(Birtist á fésbókarsíðu SHA 15. nóv 2015)
Vera Illugadóttir skoðaði „Líf og dauða í Sýrlandi“ í
tveimur útvarpsþáttum. Sérstaklega fyrri þátturinn var upplýsandi. Jóhanna
Kristjánsdóttir og Finnbogi Rútur Finnbogason lýstu opnu, gestrisnu samfélagi
einkenndu af trúarlegu umburðarlyndi og bjartsýni, „léttur þægilegur andi eins og í Istanbúl eða París“. Svo kemur þáttur
tvö um „rætur borgarastyrjaldar“. „Arabíska vorið“ 2011 kemur til Sýrlands eins
og sprenging og samfélagið tortímir sér skyndilega í trúardeilu svo hálf þjóðin
lendir á vergangi og flótta. Ekki upplýsandi! Vera dettur í heilaþvottavélina,
endurtekur tuggu væstrænna fréttastofa um friðasamleg mótmæli sem stjórnvöld
siguðu hernum á, ekki orð um stuðning vestrænnar leyniþjónustu eða
Persaflóaríkja við uppreisnina frá fyrsta degi í Daraa eða stöðugan straum
birgaðflutninga til uppreisnarmanna yfir landamæri Tyrklands og olíustrauminn
hina leiðina. Líkt og vestrænar fréttastofur nefnir hún aldrei þátt vestrænnar
heimsvaldastefnu. Það er tapaði hlekkurinn í þróunarkeðju atburðanna.
No comments:
Post a Comment