Norðurlönd "sameinast" sumsé gegn Rússum. Nú falla
vötnin til stríðssjávar. 1) Últra hægristjórn rænir völdum í Kiev í febrúar 2014 undir
leiðsögn CIA, sú stjórn hefur síðan verið vopnuð af USA. 2) NATO og einkum USA hafa
flutt eldflaugaskotpalla og háþróuð vopn að vesturlandamærum Rússlands, nyrst
sem syðst. 3) Svonefndur samstarfssamningur Úkraínu við ESB bætti næststærsta
landi Evrópu við þessa víglínu. Þar sagði: „Samstarfssamningurinn mun stuðla að
samlögun aðilanna á sviði utanríkis- og öryggismála og stefnir að dýpri þátttöku Úkraínu í evrópska
öryggiskerfinu“. Þetta var meira en stórveldið Rússland gat þolað (sbr. hernám Krím m.m.). 4) Ný
stjórnvöld Úkraínu breyta nú sögunni. Júsjenkó fyrrum forsætisráðherra,
ástmögur Vesturlanda, veitti Bandera, fasistanum úr seinna stríði, orðuna
"Hetja Úkraínu". Og nú segir Porosjenkó forseti að Stalín hafi hafið
seinna stríð með Hitler. Hillary Clinton líkir Pútín við Hitler. 5) Gunnar
Bragi ákveður að senda ekki ráðherra til Moskvu 9. maí á 70 ára friðarhátíð.
Pólverjar ákváðu líka að hundsa Rússa á afmæli frelsunar Auschwitz (sem Rússar eða öllu heldur Sovétmenn frelsuðu) af því Pútín er skrímsli. 6) Nato mun halda stærstu
loftheræfingu heimsins í Skandinavíu í vor um leið og Norðurlönd mynda bandalagið gegn Rússum. 7) Þingið og Fulltrúadeildin í Washington veita Obama umboð til að
vopna Úkraínu og búa hana undir stríð.
Hér má lesa greinar eftir ÞÓRARIN HJARTARSON um þjóðfélagsmál úr mismunandi miðlum frá og með 2009 (bloggsíðan stofnuð 2012). Um yfirgang og hernaðarstefnu heimsvaldasinna og andófið gegn þeim. Um framrás hnattvædds kapítalisma og viðnámið gegn honum. Um aðkallandi verkefni verkalýðshreyfingarinnar. Um sögu og framtíð sósíalismans. Í febrúar 2017 eru greinarnar orðnar 134.
Sunday, April 12, 2015
Tuesday, March 24, 2015
Friðarbaráttan og SHA
(Birtist á Friðarvefnum 18/3 2015)
Friðarhreyfingin á Vesturlöndum hefur undanfarin ár verið
lítt virk og sýnist mjög ráðvillt gagnvart nýjum stríðum í Líbíu, Sýrlandi,
Írak, Úkraínu og víðar. Ekki heldur SHA á Íslandi tekst að taka skýra afstöðu Í
þessum stríðum, hvað þá að skipuleggja öfluga baráttu fyrir friði.
Þetta er breyting frá því sem áður var. Ég fékk pólitíska
skírn í baráttunni gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna í Víetnam, stríði sem ól af
sér mesta andheimsvaldastarf 20. aldarinnar. Alþjóðleg samstaða átti stóran
þátt í sigri víetnömsku þjóðarinnar 1975 og sú hreyfing olli pólitískri ólgu á
Vesturlöndum og gerði mína kynslóð róttæka. Viðlíka gerðist aftur í tengslum
við innrás „hinna viljugu“ í Írak 2003. Þá kviknaði aftur öflug grasrótarbarátta
gegn stríði um hinn vestræna heim. Mannfjöldinn í götumótmælum var hliðstæður
við hátinda Víetnambaráttunnar. Og mótmælahreyfingin gegn stríðinu vann
áróðursstríðið svo Bush og Blair stóðu uppi sem ærulausir stríðsglæpamenn sem
höfðu falsað gögnin um „gjöreyðingarvopn Saddams“.
