(birtist á fésbók SHA 24. og 26. júlí 2017)
Í vikunni sáust a.m.k. tvenn merki um mögulega stefnubreytingu Bandaríkjanna í Sýrlandsstríði.
I. Fyrir viku greindi RÚV frá að CIA ætlaði að hætta stuðningi við hópa uppreisnarmanna í Sýrlandi og snúa þannig við stefnu sem Obamastjórnin tók 2012. Í framhaldinu greindi Finacial Times frá skiljanlegum áhyggjum sýrleskra uppreisnarhópa (og John McCain) af þessum sökum. En í barlómi þeirra kemur skýrt fram merkilegt atriði sem ekki er daglega fjallað um í vestrænum fjölmiðlum, að jíhadistarnir eru ekki bara vopnaðir af CIA, þeir eru á LAUNASKRÁ CIA: "Einn uppreisnaryfirmaður sem vildi ekki láta nafns síns getið sagði að stuðningur Bandaríkjanna hefði verið minnkandi mánuðum saman, en gat þess að uppreisnarmenn hefðu þó fengið laun sín eins og venjulega síðasta mánuð." Jíhad-málaliðar sumsé. Flökt og umsnúningar Trumps í Sýrlandi, milli "raunsæis" og aukinnar hörku endar mögulega á viðurkenningu þess að þetta stríð geta þeir ekki unnið. Sjá heimild.
II. Generáll Raymond Thomas yfirmaður bandarískra sérsveita í Sýrlandi (Special Operations) á fundi um öryggismál hjá Aspen Institute segir skýrt að Bandaríkin hafi ekki neina þjóðréttarlega heimild fyrir herliði í Sýrlandi. Ef Rússar spyrja okkur: Hvað hafið þið þar að gera? er okkur ekki stætt þar: "Hér er ráðgáta: Við störfum í fullvalda ríkinu Sýrlandi. Rússarnir, stuðningsmenn og bakmenn þeirra, hafa þegar gert Tyrki óboðna í Sýrlandi. Við erum einn slæman dag frá því að Rússar spyrji: Af hverju eruð þið, Bandaríkin, enn i Sýrlandi." Heimild.
Hér má lesa greinar eftir ÞÓRARIN HJARTARSON um þjóðfélagsmál úr mismunandi miðlum frá og með 2009 (bloggsíðan stofnuð 2012). Um yfirgang og hernaðarstefnu heimsvaldasinna og andófið gegn þeim. Um framrás hnattvædds kapítalisma og viðnámið gegn honum. Um aðkallandi verkefni verkalýðshreyfingarinnar. Um sögu og framtíð sósíalismans. Í febrúar 2017 eru greinarnar orðnar 134.
Thursday, July 27, 2017
Saturday, July 8, 2017
Fleiri göt á lygahjúpinn um eiturgasið í Sýrlandi
(birtist á fésbók SHA 7. júlí 2017)
Fréttamynd um fórnarlamb saríns í Khan Sheikhoun
Fréttamynd um fórnarlamb saríns í Khan Sheikhoun
Meðhöndlun
vestrænnar pressu á nýlegum eiturgas-skrifum Seymour Hersh segir sitt um
fjölmiðlafrelsið í hinum vestræna heimi. Heimildarmenn hans í bandarískri
leyniþjónustu sögðu honum að opinbera útgáfan af eiturárás í sýrlenska bæinn Khan
Sheikhoun – sem gaf Trump yfirvarp til að hefja opið stríð gegn Sýrlandsstjórn
– væri fals. Hersh gat ekki komið greinum sínum í neitt útbreitt blað í
Bandaríkjunum eða Bretlandi. Um síðir kom hann þeim í þýska vikublaðið Welt am Sonntag. Þá kom næsti leikur meginstraumspressunnar: Hún hefur síðan fylgt
SKIPULEGRI ÞÖGGUN gagnvart þessum afhjúpunum. Þegjum manninn í hel! Þögnin nær
þó ekki til mótstraumsmiðla, og um þá ratar Hersh vel. Um þetta fjallar
Jonathan Cook á Counterpunch: sjá heimild.
