(Birtist í Morgunblaðinu 29. janúar 2015)
Friðarhreyfingin á Íslandi er hálflömuð, eins og víðast um
hinn vestræna heim. Ekki vantar þó verkefnin enda ófriðvænlegra í heiminum en
verið hefur í hálfa öld. Friðarhreyfing sú sem velgdi Bush og Blair undir uggum
kringum innrásina í Írak 2003 hefur undanfarin ár verið óvirk og ráðvilt
gagnvart nýjum stríðum í Líbíu, Sýrlandi, Írak, Úkraínu... Samtök
hernaðarandstæðinga á Íslandi tekst ekki, frekar en friðarhreyfingu Evrópu, að taka
skýra afstöðu í neinu af þessum stríðum, hvað þá að skipuleggja baráttu fyrir
friði. Ég velti ástæðunum fyrir mér.
Árásirnar á Afganistan 2001 og Írak 2003 voru gamaldags
innrásir í ætt við herferðir Hitlers um Evrópu eða stríðið í Víetnam, þó þær
væru sagðar farnar til að útrýma „hryðjuverkamönnum“ og „gjöreyðingarvopnum“. Bandaríkjunum
gekk þó heldur illa að fylkja bandamönnunum að baki sér í Írak, sbr. afstöðu
Frakklands og Þýskalands, enda reis upp gríðarlega öflug friðarhreyfing gegn stríðinu,
ekki síst í Evrópu. Hún lét blekkingaráróður ekki blinda sig. Hún afhjúpaði það
að stríðið snérist um gamalkunn efni: olíu, auðlindir og áhrifasvæði í anda gamllar
nýlendustefnu og bað innrásaröflin snauta heim. Stríðið varð illræmt meðal
almennings og innrásaröflunum dýrt.
Bandarískir strategistar drógu lærdóm af vandræðunum.
Suzanne Nossel er bandarískur demókrati sem rokkar á milli forustuembætta hjá
SÞ, Utanríkisráðuneytinu og sk. mannréttindastofnunum. Árið 2004 skrifaði hún
grein í Foreign Affairs og boðaði
„frjálslynda alþjóðahyggju“. Hún gagnrýndi tilhneigingu Bush-stjórnarinnar til
einhliða hernaðaraðgerða, Bandaríkin yrðu að læra að tileinka sér „SMART POWER“,
að sameina hernaðarmátt sinn og baráttu fyrir framsæknum og húmanískum gildum.
Síðan hefur hernaðaraðferðin verið þróuð af Hillary Clinton
og hennar líkum. Lykilatriði er að beita fyrir sig „frjálsum félagasamtökum“
(NGO´s). Ein slík eru National Endowment for Democracy (NED), stofnuð 1983 (önnur
eru US Agency for International Development (USAID)). NED eru afar fjársterk
stofnun, sérhæfð í að grafa undan stjórnvöldum sem standa að „ófrelsi“, m.ö.o.
þóknast ekki Vesturveldunum.



