(birtist á Neistum.is 21 maí 2020)
Kjaradeila Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands heldur áfram. FFÍ
beygir sig ekki og Icelandair freistar þess að sniðganga FFÍ. Þarna er
brennipunktur íslenskrar stéttabaráttu í dag. ASÍ og Efling –
stéttarfélag senda flugfreyjum mikilvægar stuðningsyfirlýsingar.
Icelandair hefur lýst yfir að það ætli að ná
20% hagræðingu í launakostnaði fyrir hluthafafund 22. maí. og gengur
fram af mikilli hörku við flugstéttir. Samist hefur um skerðingar við
félög flugmanna og flugvirkja, en Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) hafði
ekki beygt sig undir tilsvarandi. FFÍ hefur ítrekað hafnað útspili
Icelandair sem félagið segir að feli í sér „tugprósenta launalækkanir
og skerðingu á réttindum til frambúðar.“
Icelandair breytir ekki
stefnu sinni. „Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins 20. maí skoðar
Icelandair möguleika á að stofna nýtt stéttarfélag flugfreyja og
samkvæmt Fréttablaðinu hyggst Icelandair láta reyna á
forgangsréttarákvæði kjarasamnings FFÍ fyrir félagsdómi náist ekki
samningur.“
https://www.ffi.is/ Ef
þetta er rétt hermt er ljóst að Icelandair stefnir að því að ráða
flugfreyjur sem standa utan Flugfreyjufélags Íslands. Atvinnulausar
flugfreyjur eru nú mjög margar, íslenskar og miklu fleiri erlendar.
Hvernig Icelandair ætlar að safna liði og stofna stéttarfélag vitum við
hins vegar ekki, en við vitum til hvers. Og það blasir við að
kjaradeila Icelandair og FFÍ er núna brennipunktur stéttabaráttunnar í
landinu. Fordæmisgildið er mikið á báða bóga.
ASÍ: sættum okkur ekki við union busting
Drífa Snædal forseti ASÍ sendi í gær, 20.
maí, frá sér skorinorða yfirlýsingu af tilefni áðurnefndrar fréttar og
þar segir: „Framganga Icelandair í samningaviðræðum við flugfreyjur
hefur verið með ólíkindum og er til þess fallin að draga úr almennu
trausti í garð þessa rótgróna flugfélags. Þetta er ekki flugfélagið
okkar allra sem býður okkur velkomin heim. Við munum ekki sætta okkur
við aðferðir sem á ensku eru kallaðar union busting og ganga út á að
grafa undan samstöðu launafólks og eyðileggja verkalýðsfélög.
Verkalýðshreyfingin mun ekki sitja með hendur í skauti andspænis slíkum
aðgerðum.“
https://www.ffi.is/
Efling
– stéttarfélag sendi líka þann 20. maí frá sér mikilvæga yfirlýsingu í
tilefni af þessari deilu. Þar er þess krafist íslenska ríkið, og
einnig lífeyrissjóðir, hafni því að styðja við fyrirtæki sem stundar
árásir á lögvarin réttindi verkafólks.
Ályktun stjórnar Eflingar vegna kjaradeilu Icelandair og FFÍ:
„Stjórn Eflingar – stéttarfélags lýsir reiði
og undrun vegna framgöngu Icelandair í garð flugfreyja og
stéttarfélags þeirra, Flugfreyjufélags Íslands, í tengslum við
yfirstandandi kjaraviðræður.
Icelandair hefur að mati stjórnar
Eflingar notfært sér óvissu og efnahagssamdrátt vegna
Kórónaveirufaraldursins til að klekkja á flugfreyjum á einkar
tækifærissinnaðan og ósanngjarnan hátt. Stjórn Eflingar telur að
flugfreyjur eins og annað verkafólk innan vébanda ASÍ eigi rétt á
sambærilegum kjarasamningi og þeim sem nú er í gildi hjá yfirgnæfandi
meirihluta félagsmanna aðildarfélaga ASÍ.
Fréttir í helstu
fjölmiðlum herma að Icelandair hyggist leita leiða til að ráða
flugfreyjur utan stéttarfélaga eða jafnvel beita sér fyrir stofnun
sérstaks stéttarfélags í þeim tilgangi að geta samið um verri kjör fyrir
flugfreyjur.
Þessir starfshættir eru gróf ögrun við lög, venjur og sameiginlegan skiling aðila sem íslenskur vinnumarkaður byggir á.
Verkafólk
á skýlausan rétt til að bindast samtökum í stéttarfélagi til að semja
um sín kaup og kjör. Sá réttur er mannréttindi og er varinn af bæði
lögum og stjórnarskrá. Allt verkafólk á ríka hagsmuni af því að standa
sameiginlegan vörð um þennan rétt.
Ætli íslensk stórfyrirtæki nú
með aðstoð hins opinbera að hefja árásir á þessi grunnréttindi
verkafólks mun Efling – stéttarfélag ekki horfa upp á það þegjandi og
hljóðalaust.
Stjórn Eflingar bendir á að Icelandair er að stórum
hluta í eigu lífeyrissjóða, sem eru sameiginlegir sjóðir launafólks og
undir stjórn þeirra. Lífeyrissjóðir hljóta að hafna því að fjárfesta í
fyrirtækjum sem stunda beinar árásir á grunnréttindi launafólks.
Að
sama skapi bendir stjórn Eflingar á að íslenska ríkið heldur nú uppi
rekstri Icelandair með beinum stuðningi. Stjórn Eflingar krefst þess að
íslenska ríkið, rétt eins og lífeyrissjóðir, hafna því að styðja við
fyrirtæki sem stunda árásir á lögvarin réttindi verkafólks.“
Sjá hér.