Mótmælin gegn Íraksstríðinu á Íslandi voru líka mjög kröftug. Mánuðum
saman voru vikulegir útifundir haldnir í Reykjavík. Allt annað gildir um
nýjustu stríðin. Engin mótmæli eða ályktanir komu frá SHA né öðrum þegar stríð NATO
geysaði í Líbíu. Og sama er uppi á teningnum í Sýrlandi, í stríði sem USA og
ESB-veldin reka gegnum staðgengla. Breytingin er afskaplega sláandi. Ég ætla að
slá því fram að meginorsakirnar séu tvær:
Í FYRSTA LAGI skýrist hin ráðvilta afstaða fjölmargra friðarhreyfinga af því að heimsvaldasinnar tóku upp „smart power“ (sniðuga beitingu valds). Þeir píska upp stemningu gegn útvöldum „harðstjórum“, beita fyrir sig mannréttindasamtökum (NGO´s) og skipuleggja miklar ófrægingarherferðir gegnum heimspressuna. Slíkar herferðir geta tekið stefnu á íhlutun frá „alþjóðasamfélaginu“ undir merkjum „mannúðarinnrásar“ (sbr Líbíu), eða þá, sem algengara hefur orðið, að valin er leið stríðs gegnum staðgengla. Þá felst íhlutunin í að styðja uppreisn óánægðra trúarhópa eða þjóðernishópa og byggja upp og vopna her málaliða, oftast undir trúarlegri eða þjóðernislegri yfirskrift. Þriðja aðferðin er að ráðist er á fórnarlömbin út frá endurnýjaðri kennisetningu um „stríð gegn hryðjuverkum“ (sbr Sýrland og Írak 2014). Lömun friðarhreyfingarinnar liggur þá í því að hún kaupir að einhverju leyti þessar opinberu skýringar stríðsaflanna á hernaðinum. Um þessar aðferðir kenndar við „smart power“ fjalla ég í annarri grein:
Friday, February 20, 2015
Sviðsett hryðjuverk. Verkfæri stríðs og yfirdrottnunar
Við erum kaffærð í fréttum af hryðjuverkum og
hryðjuverkasamtökum. Það sem af er árinu 2015 hafa fjölmiðlar verið bólgnir af
skelfingarsögum af Íslamska ríkinu í Arabalöndum, samtökum sem ku ógna vestrænni
siðmenningu; einnig bólgnuðu þeir vegna morðanna á ritstjórnarskrifstofu
Charlie Hebdo í París. Bræðurnir Kouachi voru nýkomnir úr stríðinu í Sýrlandi
og ekki langsótt að tengja þá við Íslamska ríkið. Mikið kastljós beindist í framhaldinu að varðstöðu
vestrænna leiðtoga um tjáningarfrelsið og hertan lofthernað þeirra gegn
hryðjuverkamönnunum í Sýrlandi og Írak. Þegar þessi grein er send til birtingar
berast fréttir af hryðjuverki í Kaupmannahöfn, fréttir segja það líklega undir
áhrifum frá morðunum í París. Alls staðar eru íslamskir hryðjuverkamenn strax hafðir
fyrir sök. Á Íslandi er ein afleiðing þessa umræðan um ”forvirkar rannsóknarheimildir” á borgurunum og stofnun íslenskrar
leyniþjónsutu er í kortunum.
Vestrænir heimsvaldasinnar valda mestu um styrjaldir okkar
daga. Þetta sem ég nefni vestræna heimsvaldasinna mætti eins kalla „hnattræna
elítu“ ef menn frekar vilja, eða „ránskerfi hnattræns fáveldis“. Umrædd elíta
er þröngur hópur og þjappast stöðugt saman, 1%, 0,1%, 0.01% íbúa í viðkomandi
ríkjum.... Lögmál „frjálsrar samkeppni“ krefjast stöðugrar útþenslu, og
arðránskerfi þessarar elítu teygist um heim allan. Hún berst stöðugt fyrir
heimsyfirráðum. Til þess þarf mikla valdbeitingu – og tilefni til valdbeitingar.
Kosnar ríkisstjórnir þurfa ákveðið samþykki frá almenningi, og helst virkan stuðning, til að heyja
styrjöld, og það er flóknara að tryggja stuðning almennings þegar stríðin
snúast ekki um landvarnir heldur hernað í fjarlægum heimshornum. Vestrænir
heimsvaldasinnar geta ekki með góðu móti rekið ránsstyrjaldir sínar í krafti
kynþáttahyggju eigin landsmanna líkt og var á 19. öld þegar þeir undirokuðu
„villtar“, „heiðnar“ eða „óæðri“ þjóðir. Eftir seinni heimsstyrjöld barðist vestræn
heimsvaldastefna, undir bandarískri forustu,
einkum gegn grýlu kommúnismans um heim allan og þróaði til þess
hernaðarkerfi sem enn er við lýði þó kommúnisminn sem slíkur sé ekki fyrir
hendi. Til að tryggja arðránskerfið með valdi eftir það þurfti nýjar
réttlætingar og meiri hyggindi.
