(birt á "Stríðið í Miðausturlöndum" og fésbók SHA 21. sept 2018)
Hinn kanadíski Corbett Report sendir út afar vel gerða, skýra og skorinorða mynd um "lagalega grunninn" undir
Afganistanstríðinu 2001 og öllu "stríðinu gegn hryðjuverkum" sem fylgdi. NATO nýtti
þarna í fyrsta sinn grein 5 í stofnsáttmála sínum til stríðs á þeim
grunni að ráðist væri á aðildarland og árásinni stjórnað utanlands frá.
Utanríkisráðherrar NATO byggðu þá afstöðu á rapport Frank Taylors
sendiherra frá bandaríska State Department um tengsl Afganistanstjórnar við árásina
11 sept. Leynd af rapportnum var "aflétt leynilega" 2008. Danski
prófessor Niels Harrit opinberaði rapportinn: Það sýnir sig að í honum er nákvæmlegta EKKERT
sem sýnir fram á slík tengsl. Bara þessi fullyrðing: "The facts are
clear and compelling." Nýtt fyrir mig í myndinni voru vitnisburðir frú
Rice og Rumsfelds um hin miklu bandarísku plön og undirbúning
hernaðaraðgerða í Afganistan allt árið 2001. https://www.youtube.com/watch?v=Moz8hs2lJik&feature=youtu.be
Hér má lesa greinar eftir ÞÓRARIN HJARTARSON um þjóðfélagsmál úr mismunandi miðlum frá og með 2009 (bloggsíðan stofnuð 2012). Um yfirgang og hernaðarstefnu heimsvaldasinna og andófið gegn þeim. Um framrás hnattvædds kapítalisma og viðnámið gegn honum. Um aðkallandi verkefni verkalýðshreyfingarinnar. Um sögu og framtíð sósíalismans. Í febrúar 2017 eru greinarnar orðnar 134.
Monday, September 24, 2018
Thursday, August 30, 2018
Hvert stefnir í Sýrlandi?
(birt á Neistum 29. ágúst 2018)
Raqqa Sýrlandi
Raqqa Sýrlandi
Hvernig stendur Sýrlandsstríðið? Síðan í vor
hefur borið minna á því í íslenskum fréttum en áður. Í apríl sl. gerðu
Bandaríkin og Bretar og Frakkar flugskeytaárásir á Damaskus – með
stuðningi allra NATO-ríkja, þ.á.m. stuðningi/skilningi ríkisstjórnar
Íslands. Flugskeytaárásin skóp hættu á stórfelldri stigmögnun stríðsins.
Hún var sögð vera „refsiaðgerð“ vegna „eiturvopnaárásar“ Sýrlandshers í
Douma, úthverfi Damaskusborgar. Sendinefnd frá
Alþjóðaefnavopnastofnunni (OPCW) var komin til Damaskus að rannsaka
málið en ekki mátti samt bíða eftir niðurstöðum.
Í byrjun júlí sl. sendi OPCW frá sér skýrslu um rannsóknina og kvaðst ekki hafa fundið merki um beitingu taugagass („No nerve agents“) í Douma og ekki séð merki um bönnuð vopn („No chemicals relevant to CWC [Chemical Weapons Convention] have been found“). Vestrænar fréttastofur töluðu mjög lágt um þennan rapport og forðuðust að draga af honum augljósar ályktanir, nefnilega að flugskeytaárásin hafi verið gerð á upplognum forsendum (og íslenskar fréttastofur þögðu alveg). Verra en það, vestrænar fréttastofur og stjórnvöld halda áfram að tala um „efnaárásina“ í Douma sem staðreynd.
