(birtist á Neistar.is 3. apríl 2019)
Tillaga utanríkisráðherra og ríkisstjórnar er að heimila Alþingi „að
aflétta stjórnskipulegum fyrirvara“ við innleiðingu 3 orkupakkans í
EES-samninginn. Ef þjóðþing allra EFTA-landanna samþykkja verður pakkin
að lögum á EES-svæðinu og þar með Íslandi.
Stuðningsmenn
pakkans, m.a. ráðherrar Sjálfstæðisflokks og VG, flytja málið þannig að
annars vegar hafi pakkinn „engin áhrif á Íslandi“ og hins vegar að
höfnun hans setji „EES-samninginn í uppnám“.
„Það yrðu
stórtíðindi í íslenskri pólitík ef þriðji orkupakkinn yrði felldur
vegna þess að það gæti sett EES-samninginn í uppnám. Þetta segir Ólafur
Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði.“ (RÚV 14.11.2018)
Viðskiptablaðið
skrifar 1. apríl: „Pakkinn er mikið hagsmunamál fyrir Norðmenn...
Stuðningsmenn pakkans í norska Stórþinginu telja að það væri hálfgert
skemmdarverk ef Íslendingar – sem hafa engra hagsmuna að gæta í þessu
máli – færu að hafna pakkanum.“ („Mikil óvissa ef Alþingi segir nei“)
Markaðsvæðing – orkan sem vara
Þriðji
pakkinn fjallar um verslun með orku: Orka á að vera vara sem á að
fljóta frjálst á innri markaði ESB/EES. Öll ákvæði EES-samningsins um
frjálsa flæðið – „sál ESB“, fjórfrelsið – munu taka gildi fyrir
raforkugeirann (sem og jarðgas), strax við samþykkt Alþingis á Pakkanum,
ekki við lagningu mögulegs sæstrengs. Þriðji markaðspakkinn felur í
sér markaðsvæðingu. Um það er ekkert deilt. „Orkupakkarnir voru ekkert
annað en markaðspakkar, og sá þriðji er það líka“, sagði
orkumálaráðherrann Þórdís Kolbrún Gylfadóttir um daginn á ársfundi
Landsvirkjunar (Mbl. 28.febr.).
Dæmi: Umrædd markaðsvæðing leiðir
af sér bann við hvers konar niðurgreiðslu orku og pólitískri stjórnun
orkumála, svo sem út frá umhverfisáherslum (orkuskipti í samgöngum),
lýðheilsu, matvælaöryggi o.s.frv. Markaðurinn skal ráða og orkan seljast
hæstbjóðanda sem þýðir útilokun á aðkomu lýðræðislegra stofnana. Það
er engin tilviljun að helsta andstaðan við pakkanum kemur frá samtökum
bænda. Og garðyrkjubændur sjá sína sæng upp reidda í nýrri
verðsamkeppni.
Sæstrengur er svo framkvæmdaratriði. Alþingi skal
setja þann fyrirvara að Alþingi eigi að ákveða hvort leggja skuli
streng. Hvort sem sá fyrirvari heldur gagnvart ESA eða ekki (og
fyrirvarar í kjötmálunum halda greinilega ekki): Ef peningavaldið og
evrópskt stofnanavald taka að kalla á sæstreng og glittir í gull, er þá
Alþingi líklegt til að standa í lappirnar? (við munum
ICESAVE-afgreiðslu Alþingis) Og ef strengur er lagður er fullveldi
okkar í orkumálum farið.
„Orkuverð á Íslandi mun hækka
gríðarlega“ við innleiðinguna, segir Jón Baldvin Hannibalsson. Styrmir
Gunnarsson skrifar: „Verði orkupakkinn samþykktur hefur
Evrópusambandinu verið opnuð leið til þess að ná síðar yfirráðum yfir
einni af þremur helstu auðlindum okkar Íslendinga.“
Orkusamband – liður í samrunaþróun
EES-samningurinn
og evrópska stofnanavaldið er nú notað sem pískur á Alþingi og
þjóðina. Samþykkið pakkann eða EES-samningurinn er „í uppnámi“! Og
EES-sinnar beygja sig hver af öðrum. Af hverju? Af því höfnun á
orkupakkanum felur í sér höfnun á EES eins og það er nú orðið. Að fella
samninginn ætti þess vegna að leiða af sér gagngert uppgjör við EES.
Þetta
á ekkert að þurfa að koma á óvart. EES-samningurinn hefur forgang fram
yfir þjóðlega löggjöf. EES-lög er hluti, stór hluti, af ESB-löggjöf.
EES var frá upphafi hugsað sem forgarður að ESB. „Jafnræðisreglan“ í
samskiptum ESB og EFTA-ríkja hefur einmitt virkað þannig að
EES-samningurinn felur í sér hæga og bítandi aðlögun að ESB.
Árið
2008 fór að bera á svæðisbundnum orkuskorti innan ESB. Það flýtti
fyrir því að miðstöðvar sambandsins ákváðu að koma á einu sameiginlegu
orkukerfi samkvæmt svokallaðri „Kerfisþróunaráætlun“. Eins og í öðru
frá Brussel er stefnan „miðstýrt frelsi“, miðstýrð markaðsvæðing,
miðstýrð frjálshyggja.
Orkupakkarnir eru einn þáttur í evrópska
samrunagangverkinu. ESB yfirtekur stjórn mála frá þjóðþingum
aðildarríkja, í einum málaflokki af öðrum, svo sem fjármálaeftirliti,
fjármálaregluverki, persónuvernd, innflytjendastefnu,
vinnumarkaðsmálum, lýðheilsu, orkumálum. Það er gert á þann hátt að
setja einfaldlega á stofn valdamiklar stofnanir sem lúta bara eftirliti
Framkvæmdastjórnarinnar í Brussel. Og í mörgum tilfellum nær vald
þeirra yfir allt EES-svæðið, ekki síst ef valdsviðið snertir
fjórfrelsið.
Eins slík stofnun er ACER, orkustofnun
Evrópusambandsins, stofnuð 2010. Samkvæmt orkupökkunum er hún æðsta
stjórnvald, setur bæði markaðsreglur og tæknilegar reglur í orkumálum.
ACER tekur ákvarðanir um flutningskerfi (raforkunet) sem liggja yfir
landamæri og setur yfirþjóðlegar reglur um orkuöryggi og „sameiginlega
hagsmuni“ og sker úr í deilumálum meðal aðildarríkja um kostnað við
sameiginlegt orkukerfi. Eitt markmið ACER er að jafna orkuverð í
ESB/EES.
Þáttur VG
Þáttur VG í málinu er raunalegur, en
svo sem í samræmi við „ESB-andstöðu“ þess flokks undafarin misseri, og
flokkurinn aðhyllist æ meir þá markaðskratísku hundalógík sem tengir
ESB við „vinstrimennsku“. Katrín Jakobsdóttir fullyrðir bara að
fyrirvarar utanríkisráðherra haldi til að tryggja „forræði íslenskra
stjórnvalda“ í málinu. Hins vegar segir hún eða flokkssystkini hennar á
þingi harla fátt um það hver ávinningur Íslands sé af að ganga í þetta
orkusamband. Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra skrifar að
ríkisstjórnin verði „að gera okkur grein fyrir því hver ávinningur
okkar er“: „Hvers vegna eruð þið að þessu yfir höfuð?“ (Bændablaðið 6.
Tbl. 2019)
No comments:
Post a Comment