Saturday, February 7, 2015
Ný og sniðug heimsvaldastefna
(Birtist í Morgunblaðinu 29. janúar 2015)
Friðarhreyfingin á Íslandi er hálflömuð, eins og víðast um
hinn vestræna heim. Ekki vantar þó verkefnin enda ófriðvænlegra í heiminum en
verið hefur í hálfa öld. Friðarhreyfing sú sem velgdi Bush og Blair undir uggum
kringum innrásina í Írak 2003 hefur undanfarin ár verið óvirk og ráðvilt
gagnvart nýjum stríðum í Líbíu, Sýrlandi, Írak, Úkraínu... Samtök
hernaðarandstæðinga á Íslandi tekst ekki, frekar en friðarhreyfingu Evrópu, að taka
skýra afstöðu í neinu af þessum stríðum, hvað þá að skipuleggja baráttu fyrir
friði. Ég velti ástæðunum fyrir mér.
Árásirnar á Afganistan 2001 og Írak 2003 voru gamaldags
innrásir í ætt við herferðir Hitlers um Evrópu eða stríðið í Víetnam, þó þær
væru sagðar farnar til að útrýma „hryðjuverkamönnum“ og „gjöreyðingarvopnum“. Bandaríkjunum
gekk þó heldur illa að fylkja bandamönnunum að baki sér í Írak, sbr. afstöðu
Frakklands og Þýskalands, enda reis upp gríðarlega öflug friðarhreyfing gegn stríðinu,
ekki síst í Evrópu. Hún lét blekkingaráróður ekki blinda sig. Hún afhjúpaði það
að stríðið snérist um gamalkunn efni: olíu, auðlindir og áhrifasvæði í anda gamllar
nýlendustefnu og bað innrásaröflin snauta heim. Stríðið varð illræmt meðal
almennings og innrásaröflunum dýrt.
Bandarískir strategistar drógu lærdóm af vandræðunum.
Suzanne Nossel er bandarískur demókrati sem rokkar á milli forustuembætta hjá
SÞ, Utanríkisráðuneytinu og sk. mannréttindastofnunum. Árið 2004 skrifaði hún
grein í Foreign Affairs og boðaði
„frjálslynda alþjóðahyggju“. Hún gagnrýndi tilhneigingu Bush-stjórnarinnar til
einhliða hernaðaraðgerða, Bandaríkin yrðu að læra að tileinka sér „SMART POWER“,
að sameina hernaðarmátt sinn og baráttu fyrir framsæknum og húmanískum gildum.
Síðan hefur hernaðaraðferðin verið þróuð af Hillary Clinton
og hennar líkum. Lykilatriði er að beita fyrir sig „frjálsum félagasamtökum“
(NGO´s). Ein slík eru National Endowment for Democracy (NED), stofnuð 1983 (önnur
eru US Agency for International Development (USAID)). NED eru afar fjársterk
stofnun, sérhæfð í að grafa undan stjórnvöldum sem standa að „ófrelsi“, m.ö.o.
þóknast ekki Vesturveldunum.
Saturday, December 20, 2014
Ný skref í uppgjörinu við Rússa
(birtist á fésbókarsíðu Samtaka hernaðarandstæðinga 19. des. 2014)
Í USA hafa þingið og fulltrúadeildin samþykkt lagafrumvarp, "Ukraine Freedom Support Act". Þegar Obama hefur undirritað það er stórt skerf stigið í átt til stríðs, því lögin hljóða upp á umfangsmikla vopnaaðstoð Bandaríkjanna við úkraínska herinn ásamt þjálfun og hernaðarráðgjöfum. Með lögunum skuldbinda Bandaríkin sig ennfremur sig til að tryggja Úkraínu, Georgíu og Moldóvu stöðu sem "major non-NATO ally". Sú staða gefur eins konar aukaaðild að NATO fyrir lönd með mikla hernaðarlega þýðingu, og eykur mjög gagnkvæmar skuldbindingar þessara ríkja og NATO. Atburðarásin allt árið 2014 bendir eindregið til að USA (með bandamennina í eftirdragi) hafi ákveðið að taka uppgjör við Rússa NÚNA. Lagafrumvarpið má lesa hér.