Út frá öllum almennum stöðlum er Sýrlandsstríðið tapað stríð fyrir vestræna heimsvaldasinna og bandamenn þeirra. Sýrlandsher hefur undanfarin þrjú ár, með aðstoð Rússa o.fl., náð frumkvæðinu í stríðinu og smám saman frelsað þau svæði landsins sem „uppreisnarmenn“ höfðu náð. Það þýðir samt ekki að heimsvaldasinnar horfist í augu við þann ósigur. Þrjú svæði landsins hafa lögleg stjórnvöld Sýrlands enn ekki endurheimt:
Í byrjun júlí sl. sendi OPCW frá sér skýrslu um rannsóknina og kvaðst ekki hafa fundið merki um beitingu taugagass („No nerve agents“) í Douma og ekki séð merki um bönnuð vopn („No chemicals relevant to CWC [Chemical Weapons Convention] have been found“). Vestrænar fréttastofur töluðu mjög lágt um þennan rapport og forðuðust að draga af honum augljósar ályktanir, nefnilega að flugskeytaárásin hafi verið gerð á upplognum forsendum (og íslenskar fréttastofur þögðu alveg). Verra en það, vestrænar fréttastofur og stjórnvöld halda áfram að tala um „efnaárásina“ í Douma sem staðreynd.
Út frá öllum almennum stöðlum er Sýrlandsstríðið tapað stríð fyrir vestræna heimsvaldasinna og bandamenn þeirra. Sýrlandsher hefur undanfarin þrjú ár, með aðstoð Rússa o.fl., náð frumkvæðinu í stríðinu og smám saman frelsað þau svæði landsins sem „uppreisnarmenn“ höfðu náð. Það þýðir samt ekki að heimsvaldasinnar horfist í augu við þann ósigur. Þrjú svæði landsins hafa lögleg stjórnvöld Sýrlands enn ekki endurheimt:
- Idlib-hérað. Þangað hafa safnast
íslamískir vígahópar frá þeirri „uppreisn“ sem um tíma reif landið í
tætlur. Nú er Idlib eina svæðið undir stjórn þeirra afla. Og Sýrlandsher
hefur hafið aðgerðir sínar til að frelsa Idlib. Það er þó ljóst að það
verða veruleg átök af því til héraðsins hafa safnast margbreytilegir og
mikið vopnaðir hópar vígamanna. Öflugasti hópurinn er Al-Kaída útibúið
Jabhat al-Nusra sem nú kallar sig Hayat Tahrir al-Sham. Að fenginni
reynslu (m.a. frá Aleppo og Douma) vitum við að vestræna pressan mun
lýsa átökunum við þá sem „slátrun á saklausum borgurum“. Nú gerist
þrennt í senn sem bendir til væntanlegra tíðinda: a)
Bandaríkjaher byggir upp flotastyrk sinn á austanverðu Miðjarðarhafi og
siglir þar inn skipum sem fær eru um flugskeytaárásir á Sýrland. b)
Bandaríkin, Bretar og Frakkar gáfu fyrir viku út sameiginlega
yfirlýsingu um að þau muni ráðast á Sýrland noti Assad efnavopn. Það
jafngildir boði til hryðjuverkamanna um að sviðsetja efnavopnaárás. c)
Samtímis gáfu Rússar út aðvörun um að þeir sjái merki þess að Tahrir
al-Sham i Idlibhéraði undirbúi sviðsetta efnavopnaárás. Hefðbundin
flétta. Sbr. þessa Newsweek-frétt.
- - Afrin hérað
sem Tyrkir hafa hertekið af sveitum Kúrda, YPG, í kjölfar innrásar í
janúar sl., með stuðningi nokkurra hópa sýrlenskra vígamanna, einkum
Frelsishers Sýrlands, FSA. Innrás Tyrkja leiddi af sér ákveðna samvinnu
milli sveita Kúrda og Sýrlandshers í Afrin, en sá síðarnefndi hefur þó
kosið að láta ekki sverfa verulega til stáls við Tyrki.
