(birtist á
Neistar.is 8. nóvember 2019)
Jim Ratcliffe skoðar nýjar landeignir
Landakaup erlendra stóreignamanna
Uppkaup
erlendra stóreignamanna á íslensku landi vekur kurr í samfélaginu.
Sigurður Ingi Jóhannson segir að endurskoða þurfi lög um jarðeignir
útlendinga og setja „stífa umgjörð um jarðamál“. Slík orð hafa svo sem
heyrst áður, en fátt gerist – og á meðan er landið áfram selt í bútum.
Í
sveitinni minni fyrir norðan var innsti bærinn nýlega seldur Ameríkönum
(Eleven Experience) sem þegar eiga margar jarðir í Fljótum og
Tröllaskaga og stunda þar hótelrekstur, þyrluskíðaferðir, vélsleðaferðir
og laxveiði. Stærri í sniðum er landssalan kringum breska félagið
Halicia í eigu breska auðjöfursins Jims Ratcliffe. Sjónvarpsþátturinn
Kveikur 5. nóvember fór skilmerkilega í gegnum hina skyndilegu og
stórtæku eignamyndum hans á Norðausturlandi.
Ratcliffe keypti
fyrstu jörðina snemma árs 2016 og skömmu síðar keypti hann Grímsstaði á
Fjöllum. Síðan hefur hann fyrst og fremst keypt jarðir með veiðiréttindi
í bestu laxveiðiám Vopnafjarðar og Þistilfjarðar en einnig jarðir sem
liggja að Finnafirði í Bakkaflóa (stórskipahöfnin). Á árunum 2017-18
sótti félag hans ört fram, hann keypti m.a. jarðir Jóhannesar
Kristinssonar viðskiptafélaga síns (félagið Grænaþing og fleiri félög).
Og á árinu 2019 hefur hann enn hert róðurinn: „Svo Jim Ratcliffe á nú
meirihluta í 30 jörðum, sem er rúmlega tvöfalt meira en í ársbyrjun í
fyrra. Að auki á hann minnihluta í níu jörðum...“ [Stærð landsins er upp
á] „...1400 til 1500 ferkílómetra, sem er um 1,4% af flatarmáli
Íslands. Það er meira en 17 sinnum stærra en Þingvallavatn“, sagði
Tryggvi Aðalbjörnsson hjá Kveik. Samt hefur maðurinn ekki eytt í
jarðakaupin nema rúmlega helmingi af verði einkaþotunnar sem hann flýgur
á til landsins!
Orð og gjörðir stjórnvalda í austur og vestur
Viðbrögð
ríkisstjórnarinnar: Sigurður Ingi hefur kallað eftir „stífri umgjörð um
jarðamál“. En hverjar eru aðgerðir stjórnvalda í málinu? Lítið hefur
farið fyrir þeim, annað en frumvarp frá landbúnaðarráðherra í október
sem, ef það yrði að lögum, „myndi takmarka atkvæðarétt umsvifamikilla
landeigenda í veiðifélögum“. Gísli Ásgeirsson framkvæmdastjóri Halicia
segir að vísu að þau lög beinist sérstaklega gegn Ratcliffe. En ekki
virka þau sérlega ógnandi.
Sjá umfjöllun Kveiks
Meðan orð snúa í austur snúa gjörðir í vestur.
Vísir skrifar: „Ratcliffe
og Hafrannsóknarstofnun undirrituðu samkomulag um miðjan ágúst um
rannsókn, sem er að fullu fjármögnuð af Ratcliffe. Rannsóknin nær til
nýrra sviða vistfræði og hegðunar laxins.“ Sem sagt, samtímis þessum
nasablæstri ráðherra (annars ráðherra) gegn (erlendum) stóreignamönnum
gerir Hafrannsóknarstofnun samstarfssamning við þann langstærsta meðal
þeirra. Og samkvæmt lögum heyrir Hafrannsóknarstofnun undir
sjávarútvegsráðherra, sem líka er landbúnaðarráðherra! Getur þetta með
nokkru móti boðað einhverja stórsókn gegn landsölustefnunni?
Land,
vatn, veiðihlunnindi og önnur náttúrugæði eru sívaxandi að verðgildi í
veröldinni og þróunin í okkar heimshluta er ennþá í átt til
markaðsvæðingar og einkavæðingar þeirra. Hér á landi gengur þetta í
skrefum: Markaðsvæðing fiskimiðanna og söfnun kvótans á örfáar hendur,
nýleg skref tekin til einkavæðingar orkunnar – við munum Magma-ævintýrið
– og við sáum Alþingi undirgangast orkustefnu ESB og þar með
markaðsvæðingu raforkunnar, uppskiptingu orkufyrirtækja m.m., með
orkupökkunum. Sala lands á evrópskum markaði er hluti af sömu þróun.
Skref fyrir skref.
Breytileg lög um eignarhald á landi
Staðreyndin
er að lagaumhverfið okkar býður upp á að landið seljist hæstbjóðanda,
innlendum sem erlendum, á evrópskum markaði. Þá er ástæða til að spyrja:
Hvernig varð lagaumhverfið svona? Förum aðeins aftar í tímann og skoðum
sérstaklega eignarhald á landi.
Yfirráð yfir landi, landgæðum og
auðlindum eru snar þáttur í fullveldi ríkja. Þess vegna hafa fullvalda
ríki gjarnan sett sér lög um eignarhald á landi, m.a. til að tryggja að
það sé í höndum eigin þegna.
