Showing posts with label hernaðarútgjöld. Show all posts
Showing posts with label hernaðarútgjöld. Show all posts

Friday, October 19, 2018

NATO í vígahug – Trident Juncture á Íslandi og Noregi


                                   (birtist á neistar.is 16. okt)

                       Harry S Truman, kjarnorkuknúinn, tekur þátt í Trident Juncture. Íslenskir þingmenn og ráðherrar brugðu sér     um borð í skoðunarferð í síðasta mánuði.

Mesta NATO-heræfing við landið og á landinu síðan Kaninn fór er að hefjast: 10 herskip, 6000 sjóliðar, 500 bandarískir landgönguliðar sem æfa landgöngu á Suðurnesjum og æfa svo stríð í Þjórsárdal. Flotaæfingar NATO við Ísland eru orðnar reglulegar. Í fyrra sumar var ein slík þar sem 2-3 þúsund manns frá 9 NATO-ríkjum tóku þátt. Nú er sú tala meira en tvöfölduð. Í boði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Guðlaugur Þór skýrir þetta með stóraukinni umferð rússneskra kafbáta í grennd við Ísland: „jafnvel meiri umsvif en voru á dögum Kalda stríðsins“.

Kafbátaleitarsveitir NATO dvelja nú reglulega á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þar bætist við á annað eða þriðja hundrað manns sem koma þrisvar á ári vegna „loftrýmiseftirlits“. Viðveran eykst jafnt og þétt. Herstövasamningurinn við BNA er enn í gildi. Í stefnumörkun núverandi ríkisstjórnar Íslands segir: "..grunnstoðir utanríkisstefnunnar eru samstarf vestrænna ríkja, evrópskt og norrænt samstarf, aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu, varnarsamningurinn og friðar- og öryggissamstarf." Íslensk stjórnvöld taka líka fullan þátt í efnahagslegum refsiaðgerðum BNA og ESB gegn Rússum sem ég sleppi að ræða hér.

Heræfingin við og á Íslandi er einn upptaktur að gríðarlegri NATO-heræfingu í Noregi – Trident Juncture – þar sem taka þátt 50 þúsund hermenn, 8 þúsund stríðsökutæki og skriðdrekar, 70 herskip og 130 flugvélar. Langstærsta NATO-æfing í Noregi eftir Kalda stríðið og umfangsmesta NATO-heræfing í heimi frá 2002. Noregur á landamæri að Rússlandi og Rússar (utanríkistalsmaður Maria Zakharova) hafa lýst yfir að Noregur sé með þessu að „rjúfa hið langvarandi góða nábýli við Rússland“.

Á Norðurlöndum drögumst við hægt og örugglega inn í kalt og hitnandi stríð. Noregur hefur yfirgefið NATO-skilmálana frá 1949 um að ekki yrðu leyfðar herstöðvar þar á friðartímum. Nú hafa Bandaríkin og NATO fengið tvær herstöðvar í Noregi með fasta viðveru herliðs, og Noregur er óðum að verða að framvarðstöð NATO gegn Rússum. Í farvatninu er uppsetning eldflaugaskotpalla á vegum NATO í Noregi – á norsku nefndir „rakett-skjold“ – en endanleg norsk afgreiðsla málsins hefur þó lítillega tafist. Þetta gerist samtímis því að Svíðþjóð og Finnland hafa algjörlega yfirgefið sína fyrri hlutleysispólitík, t.d. var 20 þúsund manna NATO-æfing (Aurora) í Svíþjóð í fyrra.