- - Stærsta og alvarlegasta hernám á sýrlensku landi er nú í Norðaustur-Sýrlandi, austan Efratfljóts. Þar hefur US-Army full hernaðarleg yfirráð, það er bandarískt hernám. Það flækir hins vegar málið mjög að hernámsaðilinn hefur fengið til liðs við sig mikilvægan bandamann á svæðinu, kúrdnesku aðskilaðarhreyfinguna PYD og hersveitir henni tengdar, YPG og SDF, sem US-Army vopnar og verndar úr lofti. Á hluta svæðisins, Hasaka, hefur PYD lýst yfir kúrdnesku sjálfsstjórnarsvæði. Í Hasaka býr samt þjóðernablanda og Kúrdar eru ekki í meirihluta. Bandalag hernámsaflanna (undir forustu BNA) við aðskilnaðar-Kúrda í PYD veldur miklum árekstrum við Tyrki, en augljóslega hefur það orðið Bandaríkjamönnum símikilvægara eftir því sem bandalag þeirra við vopnaða íslamista hefur trosnað í takt við minnkandi hernaðargengi þeirra. Það má ljóst vera að bandarísk hermálayfirvöld veðja gríðarlega á kúrneska trompið. Vopnaaðstoðin er gríðarleg, bandarískar sérsveitir hafa um árabil verið innblandaðar í kúrdnesku herina og hernaður YPG og SDF sem heild er undir yfirstjórn bandaríska CENTCOM (herstjórn Miðsvæðisins sem nær yfir Miðausturlönd og Miðasíu. Gjaldið sem PYD er tilbúið að greiða fyrir „sjálfstæðið“ er varanleg hernaðaryfirráð US-Army í landi þeirra. Heimildir um þetta eru t.d. rækilega skráðar í þessari Wikipediagrein. Donald Trump hefur hins vegar alloft nefnt að Bandaríkin ætli að draga sig út úr Sýrlandsstríði: „We'll be coming out of Syria like very soon. Let the other people take care of it now.“ Hvaða „other people“ á hann við? Sennilega einkum Sáda og Persaflóaríki. Sendinefnd frá Sádum, Sameinuðu furstadæmunum o.fl. munu hafa hitt fulltrúa frá YPG í sumar til að ræða slíka þáttöku. Ekki er þó líklegt að nein arabaríki muni beinlínis „taka við keflinu“ af BNA. Nýlega endurtók Mattis varnarmálaráðherra þá gömlu yfirlýsingu að BNA myndu ekki yfirgefa Sýrland fyrr en Assad forseti væri farinn frá.
Sunday, July 8, 2018
Flokkur og samfylking. Ráð Brynjólfs Bjarnasonar
(birtist á neistar.is 18. júní 2018)
Brynjólfur Bjarnason dró lærdóma af áratauga baráttu
Ris og hnig í
stéttabaráttunni
Ef litið er til baráttu íslensks verkalýðs og alþýðu blasir
við að sú barátta á sér langa stígandi og ris en líka hnig sem nú hefur staðið
lengi. Það unnust mikilvægir sigrar á 20. öldinni, stig af stigi, í
kjarabaráttu alþýðu, réttindabaráttu, húsnæðismálum... Í harðvítugum verkföllum
og átökum jókst líka stéttarvitund og samstaða meðal launþega.
Verkalýðshreyfingin var pólitísk lengi vel, andfasísk, krafan um sósíalisma
stóð sterkt og launþegasamtök beittu sér m.a. mjög gegn bandarískri hersetu og
inngöngunni í NATO.
Þegar kom fram yfir 1970 varð ljóst að veður höfðu skipast í
lofti. Frá þeim tíma hefur ASÍ naumast staðið fyrir einu einasta verkfalli síns
fólks. Verkalýðshreyfingin hætti að nefna sósíalisma. Hún fór að miða kröfur
sína við „greiðslugetu atvinnuveganna“. Svokallaðir verkalýðsflokkar gengust
inn á að tryggja íslenskri eignastétt „ásættanlega arðsemi“ ef þeir kæmust í
ríkisstjórn, en verkalýðshreyfingin sjálf batt starf sitt við krónupólitík og
hætti afskiptum af stjórnmálum.