Refsiaðgerðirnar og efnahagshernaðurinn gegn Rússum, þ.á.m. verðfelling Sáda á olíunni, er farinn að bíta. Rúblan hríðfellur svo nú fer að sverfa að almenningi. Verðbólgan fer upp í 10% og hörgull er á æ fleiri nauðsynjavörum vegna viðskiptahafta. Pútín talar opinskátt um það í ræðum að hugsun USA og NATO-veldanna með refsiaðgerðunum sé að valda ólgu meðal almennings og litabyltingu í stíl við Júgóslavíu og Úkraínu. Það mun vera raunsætt mat.
Í USA hafa þingið og fulltrúadeildin samþykkt lagafrumvarp, "Ukraine Freedom Support Act". Þegar Obama hefur undirritað það er stórt skerf stigið í átt til stríðs, því lögin hljóða upp á umfangsmikla vopnaaðstoð Bandaríkjanna við úkraínska herinn ásamt þjálfun og hernaðarráðgjöfum. Með lögunum skuldbinda Bandaríkin sig ennfremur sig til að tryggja Úkraínu, Georgíu og Moldóvu stöðu sem "major non-NATO ally". Sú staða gefur eins konar aukaaðild að NATO fyrir lönd með mikla hernaðarlega þýðingu, og eykur mjög gagnkvæmar skuldbindingar þessara ríkja og NATO. Atburðarásin allt árið 2014 bendir eindregið til að USA (með bandamennina í eftirdragi) hafi ákveðið að taka uppgjör við Rússa NÚNA. Lagafrumvarpið má lesa hér.
Refsiaðgerðirnar og efnahagshernaðurinn gegn Rússum, þ.á.m. verðfelling Sáda á olíunni, er farinn að bíta. Rúblan hríðfellur svo nú fer að sverfa að almenningi. Verðbólgan fer upp í 10% og hörgull er á æ fleiri nauðsynjavörum vegna viðskiptahafta. Pútín talar opinskátt um það í ræðum að hugsun USA og NATO-veldanna með refsiaðgerðunum sé að valda ólgu meðal almennings og litabyltingu í stíl við Júgóslavíu og Úkraínu. Það mun vera raunsætt mat.
Tuesday, November 4, 2014
Miðausturlönd - eyðilegging samkvæmt áætlun
(Birtist á Friðarvefnum 3. nóv. 2014)
Styrjaldargnýrinn í fjarlægð er óslitinn. Þessa stundina er stríð Vestursins háð úr lofti – gegn Íslamska ríkinu svokallaða innan Sýrlands og Írak. Íslamska ríkið er vígahópur sem einkum á rætur í uppreinsinni gegn Assadstjórninni í Sýrlandi. Þar hefur hann að mestu verið vopnaður og fjármagnaður af CIA og af helstu bandarmönnum USA í Miðausturlöndum, s.s. Sádi-Arabíu og Katar. Þetta er aðeins nýjasta stríðið í seríu styrjalda sem Bandaríkin og bandamenn þeirra í NATO og Arabalöndum auk Ísraels standa að. Stríðið er samfellt, en brennipunkturinn flyst til. Samfellt stríð er orðin opinber bandarísk stefna: http://www.globalresearch.ca/war-winds-near-gale-force/5402406
Styrjaldargnýrinn í fjarlægð er óslitinn. Þessa stundina er stríð Vestursins háð úr lofti – gegn Íslamska ríkinu svokallaða innan Sýrlands og Írak. Íslamska ríkið er vígahópur sem einkum á rætur í uppreinsinni gegn Assadstjórninni í Sýrlandi. Þar hefur hann að mestu verið vopnaður og fjármagnaður af CIA og af helstu bandarmönnum USA í Miðausturlöndum, s.s. Sádi-Arabíu og Katar. Þetta er aðeins nýjasta stríðið í seríu styrjalda sem Bandaríkin og bandamenn þeirra í NATO og Arabalöndum auk Ísraels standa að. Stríðið er samfellt, en brennipunkturinn flyst til. Samfellt stríð er orðin opinber bandarísk stefna: http://www.globalresearch.ca/war-winds-near-gale-force/5402406
Enduruppskipting áhrifasvæða frá 1990
