(birtist á Neistum 16. jan 2019)
Fulltrúar Alþýðufylkingarinnar í minningargöngu Rósu Luxemburg og Karls Liebknecht í Berlín.
Um miðjan janúar árlega safnast kommúnistar og
sósíalistar margra landa saman í Berlín og ganga þar fjöldagöngu til
minningar um uppreisn alþýðu, „ófullgerðu byltinguna“, sem brast á í
nóvember 1918 en var kæfð með miklu ofbeldi í janúar 1919. Þann 15.
janúar það ár voru helstu leiðtogar byltingarinnar, Karl Liebknecht og
Rósa Luxemburg, myrt og þúsundir verkamanna í framhaldinu. Þar sem nú er
öld liðin frá atburðunum var meira haft við en venjulega í Berlín.
Vésteinn Valgarðsson var þar
Á aldarafmælinu, 15. janúar, birti Vésteinn svohljóðandi fésbókarfærslu:
„Í
dag er slétt öld frá því hvítliðar/fasistar myrtu Rósu Luxemburg og
Karl Liebknecht, aðalleiðtoga þýskra kommúnista, og brutu þar með á bak
aftur þýsku nóvemberbyltinguna, ófullgerðu byltinguna. Þessi morð voru
framin með vitund og velþóknun Eberts og annarra krata í ríkisstjórn.
Í
fyrradag gengu mörgþúsund manns í árlegri minningargöngu um Rósu og
Karl, þar á meðal við nokkur frá Íslandi. Þessi árlega ganga er stærsta
reglulega samkoma kommúnista í Evrópu, ef ekki heiminum. Gengið er frá
Frankfurter Tor, um 4 km leið að minnisvarða sósíalista, þar sem margir
frægustu píslarvottar og leiðtogar þýskra sósíalista eru grafnir.
Á
laugardaginn var stór ráðstefna sem við fórum líka á. Og á fimmtudag og
föstudag fórum við á söguslóðir, Landwehrkanal þar sem Rósu Luxemburg
var kastað út í eftir að hafa verið skotin. Ekki er vitað hvort hún var
með lífsmarki þá, en það var hún að minnsta kosti ekki þegar hún var
slædd upp úr síkinu nokkrum dögum seinna.
Við skoðuðum líka
Treptower Park, til minningar um Rauða herinn sem frelsaði Berlín undan
nasistunum. Og styttuna af Marx og Engels.
Þetta var góð ferð.“
Hér má lesa greinar eftir ÞÓRARIN HJARTARSON um þjóðfélagsmál úr mismunandi miðlum frá og með 2009 (bloggsíðan stofnuð 2012). Um yfirgang og hernaðarstefnu heimsvaldasinna og andófið gegn þeim. Um framrás hnattvædds kapítalisma og viðnámið gegn honum. Um aðkallandi verkefni verkalýðshreyfingarinnar. Um sögu og framtíð sósíalismans. Í febrúar 2017 eru greinarnar orðnar 134.
Showing posts with label Karl Liebknecht. Show all posts
Showing posts with label Karl Liebknecht. Show all posts
Monday, January 21, 2019
Subscribe to:
Posts (Atom)