Spurningin sem hlýtur að vakna er þessi: Hvenær og hvernig urðu
slík umskipti?
Frá verkalýðsflokki
til kosningaflokks
Brynjólfur Bjarnason, helsti „strategisti“ íslenskra
byltingarsinna og róttæklinga á síðustu öld segir í viðtali upp úr 1970: „Ég tel alveg tvímælalaust að mikil hnignun
hafi orðið í íslenskri verkalýðshreyfingu og stjórnmálasamtökum hennar...
einkum eftir miðja öldina.“ (Með storminn
í fangið III, 133). Þegar hann lítur til baka í samtalsbók þeirra Einars
Ólafssonar staldrar hann mjög við tímann upp úr 1960, þegar
Sósíalistaflokkurinn var lagður niður í áföngum og þegar Alþýðubandalagið – stofnað
1956 sem kosningabandalag ólíkra hópa um „brýnustu nauðsynjamál“ – var í hans
stað smám saman gert að stjórnmálaflokki. Margir „frjálslyndir vinstri menn“ og
aðrir hópar í því bandalagi leituðu fast eftir að gera það að flokki og brátt
urðu flokksbatteríin tvö, einn verkalýðs- og stéttabaráttuflokkur en annar
kosningaflokkur. Allt ríkjandi stjórnmálalíf landsins beindi höfuðathygli fólks
að kosningaflokknum og svo fór að nýi flokkurinn át þann gamla. Samruninn var endanlega
fullnustaður 1968.
Brynjólfur segir í samtalsbókinni: „Ég hefði aldrei trúað
því að flokkur sem átti sér jafn glæsilega fortíð og Sósíalistaflokkurinn myndi
ekki hafa styrk til þess að koma heill út úr þeirri samfylkingu sem við
stofnuðum til á sjötta áratugnum... Það voru því geysimikil vonbrigði fyrir mig
þegar ég sá að svo reyndist ekki.“ Spurður um það í hverju hnignun flokksins
hafi legið svaraði Brynjólfur: „Sósíalistaflokkurinn var ekki heilsteyptur
flokkur lengur. Þeir innviðir hans voru nú brostnir sem höfðu gert hann sterkan
og sigursælan.“ (Brynjólfur Bjarnason.
Pólitísk ævisaga. 1989, 131). Hann hafði oft talað um ónóga skólun og einingu
um grundvallaratriði sósíalismans: „heildarstefnan og hin langsýnni markmið eru
ekki nægilega ljós“ (57).
Umskiptin frá Sósíalistaflokki til Alþýðubandalags urðu
mikil. Sósíalistaflokkurinn, eins og Kommúnistaflokkurinn áður, var mikið til
vaxinn upp úr verkalýðsstéttinni. Hann hafði miklu sterkari stöðu innan
verkalýðshreyfingarinnar en Alþýðuflokkurinn, og sú verkalýðshreyfing var
skipuleg og virk. Sósíalistaflokkurinn var stéttabaráttuflokkur. Hann var
framan af agaður flokkur og hugmyndalega samstæður á marxískum grundvelli.
Alþýðubandalagið var hins vegar sundurleitur klíkuflokkur, reikull og
hentistefnusinnaður í hugmyndalegum efnum. Alþýðubandalagið byggði afl sitt
ekki á starfinu í verkalýðshreyfingunni eins og fyrirrennarinn. Við það
veiktist verkalýshreyfingin og þar með aflið á bak við flokkinn. Starf hans
snérist fyrst og fremst um þingpallabröltið og ýmis pólitísk hrossakaup þar.