Lög hérlendis um eignarhald á landi
fylgja lögum um fasteignir. Árið 1919, þegar fullveldið var ungt, voru
sett lög um fasteignir á Íslandi: „almenn lög á Íslandi um takmörkun á
heimildum erlendra aðila til að eiga fasteignir á Íslandi“ og voru byggð
á því, eins og fossalögin frá 1907, að heimilisfesti á Íslandi væri
skilyrði fyrir því að menn gætu öðlast eignarrétt eða notkunarrétt á
fasteignum hér á landi.“ Sömuleiðis í fasteignalögum frá 1966 var „miðað
við íslenskt ríkisfang sem skilyrði fyrir því að mega öðlast eignarrétt
eða afnotarétt yfir fasteignum hér á landi.“ Sjá
lög nr. 19/1966
„EES-samningurinn leiddi okkur til nútímans“
Mestu
straumhvörfin urðu með EES-samningnum. Í kjölfar hans gjörbreyttist
lagaumhverfið. Sömuleiðis hafði hann grundvallaráhrif á íslenskt
atvinnulíf og stjórnmál líka. Fyrsta grundvallarprinsipp samningsins, og
grundvallarprinsipp ESB, var frjálsir fjármagnsflutningar yfir
landamæri. Hann fól líka í sér rétt erlendra ríkisborgara af EES-svæðinu
til að eignast fasteignir og land hérlendis (og auðlindir sem landi
fylgja), með tilvísun til reglna um fjármagnsflutninga og reglunnar um
að ekki skuli „mismuna á grundvelli þjóðernis“.
Það er staðreynd
að í kjölfar EES-samningsins stormaði nýfrjálshyggjan fram í landinu.
Áhrif samningsins voru bæði bein, m.a. í lagaumhverfi, og óbein eða
hugarfarsleg. Hvers konar hömlur eða takmarkanir á viðskiptum voru nú
dæmdar úreltar, markaðshyggjan bauð allsherjarlausnir. Hægrimenn og
markaðskratar fóru fyrir, hinir komu á eftir. Ekki held ég því fram að
öll frjálshyggjuþróunin hér sé til komin vegna EES-samningsins
(markaðsvæðing fiskimiðanna var t.d. þegar komin), en hann auðveldaði
sannarlega banksterum og markaðsöflunum sóknina. Með nýfrjálshyggjunni
fylgir systir hennar, alþjóðavæðingin.
Í umræðunni um samninginn
hafði einmitt verið harður ágreiningur um þau ákvæði er sneru
sérstaklega að kaupum útlendinga á landi, og kallað var eftir því (af
Hjörleifi Guttormssyni og fleirum) að í þeim efnum yrðu miklu skýrari
skorður settar. Niðurstaðan varð samt sú að Ísland opnaðist mjög fyrir
erlendu eignarhaldi á jarðnæði.
Þegar Viðeyjarstjórnin var mynduð
1991 stóðu umræðurnar um EES-samninginn sem hæst. Og ekki löngu síðar
voru eiginlega allar kröfur Íslands um varanlega fyrirvara við eign
erlendra ríkisborgara á Íslandi felldar niður með einni undatekningu:
varðandi fjárfestingar í sjávarútvegi.
Eftir þetta tók mat á
löggjöf um viðskipti með land og fasteignir mið af EES-samningnum (enda
hefur hann forgang fram yfir þjóðlega löggjöf). Spurt var hvort eldri
takmarkanir „ættu stoð í EES-samningnum“. Lagabreytingar voru gerðar í
enn frekari frjálsræðisátt árið 1997 (að forgöngu Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra) með tilvísun til laga um frjálsa fjármagnsflutninga.
Og með jarðalögum árið 2004 var bæði rýmkaður réttur útlendinga til
landeigna og réttur landeigenda til frjálsra viðskipta án afskipta
stjórnvalda.
Sjá lög nr. 81/2004
Í athugasemdum við það frumvarp kemur fram að nýmælin þar eigi rætur að
rekja til þess að ESA hefði gert athugasemdir við ýmis ákvæði jarðalaga
og talið þau brjóta gegn EES-samningnum. Það snerti m.a.
búsetuskilyrði. Þing og ríkisstjórn beygðu sig undir þetta, og beygðu
sig jafnvel dýpra en þau strangt tekið hefðu þurft að gera. Það var
kaldhæðnislegt að ráðherrann sem flutti málið 2004 var Guðni Ágústsson.
Ekkert von á góðu
Með þeim
hraða sem verið hefur á umræddri landssölu síðustu misseri gætum við
verið að horfa fram á ófélega formgerð landbúnaðar með stóreignastétt
landeigenda, að verulegu leyti utan lands, og svo leiguliða þeirra líkt
og á 17. öld. Ástandið er þegar orðið óþolandi.
Niðurstaða
þróunarinnar sem hér var rakin varð sú að íslensk lög opna nú mun meira á
erlenda eign á landi en t.d. lög í ESB-landinu Danmörku þar sem eign á
landbúnaðarlandi er háð skilyrðum um búsetu (með undantekningum þó).
Slík grundvallarregla væri æskileg. En slík grundvallarregla er þó
klárlega ekki „í anda“ EES-samningsins (ekki í anda alþjóðavæðingar). Og
ef reynt verður að reisa takmarkanir gegn þessari þróun verður
örugglega spurt hvort það „eigi stoð í EES-samningnum“. Neikvætt svar
við því er litið alvarlegum augum af ríkisstjórninni, sbr nýlega
áróðursherferð ríkisstjórnarinnar um EES. Gerum okkur því engar
gyllivonir.