Aðra
glufu í sama lygahjúp gerir Bandaríkjamaður að nafni Scott Ritter. Hann var
æðsti vopnaeftirlitsmaður SÞ í Írak frá 1991 til 1998, þ.e.a.s. á undan Hans
Blix, og staðhæfði þá staðfastlega að ásakanirnar um gjöreyðingarvopn Íraka
væru fals. Þungaviktarmaður m.ö.o. Hann skrifaði núna grein í The American Conservative 29/6. Þarna
kannar hann skipulega þau gögn sem lögð hafa verið fram um Khan Sheikhoun, að
Sýrlandsher hafi „kastað sarínsprengju“. Gögnin eru myndir frá „Hvítu
hjálmunum, myndir sem einkum hafa verið greindar af Human Rights Watch sem hafa
dreift þeim áfram gagnrýnislaust. Ritter sýnir fram á að þessi gögn eru
víðsfjarri öllu sem kenna má við vísindalega könnun. Engin óháð rannsókn hefur
enn farið fram í Khan Sheikhoun. Ritter er ennfremur alveg ómyrkur í máli í
afgreiðslu sinni á aðferðum „Hvítu hjálmanna“ sem hann kennir við
„leikhúsbrellur“, enda fengu þeir Óskarinn í flokki „heimildarmynda“. Sjá heimild
Tuesday, July 4, 2017
Stríðið og framtíðarhorfur Sýrlands
(birt á vefsíðu Alþýðufylkingarinnar 4 júlí 2017)
Inngangur eftir Þórarin Hjartarson og grein eftir Patrik Paulov
Inngangur eftir Þórarin Hjartarson og grein eftir Patrik Paulov
Í Speglinum 27. júní fjallaði Kári Gylfason um Sýrlandsstríðið. Hann hafði þar eftirfarandi eftir bandarískum blaðamanni, Jonathan Spyer: „Sýrland er ekki lengur til. Því hefur þegar verið skipt upp í sjö aðskilda hluta.“ (heimild) Greining Kára studdist einkum við grein frá 19. maí í ritinu Foreign Policy – sem er mjög miðlægt í bandarískri utanríkisumræðu og mætti kalla málgagn „The Deep State“ vestan hafs. Í greininni skýrir Spyer nánar skiptinguna í sjö svæði: „...svæðið undir yfirráðum stjórnarinnar, þrjú aðskilin svæði undir stjórn uppreisnarmanna, tvær kúrdneskar kantónur og ISIS-svæðið.“ Aftar í greininni slær hann föstu: „Sýrlandi verður skipt á milli stjórnarhlutans í vestri, uppreisnarmanna súnníaraba í norðvestri og suðvestri, svæði tyrknesk-studdra uppreisnarmanna í norðri, SDF-stýrða svæðið í norðaustri og loks eitthvert fyrirkomulag á austursvæðinu sem felur í sér yfirráð bæði SDF og vestrænt studdra araba.“ Stöðu síðastnefnda svæðisins, austursvæðisins, orðaði hann svo á öðrum stað: „...og æ opinskárri stuðningur Bandaríkjanna við þessar sveitir opnar möguleikann á að USA-studdur landshluti verði til austan Efrats“. (heimild)
Þessi greining er auðvitað ekki persónulegt álit Kára Gylfasonar. Hún er ekki heldur greining blaðamannsins Jonathan Spyers. Þetta er línan sem nú er við lýði í Washington (RÚV leitar aldrei annað eftir réttri túlkun átakanna í Miðausturlöndum). Hugveitan RAND Corporation, sem er hluti af bandaríska stjórnkerfinu, nánar tiltekið sérhugveita fyrir herinn, hefur á undanförum árum árlega birt nokkuð sem hún kallar „Peace Plan for Syria“. Nýjasta áætlunin „Peace Plan for Syria III“ sem lögð var fram í febrúar sl. (ég deildi henni á fésbók SHA 26. febr.) er nánast orðrétt samhljóða framtíðarsýn Spyers um Sýrland. (heimild)
Seymour Hersh afhjúpar enn og aftur lygar um eiturgas
(birtist á fésbók SHA 27. júní 2017)
Það er skammt stórra högga á milli
hjá Seymour Hersh. Stefán Pálsson deildi hér á síðunni greininni "Trumps'
Red Line" 25/6 þegar hún birtist í Welt
am Sonntag. Sjá hér. Og sama dag birti Hersh aðra grein í sama blaði: „We got a fuckin‘ problem“. Þar birti hann "chat protocol" á milli
öryggisráðgjafa úr leyniþjónustunni og manns úr bandarískri herstöð í
Miðausturlöndum rétt eftir gasárásina í Khan Sheikhoun. Í samtalinu kemur fram
pirringur úr leyniþjónustunni með samráðsleysi forsetans. Þarna kemur skýrt
fram að leyniþjónustan vissi alltaf að eiturgasið kom ekki frá Sýrlandsher.
Einhverjir úr leyniþjónustunni sýndu þennan pirring í verki með því að leka
upplýsingunum til Seymour Hersh.
