Monday, March 5, 2018

Aleppó, taka tvö



RÚV endurflytur okkur bestsellerinn „Blóðbaðið í Aleppó“ og kallar hann núna „Blóðbaðið í Austur-Ghouta“. Og er um framferði Sýrlandsstjórnar og Rússa þar og brot þeirra á samþykktum SÞ og glæpi gegn mannúð, þar sem þeir beini sprengjum sínum einkum að börnum og sjúkrastofnunum. Og RÚV vitnar á víxl í „Sýrlensku mannréttindavaktina SOHR“ eða Óskarsverðlaunasamtökin Hvítu hjálmana, að því marki sem heimildir eru tilfærðar. Það er rétt hjá RÚV að átökin eru mjög mannskæð. Óumflýjanlega. Austur-Ghouta hefur frá 2012 verið afar vel víggirt hreiður „uppreisnarmanna“. Þeir eru ekki hófsamir. Helstu hóparnir eru Jaish al-Islam sem kostaður er af Sádum og viðurkennir að „standa nálægt“ Al Kaída, Faylaq al-Rahman sem kostaður er af Qatar og svo Ahrar al-Sham sem er annað nafn á al-Nusra (Al Kaída). Allir eru þeir öfgasinnaðir súnní-íslamistar með stefnu á sharíalög. RÚV talar bara um „uppreisnarmenn“. RÚV nefnir ekki að þessir hópar skjóta reglulega frá A-Ghouta inn í Damaskus. Ég les nýlegar tölur að þær sprengingar hafi drepið 11 þúsund borgarbúa og limlest 30 þúsund frá 2012. RÚV fullyrðir óhikað að Sýrlandsstjórn brjóti samþykkt Öryggisráðsins um vopnahlé frá 24. febr, en það er ekki sjálfgefið af því sú vopnahléssamþykkt undanskildi hópa tengda bæði ISIS og Al Kaída. RÚV talaði einhvern veginn allt öðru vísu um frelsun borganna Raqqa og Mósúl undir sprengjuregni Bandaríkjanna. Þá var það bara „ill nausyn“.


No comments:

Post a Comment