Árið 1962
Ég leyfi mér að tiltaka eitt ár sem vendipunkt, þó auðvitað
sé um langt þróunarferli að ræða. Árið er 1962. Það voru tímar andstreymis og
umbreytinga fyrir sósíalista á heimsvísu. Þetta var einmitt ár Kúbudeilunnar og
kalda stríðið svo kalt að það var næstum heitt.
Saturday, May 5, 2018
Elías um ellefta september: Tíu punktar um yfirhylmingu
(birtist á síðunni Stríðið í Mið-Austurlöndum 5. maí 2018)
Hafandi fersk í minni tvö ný hryðjuverk með sterk einkenni
sviðssetninga – eiturárásina á Skripal feðginin og „eiturárásina“ nýju í Douma –
sem báðar þjóna stríðsrekstri Vestursins í Miðausturlöndum og vígvæðingunni
gegn Rússum er rík ástæða til að rifja upp hryðjuverkið mikla 11. sept 2001 sem var upphafsatriði „stríðsins gegn
hryðjuverkum“ sem BNA og NATO lýstu yfir í kjölfarið og hefur síðan geysað og sett
Stór-Miðausturlönd á hliðina og skapað flóttamannavandann...
Í meðfylgjandi grein lýsir Elías okkar Davíðsson í 10
punktum eftirmálum atburðarins. Hann bindur sig fyrst og fremst við
réttarfarslega meðferð glæpsins (bæði refsiréttar- og þjóðréttarlega) – og sýnir
að hún hefur stórum meiri einkenni yfirhylmingar en einkenni afhjúpunar og
upplýsingar.
Fyrstu punktar Elíasar einir og sér sýna ærna annmarka: Að
stjórnvöld BNA hafi ekki ekki sótt til saka nokkurn mann fyrir glæpinn, hvorki
fangana í Guantánamo né aðra. Að stjórnvöld BNA og forusta NATO hafi ekki,
þegar þau réðust á Afganistan mánuði eftir glæpinn og hófu „stríðið gegn
hryðjuverkum“, lagt fram nein göng sem tengdu Afganistan við hryðjuverkið, og
ekki gert það síðar heldur. Að stjórnvöld BNA skuli jafnvel ekki hafa saksótt
Osama bin Laden, FBI m.a.s. viðurkennt að sig skorti ‘hard evidence connecting
Bin Laden to 9/11”.
Þessi málsmeðferð á það sameiginlegt með málsmeðferð
kringum hin nýfrömdu hryðjuverk að sönnunargögn málanna hverfa í dularfullt
myrkur og eru algert aukaatriði í orðræðunni, en þeim mun meira er
fjölmiðlafárið sem frá fyrsta degi er leikstýrt í einn farveg stríðsæsinga. Sjá grein Elíasar.Monday, April 30, 2018
Að hafna olíudollarnum getur kostað innrás
(birtist á fésbók SHA 30. apríl 2018)
Í olíukreppunni snemma á 8. áratug gerðu BNA
samning við Sádi-Arabíu. Þau skyldu kaupa olíu sína af Sádum og sjá þeim í
staðinn fyrir vopnum (og brátt herstöðvum). Sádar skyldu nota stöðu sína í OPEC
til að halda olíuverði niðri og tryggja að öll olía skyldi keypt GEGN DOLLURUM.
Olíudollara sína skyldu Sádar (og OPEC-lönd) binda í Bandaríkjunum með kaupum á
bandarískum ríkisskuldabréfum. Auk þess: lönd sem kaupa olíu þyrftu þar með að
skaffa sér dollara svo að dollarinn varð ríkjandi gjaldmiðill heimsviðskipta. BNA
gátu nú safnað skuldum og Alríkisbankinn gat prentað endalaust af dollar án
þess að gengi hans félli, vitandi að alltaf er eftirspurn fyrir hendi, og gat
þannig fjármagnað ævintýralegan ríkisfjárhallann. Olíudollarinn er hornsteinn
undir hnattrænni valdastöðu Bandaríkjanna. Ríki sem hóta að hundsa
olíudollarakerfið eru ekki tekin silkihönskum (m.a. Írak, Líbía og reyndar Sýrland).
