(birtist sem almennur fésbókarstatus 1. febrúar 2017)
Tilskipun Trumps um ferðabann 7 þjóða til USA í 3 mán. er eðlilega fordæmd innan og utan USA. En lof mér benda á að það er SAMFELLA í bandarískum stjórnmálum. Nefna ber að Obamastjórnin setti nákvæmlega sömu 7 lönd á lista yfir "countries of concern" gagnvart vegabrésfáritun til USA í fyrra vegna "hryðjuverkahættu". Fjögur þessara landa (Írak, Íran, Líbía, Sýrland) voru á lista Bush yngra yfir "öxulveldi hins illa" og Bandaríkin eru að vinna sig niður þann lista með styrjöldum. Á alls 5 (Sýrland Írak, Jemen, Líbíu, Sómalíu) af 7 þessara múslimalanda var varpað sprengjum í stjórnartíð Obama, af USA og bandamönnum. Sjá hér. Kannski er verra fyrir þjóð að fá á sig sprengjuregn en svona ferðabann? Pólitíski jarðskjálftinn í USA núna stafar að hluta af réttmætri hneykslun almennings, en hitt ræður meiru að við sjáum nú alvarlegan klofning í bandarísku elítunni þar sem þungvægasti hlutinn, hergagnaiðnaðurinn, tækniiðnaðurinn og fjármálaelítan (sem ráða stærstu fjölmiðlum), blæs til orustu gegn forsetanum sem er fulltrúi léttvægari hluta elítunnar. Alvarlegasti glæpur Trumps í augum þungavigtarmanna er líklega friðartal hans gagnvart Rússum og Sýrlandi. Lýðræðið í USA stendur ekki sterkt, en ef valdarán er í uppsiglingu er líklegra að það verði gegn Trump en með honum.
Obama talar í austur, Hillary í suður en Trump í vestur en það eru sömu klíkur og peningaöfl sem ráða mestu á bak við þessar fígúrur og af því stafar samfellan. Valdið í skugganum verður hins vegar herskárra með hverju ári svo vísast munu skammir Trumps gegn hernaðarstefnunni og NATO brátt hljóðna. En þessi djúpi klofningur og stympingar Trumps við að yfirvinna viðnám stjórnkerfisins gerir USA líklega erfiðara en áður að beita sér út á við. Útkoman gæti því orðið aukin einangrunarhyggja vestur þar. Theresa May sagði eftir fund þeirra tveggja: "US and UK will no longer invade foreign countries 'to remake the world in their own image'" Eigum við ekki bara að vona að það gæti orðið þróunin?
Hér má lesa greinar eftir ÞÓRARIN HJARTARSON um þjóðfélagsmál úr mismunandi miðlum frá og með 2009 (bloggsíðan stofnuð 2012). Um yfirgang og hernaðarstefnu heimsvaldasinna og andófið gegn þeim. Um framrás hnattvædds kapítalisma og viðnámið gegn honum. Um aðkallandi verkefni verkalýðshreyfingarinnar. Um sögu og framtíð sósíalismans. Í febrúar 2017 eru greinarnar orðnar 134.
Showing posts with label Obama. Show all posts

