar kristilega, ópólitíska friðarhyggju sem gengur helst
út á það að það sé „synd að drepa mann“ og gerir henni ómögulegt að taka
afstöðu „í stormum sinna tíða“.
Annað
efni á síðunni: Um fjölþjóðlegan og hnattvæddan kapítalisma. Dálítið um kreppu
kapítalismans, en þó verð ég að játa á mig of stopula hagfræðiþekkingu. Um aðkallandi
verkefni verkalýðshreyfingarinnar og íslenskrar stéttabaráttu. Nokkrar greinar
hafa birst um sögu sósíalismans og stundum er ýjað að sósíalískum og
kommúnískum svörum við vandamálum samtímans. Í þeim efnum á ég oftar en ekki samleið með Alþýðufylkingunni.
Að mati þess sem hér ritar er það nokkur veikleiki þessarar síðu að hún virkar lítt á gagnvirkan hátt sem væri þó mjög æskilegt, t.d. í því knýjandi verkefni að vekja og örva andkapítalíska umræðu. Að einhverju leyti hafa komment eða umræða þegar orðið (á Fésbókinni eða t.d. á Pressunni hafi ég birt grein í Fréttablaðinu) áður en greinin kemur hér á Eldmessu. En á Eldmessu er umræðan nánast engin, sem tæknin býður þó upp á. Fyrir vikið veit ég ekki einu sinni hver þið eruð, kæru lesendur. Sú staðreynd að lesendum fjölgar jafnt og þétt tek ég sem vitnisburð um að slæðingur er af fólki sem telur þessa rödd þess virði að heyrast, og ég beini til ykkar ósk um að þið hjálpið mér að þróa þá rödd.
24/2 Viðbót 16 dögum síðar. Nú eru heimsóknir á Eldmessu orðnar 11 197, eða 913 síðan þessi grein birtist. Frá jólum hafa þær verið 1700 og 1800 á mánuði. Stígandinn er því enn góður.
No comments:
Post a Comment