Í samtalinu segir öryggisráðgjafinn
um frammistöðu CIA: "You may not
have seen Trumps press conference yesterday. He's bought into the media story
without asking to see the Intel. We are likely to get our asses kicked by the
Russians. Fucking dangerous. Where are the godamn adults? The failure of the chain of command to tell
the President the truth, whether he wants to hear it or not, will go down in
history as one of our worst moments."
Skriffinnar sem verja hin hörðu
viðbrögð USA gegn Sýrlandsstjórn gagnrýna Seymour Hersh einkum fyrir að nota
nafnlausa heimildarmenn. Við því er þetta að segja: Slík viðtöl og slíkir lekar
út úr bandarísku leyniþjónustunni, lekar sem stríða gegn opinberri línu, fást
aldrei birtir nema með skilyrðum nafnleyndar. Á sínum tíma snéri Hersh öllum
öðrum blaðamönnum fremur bandarísku almenningsáliti á Vietnamstríðinu með
afhjúpun sinni á fjöldamorðunum í My Lai 1969 og fékk Putitzer Prize árið
eftir. Lesið aftur samtalið hér að ofan, samtalið sem Hersh birti í Welt am Sonntag. Það nægir. Samtalið fór
fram og því var lekið til Hersh. Hann myndi aldrei hætta sínum fjalltrausta
blaðamennskuferli á að birta leka sem væri fleipur eða samtal sem ekki hefði
farið fram.
Monday, June 26, 2017
Seymour Hersh og sarínið í Sýrlandsstríðinu
Stefán Pálsson deildi á fésbókarsíðu SHS grein eftir Seymour Hersh sem birtist á Welt am Sonntag 25. júní (2017). Hér að neðan er athugasemd mín eftir lestur greinarinnar.
Gott. Hraðlas greinina. Hersh hefur mikil tengsl inn í CIA.
Heimildarmenn hans þar hallast að fyrstu tilgátu Rússa, að sýrlensk hefðbundin
sprengja hefði hitt eiturefni í Khan Sheikhoum. Næsti liður í skýringunni sem
Hersh gefur er gríðarleg hvatvísi Donalds Trump. Þriðji liður er svo bandaríska pressan sem skellti auðvitað skuldinni á Assad einum rómi. Þar
með er dómurinn fallinn a.m.k. um allan hinn vestræna heim, „Sýrlandsher
kastaði sarínsprengju“, og mönnum þykir forsetinn loksins sanna sig með hröðum
og snöggum viðbrögðum!
Hefðbundin sprengja sem sagt, sjálfstýrandi reyndar. Og CIA
vissi það allan tímann. Henni var beint á hús í Khan Sheikhoum þar sem fór fram
fundur toppmanna úr al-Nusra og Ahrar al-Sham en verslunarlager var á neðri
hæð. Bendir ákveðið til að þar hafi eiturefnin verið. Ennfremur: Rússar höfðu
látið bandaríska herstjórn í Doha vita af skotmarkinu og tegund árásar
fyrirfram.
Neðanmáls: Seymour Hersh er með virtari rannsóknarblaðamönnum Bandaríkjanna og Pulitzer-verlaunahafi. Hersh varð heimsfrægur er hann afhjúpaði fjöldamorðin í My Lai í Víetnam 1969. Árið 2007 skrifaði hann grein í The New Yorker um stefnubreytingu bandarískra strategista í hernaðinum í Miðausturlöndum, um það hvernig Bush-stjórnin veðjaði á „trúardeilutrompið“, að styðja hernað súnní múslima gegn sjía múslimum. Þetta var ekki breyting á markmiðum strategistanna, meinti Hersh, heldur ný taktík þeirra Hann reyndist algjörlega sannspár. Sjá greinina í The New Yorker. Í desember 2013 gerði Hersh í London Review of Books úttekt á gasárásinni í Ghouta nærri Damaskus í ágúst sama ár sem nærri nærri hafði sett af stað stórstríð Vestursins og bandamanna gegn Sýrlandsstjórn. Hann færði öflug rök að því að sarínið hefði komið frá "uppreisnarmönnum" og hefði borist þeim frá Tyrklandi.
Saturday, June 24, 2017
Kafbátaheræfing og Rússahættan.