Enda: ef olíudollarakerfið hrynur er hætt við að skuldasprengja BNA springi. Hlustið á grátt gaman Lee Camp:
Rússar mæta í Hag með Douma-vitni
(birtist á Fésbók SHA 27. apríl 2018)
Eins er með Skripal-málið. Við tökum þátt í refsiaðgerðum NATO-ríkja gegn Rússum af því það er „nauðsynlegt að bregðast við“. Jafnvel þó Boris Johnson sé staðinn að lygum um að sérfræðingar Porton Down hefðu „sannað“ uppruna eitursins. Jafnvel þó engar sannanir séu bornar fram. Ekki þarf sannanir af því nú krefst NATO þess að allir standi saman. Ísland hafnar ekki slíkum kröfum. Og Skripal-málið var líka nauðsynlegur undanfari loftskeytaárásar.
Rússar mæta í Hag með slatta af vitnum frá Douma. Með nokkur
af fórnarlömbum umræddrar klórgas-árásar (vitni sem eru á hinum heimsfrægu
fréttamyndum) og lækna og starfsfólk af þessari bráðavakt sem er sú eina í Douma. Þeir vitna
um að á bráðavaktina hafi hafi komið fólk í andnauð og jafnvel með reykeitrun
vegna brennandi húsa og sprengjuryks í nágrenninu. Síðan hafi Hvíthjálmar
skyndilega mætt á svæðið og skapað panikk með ópum um eturvopnaárás og tekið
myndir og sprautað vatni á fólk. Enginn hafi hins
vegar sýnt merki um gaseitrun þann dag. Þetta er t.d. í samræmi við það sem
Robet Fisk skrifaði í Independent en hann var fyrsti vestræni blaðamaður til að
gefa rapport frá vettvangi.
"Fréttamyndir" Hvíthjálma nægðu hins vegar fyrir BNA, Breta og Frakka til árásar. Hana þurfti „nauðsynlega“ að gera ca. sólarhring áður en OPCW-rannsóknarnefndin komst inn á svæðið til að sannreyna merki um eiturgas. Íslenska ríkisstjórnin sýndi árásinni „skilning“ af því það er „nauðsynlegt að bregðast við“ en skv. Stoltenberg NATO-leiðtoga var hún „studd“ af öllum NATO-ríkjum, Íslandi líka. Já, áður en vettvangur var rannsakaður.
"Fréttamyndir" Hvíthjálma nægðu hins vegar fyrir BNA, Breta og Frakka til árásar. Hana þurfti „nauðsynlega“ að gera ca. sólarhring áður en OPCW-rannsóknarnefndin komst inn á svæðið til að sannreyna merki um eiturgas. Íslenska ríkisstjórnin sýndi árásinni „skilning“ af því það er „nauðsynlegt að bregðast við“ en skv. Stoltenberg NATO-leiðtoga var hún „studd“ af öllum NATO-ríkjum, Íslandi líka. Já, áður en vettvangur var rannsakaður.
Þetta tekur sig illa út fyrir íslensku ríkisstjórnina,
ef sannanir skipta yfir höfuð máli. En þær gera það líklega ekki. Í
meginstraumsfjölmiðlum gildir að „taka sviðið“ á fyrsta degi og koma tilætlaðri
frétt út. Ef hún einhvern tíma í framtíðinni verður borin til baka verður það
ekki gert með neinum lúðrablæstri. Árangri náð.
Eins er með Skripal-málið. Við tökum þátt í refsiaðgerðum NATO-ríkja gegn Rússum af því það er „nauðsynlegt að bregðast við“. Jafnvel þó Boris Johnson sé staðinn að lygum um að sérfræðingar Porton Down hefðu „sannað“ uppruna eitursins. Jafnvel þó engar sannanir séu bornar fram. Ekki þarf sannanir af því nú krefst NATO þess að allir standi saman. Ísland hafnar ekki slíkum kröfum. Og Skripal-málið var líka nauðsynlegur undanfari loftskeytaárásar.