Heimsvaldakerfið leyfir ekki valdatómarúm. Saga kapítalískrar heimsvaldastefnu sannar það aftur og aftur. Græðgin í auð og völd er óseðjanleg. Eftir fall Sovétríkjanna raskaðist jafnvægið milli heimsveldanna mjög. Alþjóðastjórnmálin urðu einpóla vegna yfirburðavalds Bandaríkjanna. Margir hinir einföldu töldu að fall Múrsins boðaði frið. En vestrænir heimsvaldasinnar sáu fyrir sér allt annað en frið, nefnilega enduruppskiptingu áhrifasvæða út frá nýjum styrkleikahlutföllum. Og þar sem hægt er að sækja fram sækir maður fram! Frá falli Múrsins varð viðmið Bandaríkjanna heimsyfirráð. Helstu svæði til enduruppskiptingar eftir fall Sovétríkjanna voru Austur-Evrópa og Miðausturlönd. Wesley Clark fyrrum yfirhershöfðingi NATO sagði frá fundi sínum árið 1991 með Paul Wolfowitz, þá vararáðherra og síðar varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Hann sagði þar að Bandaríkin hefðu nú 5-10 ár til að „hreinsa upp þessi gömlu skjólstæðingsríki Sovétríkjanna, Sýrland, Íran og Írak, áður en næsta risaveldi kemur og skorar okkur á hólm.“ Wolfowitz fókusaði á Miðausturlönd af því þaðan streymir olían. Þessi þrjú lönd settu Bandaríkin nú á listann „öxulveldi hins illa“ (og þrjú í viðbót: Líbíu, Norður-Kóreu og Kúbu) og settu í gang stríðsvélar sínar eins og brátt mun sagt verða.
Keppinautar skora risaveldið á hólm
En kapítalísk þróun er ójöfn, gömlu heimsveldin eru hnignandi og kreppuhrjáð. Þrátt fyrir sigur Bandaríkjanna í kalda stríðinu, þrátt fyrir einstæða valdastöðu þeirra og trausta hirð bandamanna hafa ný heimsveldi siglt upp að hlið þeirra í kepninni um heimsmarkaðinn. Dollarinn er að missa stöðu sína sem allsherjargjaldmiðill í alþjóðaviðskiptium og það mun hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir bandaríska hagkerfið. Bandaríska vefritið Business Insider skrifaði núna 8. október síðastliðinn: „Því miður, Ameríka, Kína var að fara fram úr Bandaríkjunum sem stærsta hagkerfi heims, skv. útreikningum AGS.“
Saturday, October 11, 2014
Tvöfalt líf Joe Bidens í Sýrlandi
6. október. Merkilegar játningar hjá Joe
Biden, varaforseta Bandaríkjanna: að ISIS sé enginn erkióvinur heldur
fyrst og fremst verkfæri "vina okkar" í því verki að steypa Assad.
Svo komum við sjálfir [Vestrið] og ráðumst á verkfærið og vinnum um leið
verkið, að steypa Assad. Lesið greinina og skoðið myndbandið!
10. október. Málflutningur Vesturvelda
gerist nú flókinn til að skýra vendinguna frá stuðningi við íslamista í
Sýrlandi yfir í að lýsa þeim sem mestu ógn samtímans. Ein aðalfrétt RÚV í dag
hljóðaði: "Bandaríkjamenn og Tyrkir hafa náð samkomulagi sem felur í sér að
liðsmenn hófsamra uppreisnarmanna í Sýrlandi fái bæði þjálfun og vopn til að
berjast gegn sveitum Íslamska ríkisins." En í ræðu sinni 2. okt
viðurkenndi Joe Biden að sagan um hófsömu uppreisnarmennina væri því miður
uppspuni: "the idea of
identifying a moderate middle has been a chase America has been engaged in for
a long time. We Americans think in every country in transition there’s a Thomas
Jefferson hiding behind some rock, or a James Madison beyond one sand dune. The
fact of the matter is, the ability to identify a moderate middle in Syria
was—there was no moderate middle, because the moderate middle are made up of
shopkeepers, not soldiers." Samt ætlar hann nú að styðja og vopna þessa
sem ekki eru til. Mótsögnin í þessu liggur í tvöföldu hlutverki íslamistanna
(wahabista): sem FÓTGÖNGULIÐAR Vestursins og sem GRÝLA sem réttlætir íhlutun
Vestursins.
Subscribe to:
Posts (Atom)