(bistist á fésbókarsíðu SHA 23. júní 2017)
Kafbáta-flotaæfingin Dynamic Mongoose 2016 við Noreg
Kafbáta-flotaæfingin Dynamic Mongoose 2016 við Noreg
Nú á mánudaginn 28. júní hefst tveggja
vikna NATO flotaæfing, við Ísland með áherslu á kafbátahernað, nefnd Dynamic Mongoose. Talað er um 2000-3000 manns sem tekur þátt í
æfingunni, frá 9 NATO ríkjum. Ótilgreindur fjöldi herskipa og kafbáta
tekur þátt. RÚV talaði í kvöld við NATO-herforingja sem sagði að ástæðan sé
vaxandi umsvif Rússneskra kafbáta sem geti farið að laumast gegnum GIUK-hliðið (línan Skotland, Ísland, Hvarf á Grænlandi) – og benti á að nú fari aftur hraðvaxandi hernaðarlegt mikilvægi Íslands, og
loftrýmiseftirlitsins. Hættumatið í íslenskum fréttum er allt á eina bók.
Rússar
standa fyrir 4-5% af herútgjöldum heimsins. Það er
alveg gífurlegur voði. USA stendur fyrir 37%, það er í lagi. NATO og nánustu
bandamenn (Ísrael, Japan, Sádar..) standa fyrir svona 85%. Það er í lagi. Vel á
minnst Sádar einir eru komnir upp fyrir Rússa, gott.
Rússar
hernema herstöð sína til 234 ára á Krímskaga og heimsbyggðin formyrkvast. En
USA og NATO ástunda samfellda og æ hraðari hernaðaruppbyggingu við vesturglugga
Rússlands með eldflaugakerfum, þungavopnum og tvöföldum mannaflans á hverju
einasta ári, guði sé lof!
Rússland
hefur eina herstöð utan eigin lands, nefnilega í Sýrlandi. Voðalegt! Bandaríkin
hafa 700 herstöðvar utan lands dreifðar um heim, ekki síst í hring um Rússland.
Það er í góðu lagi.
Sagt
er fyrir vestan haf að Rússar hafi reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar sl
haust. Þetta er alveg hræðilegt, þó sannanir hafi enn ekki fundist. En árið
1996 fóru menn Clintons forseta massíft inn í kosningabaráttuna í Rússlandi til
að tryggja Boris Jetsin sigur.
Forsíða TIME í júlí 1996
Ritið TIME fjallaði um málið og aðalgreinin fjallaði um: „The secret story of how four U.S. advisers used polls, focus groups, negative ads and all the other techniques of American campaigning to help Boris Yeltsin win.“ Svo veifaði Jeltsin risaláni frá vini sínum Clinton sem fengist, ef sigur ynnist. Ja, göfugur tilgangur helgaði alla vega meðalið.
Forsíða TIME í júlí 1996
Ritið TIME fjallaði um málið og aðalgreinin fjallaði um: „The secret story of how four U.S. advisers used polls, focus groups, negative ads and all the other techniques of American campaigning to help Boris Yeltsin win.“ Svo veifaði Jeltsin risaláni frá vini sínum Clinton sem fengist, ef sigur ynnist. Ja, göfugur tilgangur helgaði alla vega meðalið.
Ætlar SHA ekki að álykta um málið?
Thursday, June 22, 2017
Katardeilan og klofningur innan sýrlensku "uppreisnarinnar"
(birtist á fésbókarsíðu SHA 22. júní 2017)
Hér er grein frá REUTERS sem greinir erlenda stuðninginn við
sýrlensku "uppreisnina" og hvernig Katardeilan virkar kljúfandi á
hann. Stuðningur Katar hefur farið á hópa sem standa nálægt Múslimska
bræðralaginu og al-Kaida/Nusra, sem kalla sig nú Tahir al-Sham. Þessir aðilar
tengjast jafnframt Tyrkjum og starfa mest í Norður-Sýrlandi. Sádar styðja
aðallega sömu aðila og CIA (Jaish al-Islam o.fl) sem eru sterkari á
suðursvæðinu. Það er ljóst að slæmt stríðsgengi veldur vaxandi klofningi meðal leiguherjanna
- nokkuð sem hjálpar Sýrlandsher. Hins vegar stuðlar þetta líklega að auknum
beinum hernaði USA-bandalagsins og um leið skýrist æ betur hver er hans
raunverulegi andstæðingur.
Í pistli í febrúar sl.vísaði ég í uppfærð plön (eftir „fall“
Aleppo) strategistanna í bandaríska stjórnkerfinu um sundurlimun Sýrlands (í alavíta-
tyrkneskan- kúrdískan og súnní- hluta) sem kljúfi allan austurhluta landsins
undan yfirráðum Damaskus. Ofannefnd skipting er mjög í samræmi við það. Nýleg
fleygsókn Sýrlandshers austur að landamærum Íraks ógnar hins plönum
strategistanna.
Subscribe to:
Posts (Atom)