Sviðssetningar og vestræna bræðralagið
(birtist á Neistar.is 7. apríl 2018)
Sergei Skripal
Sergei Skripal
Þessi grein var send á Vísir.is
fyrir 10 dögum en ekki birt. Það sem síðan hefur einkum gerst er að breski
utanríkisráðherrann, Boris Johnson, er staðinn að ósannsögli. Hann hafði
fullyrt að vísindamenn á tilraunaverksmiðjunni í Porton Down hefðu sagt
„afdráttarlaust“ að eitrið væri framleitt í Rússlandi. Vísndamenn Porton Down
vildu hins vegar ekki staðfesta þetta og sögðust ekki geta fullyrt neitt um
framleiðslustaðinn. En skortur á sönnunum hefur ekki breytt samstöðu „vestræna
bræðralagsins“. Hér kemur þá greinin.
I. Tvíburaturnarnir féllu 11. sept 2001 og NATO hóf stríð sitt í Afganistan þremur
vikum síðar. Afgerandi fundur var haldinn í Norður-Atlantshafsráðinu í Brussel
2. okt. Þar var mættur Frank Taylor sendiherra frá bandaríska State Department.
Hann lagði fram skýrslu með kynningu sönnunargagna um atburðina 11. september.
Utanríkisráðherrar NATO fengu sama dag skýrsluna kynnta munnlega, hver í sinni
höfuðborg. Henni var svo haldið leyndri í 7 ár en leyndinni var aflétt 2008
þegjandi og hljóðalaust. Prófessor Niels Harrit við Kaupmannahafnarháskóla
hefur gert grein fyrir innihaldi hennar. Á grundvelli skýrslunnar lýsti
Robertson lávarður, aðalritari NATO yfir 2. október: „Á grundvelli þessarar
sönnunar-kynningar hefur það verið staðfest að árásinni á Bandaríkin 11.
september var stjórnað utanlands frá og verður hún því skoðuð sem aðgerð sem 5.
grein Washington-sáttmálans tekur til, þar sem segir að hernaðarárás á einn eða
fleiri bandamenn í Evrópu eða Norður-Ameríku sé skoðuð sem árás á þá alla.“ En
í skýrslu Taylors er bara ekki neitt sem sýnir fram á tengsl afganskra
stjórnvalda við árásirnar 11. september. Kjarnaatriðið – sem fjallaði um þau
tengsl – kom orðrétt fram í yfirlýsingunni sem Robertson lávarður gaf út 2.
október. Svohljóðandi: „Staðreyndiranr eru skýrar og óyggjandi. Við vitum að
einstaklingarnir sem framkvæmdu þessar árásir voru hluti af
alheims-hryðjuverkaneti Al Kaída sem stjórnað er af Osama bin Laden og
liðsforingjum hans og verndað af Talíbanastjórninni.“ Engar frekari sannanir.
Bara einföld fullyrðing, komin frá CIA og Pentagon. En stjórnvöld í samanlögðum
NATO-ríkjum spurðu einskis frekar um sannanir, heldur „stóðu með sínum
bandamönnum“. Engar sannanir hafa síðar komið fram sem tengja Afganistan á
neinn hátt við 11. september, en stríð NATO gegn landinu hefur staðið síðan. www.globalresearch.ca/the-mysterious-frank-taylor-report-the-911-document-that-launched-us-natos-war-on-terrorism-in-the-middle-east/5632874
II. Átyllan
til að ráðast á Írak var sviðssett. Við þekkjum hana. Skýrsluna sem sem Colin
Powell varnarmálaráðherra gaf Öryggsiráðinu 30. janúar 2003. Hún var byggt á
„gögnum“ sem starfsmenn í ráðuneyti Tony Blairs klipptu og límdu saman af
samfélagsmiðlum – um gjöreyðingarvopn Saddams Hussein. Skýrsla Powells var
flutt undir mikilli stríðshljómkviðu vestrænnar pressu. Mótmælin gegn þessu
stríði voru reyndar svo gríðarleg að nokkur NATO-ríki heltust úr lestinni og
NATO gat ekki staðið formlega að innrásinni, lét nægja að gerast aðili að
hernáminu á eftir. Og nógu margir NATO-ráðherrar, bandalag viljugra, létu
þessar „sannanir“ nægja og „stóðu með sínum bandamönnum“. Árás Vestursins á
Miðausturlönd var hafin.