Thursday, February 2, 2017
Monday, January 23, 2017
Trúir Obama á Rússalekann?
(birt á fésbók SHA 21. jan 2017)
Obama herti refsiaðerðirnar gegn Rússum í desember og fullyrti þá að „á grundvelli samhljóða leyniþjónustumats báru Rússarnir ábyrgð á að hakka sig inn hjá DNC (landsnefnd Demókrataflokksins)... upplýsingarnar komust í hendur Wikileaks“. Engar slíkar sannanir hafa þó verið lagðar fram, og fyrrverandi CIA-sérfræðingur Ray McGovern tekur hér fyrir yfirlýsingu Obama frá 18. jan þar sem forsetinn viðurkennir að út frá því efni sem leyniþjónustan situr með sé „ekki hægt að álykta“ hvort Wikileaks hafi fengið efnið frá Rússum. Og í yfirlýsingunni talar Obama líka um „leka“ ekki „hakk“. Og þar með er grunnurinn fyrir ákærunni gegn Rússum (og þar með gegn Donald Trump) dottin dauð. Þó mun meginstraumspressan varla láta málið niður falla. Sjá hér.
Þegar Obama kallar það "leka" hefur það þýðingu þar sem það er í samræmi við staðfastar fullyrðingar Julian Assange frá byrjun að þetta hafi verið innri leki og komi ekki frá Rússum (Obama vill kannski samvisku sinnar vegna ekki að síðasta orð hans í málinu sé lygi). En CIA og valdaelítan ákváðu að búa til mál um árás frá Pútin sem vildi koma að "sínum manni", Trump. Tilgangurinn: að grafa undan Trump strax við innsetningu. Kvennagöngurnar "Women´s March on Washington" gætu verið efni í bandaríska"litabyltingu". Frá sjónarhóli valdaelítunnar eru glæpir Trumps þó ekki karlrembutaktarnir alræmdu. Reginglæpur hans er að tala eins og hann ætli að aflýsa stríðsundirbúningnum við Rússa. Hann hefur líka sagt að það sé ekkert að marka CIA sem hafi logið vísvitandi um gjöreyðingavopn Iraka. Slíkt tal verðandi forseta verður ekki fyrirgefið.

Labels:
Bandaríkin,
Donald Trump,
hakk,
leki,
leyniþjónusta,
Obama,
Rússland
Sunday, September 25, 2016
Obama friðardúfa í andsnúnu stjórnkerfi?
(Birt á fésbókarsíðu SHA 14. september 2016)
Ekki þarf að búast við að Bandaríkin standi heil á bak við vopnahléssamkomulagið (um Sýrland) sem þeir gerðu við Rússa um daginn. Að einhverju leyti vegna mótsagna í stjórnkerfinu (hermálaráðuneytið virkar herskárra en utanríkisráðuneytið) en ennþá frekar af því allt stríðið er blekkingarleikur af þeirra hálfu. Það er fyrir hendi ákveðin býsna algeng tilhneiging til að gera Obama að friðelskandi manni í andsnúnu stjórnkerfi. Þrátt fyrir allt hans mjúka orðfæri er hann herskár heimsvaldasinni. Það þýðir þó ekki að vont geti ekki versnað, og endurkoma Hillary Clinton í Hvíta húsið verður vissulega enn eitt skref bandaríska stjórnkerfisins inn í sívaxandi hernaðarstefnu.
Það eru ýmsir í USA miklu herskárri í tali en Obama, rétt er það. Obama hefur annan talsmáta en Bush og nýhægrimenn (og Hillary), Hann hefur lært "soft power" af því það þjónar heimsvaldastefnunni betur. Stefnuna sjáum við ekki af orðum hans heldur gerðum. Stjórn hans hefur smíðað fleiri atómsprengjur en fyrirrennararnir og staðið að meiri hernaðaruppbyggingu í Austur-Evrópu en nokkur þeirra sem og miklu meira hernaðarumsátri um Kína en þeir... Og Sýrlandsstríðið er enn eitt valdaskiptastríð Bandaríkjanna, gangsett í valdatíð hans, dulbúið sem uppreisn. Markmið USA er valdaskipti/sundurlimun landsins, ekki friður. Fordæming á al-Nusra er orð (sem Assad vissulega getur nýtt sér), en gjörðirnar eru vopnun (leynd eða ljós) þessara samtaka og vopnabræðra þeirra með önnur nöfn (Jabhat al-Sham, Jays al-Islam..). Samningur við Rússa er auðvitað bara ný friðsamleg orð, ný taktík Obama/Kerrys, líka taktík af Rússlands hálfu. Raunveruleikinn verður ekki eins friðsamlegur.

Subscribe to:
Posts (Atom)