III. Sviðssetningin í Líbíu tókst „betur“. Vestrænar fréttastofur þróuðu þá tækni að
búa til stríðsæsifréttir. Sagðar voru skáldaðar fréttir um fjöldamorð og
fyrirhuguð fjöldamorð Gaddafís á þegnum sínum ásamt skálduðum fréttum af
spontan uppreisn þegnanna. Það nægði ráðherrum NATO og þeir ákváðu einróma að
hefja lofthernað gegn Líbíu. Þeir spurðu ekki um frekari sannanir, og landið er
í tætlum síðan.
IV. Stríðið
gegn Sýrlandi er aðallega þríþætt: með þungvopnuðum leiguherjum fjölþjóðlegra
íslamista, með viðskiptabanni/diplómatískri útskúfun og með háþróaðri og
samhangandi sviðssetningu vestrænnar pressu, leikstýrðri leiksýningu sem ber
yfirskriftina „uppreisn gegn ógnarstjórn“. Sýningin er afar vel auglýst og
kaflar úr henni hafa fengið Óskarasverðlaunin. Þetta virðist þó ekki duga til að
koma á hinum tilætluðu „valdaskiptum“. Þess vegna getur maður enn átt von á
skelfilegum sviðssetningum frá óvinum Sýrlands.
V. Sviðssetningin í Salisbury virðist vera illa valin og illa leikstýrð, æpandi
órökræn og ótrúverðug í alla staði. Hefði gamli njósnarinn Skripal verið mjög
hættulegur Rússum hefðu þeir ekki sleppt honum í fangaskiptum. Ef þeir vildu
eitra fyrir hann var auðveldara að gera það meðan hann var í fangelsinu heima.
Fyrirfram var í gangi mikil herferð á Vesturlöndum til að gera skrímsli úr Pútín
og einangra Rússa. Afskaplega er ólíklegt að Rússar kysu að auka á þá einangrun
með diplómatískum skandala, allra síst í aðdraganda HM. Nú, fróðir menn segja
að Bretar geti vel framleitt eiturefnið novitjok, í tilraunaverksmiðju hersins
við Salisbury, Porton Down. Og Pentagon er á kafi í efnavopnaprógrömmum þeirrar verksmiðju. Ekkert hefur verið lagt fram sem líkist sönnun á þátttöku Rússa í
atburðinum. Enda sagði Theresa May aldrei að umrætt taugagas væri rússneskt,
aðeins „af tegund sem þróuð var í Rússlandi“. Rússar eru krafðir skýringa en
þegar þeir stinga upp á sameiginlegri rannsókn er því hafnað. En Guðlaugur Þór
og aðrir utanríkisráðherrar NATO spyrja bara ekkert um sannanir. Hann og þeir
hinir segjast bara „standa með sínum bandamönnum“ (og engar athugasemdir
heyrast frá VG heldur).
Ef þessi
leiksýnig selur – eftir allan lygabálkinn sem einkenndi upphaf fyrri
árásarstríða – er komið upp stórhættulegt pólitískt ástand. Ég hef þó vissa von
um að almenningur kaupi sig ekki inn á þessa síðustu sýningu.
Subscribe to:
Posts (Atom)



